Innlent

Þuríður vill 2.sætið

Þuríður Backman
Þuríður Backman

Þuríður Backman, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Í síðustu alþingiskosningum var Þuríður í 2. sæti.

Þuríður hefur setið á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð frá árinu 1999, fyrst sem þingmaður Austurlands og síðan 2003 þingmaður Norðausturkjördæmis. Hún sat í Heilbrigðis- og trygginganefnd á árunum 1999-2007, í landbúnaðarnefnd 1999-2003. Þuríður er svo núverandi formaður heilbrigðisnefndar Alþingis sem og á hún sæti í félags- og tryggingamálanefnd og menntamálanefnd.

Þuríður er með próf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1973 og framhaldsnám í hand- og lyflækningahjúkrun 1983 og diplóma frá Norræna heilbrigðisháskólanum 1992. Auk þess að hafa starfað sem þingmaður hefur Þuríður mikla reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu. Á árunum 1990-1998 sat Þuríður í bæjarstjórn Egilsstaða þar af í fjögur ár sem forseti bæjarstjórnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þuríði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×