Fleiri fréttir

Davíð reyndi að hrista blaðamenn af sér

Davíð Oddsson var hvergi sjáanlegur í Seðlabankanum í morgun en þar komu tæplega eitthundrað mótmælendur saman til að krefjast þess að hann víki burt. Davíð sýndi snilldartakta þegar hann hristi blaða og fréttamenn af sér við Landspítalann.

Jóhanna ætlar ekki að eyða tíma og þræta við Davíð

Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina í kappi við tímann og hún ætli ekki að elta ólar við einstaka ávirðingar Davíðs Oddssonar í sinn garð. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann var afgreitt til nefndar í dag og segir Jóhanna mikilvægt að málið verði afgreitt sem fyrst.

Jarðgöng í stað Mýrargötustokks

Útlit er fyrir að jarðgöng verður grafin undir Mýrargötu í stað stokksins sem áætlaður var í góðærinu. Efnt verður til hugmyndasamkeppni um allt gamla hafnarsvæðið og Örfirisey. Allir mega taka þátt, ekkert skilyrði er að vera drátthagur.

Evrópubúar sólgnir í þorsklifur í dós

Þau voru þrjú í fyrravor í litlu fjölskyldufyrirtæki í Grindavík að sjóða niður þorsklifur í dósir. Nú eru Evrópubúar orðnir svo sólgnir í lifrina þeirra að þau eru komin með tuttugu manns í vinnu og tugþúsundir dósa rúlla nú af færibandinu á degi hverjum.

Margt þarf að skoða í tengslum við bankahrunið

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, boðaði til blaðamannafundar í dag og kynnti starfsemi embættisins. Auk Ólafs hafa fjórir verið ráðnir: þeir Grímur Grímsson , Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, og Sveinn Ingiberg Magnússon og Sigurður Tómas Magnússon. Þeir hófu störf í síðustu viku og gera ráð fyrir að funda nánar með samstarfsaðilum sínum, s.s. ríkisskattstjóra og fjármálaeftirlitinu í þessari viku.

Einungis verið að ryðja bankastjórunum út

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að með frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á Seðlabankanum sé einungis verið að ryðja ákveðnum einstaklingum úr vegi. „Þetta er mjög gallað frumvarp. Þetta er samið í flýti. Þetta er mjög vanbúið frumvarp,“ sagði Geir í þættinum Ísland í dag fyrr í kvöld.

AGS sendi ríkisstjórninni ábendingar varðandi Seðlabankafrumvarp

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi ríkisstjórninni um helgina óumbeðið ábendingar varðandi frumvarp hennar um Seðlabanka íslands. Forsætisráðherra vissi ekki af ábendingunum fyrr en eftir umræður á Alþingi í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn óskar eftir trúnaði um innihald ábendinganna, en forsætisráðherra hefur óskað eftir því að þeim trúnaði verði aflétt. Ábendingarnar eru sagðar vera tæknilegs eðlis.

Norrænir utanríkisráðherrar vilja auka aðstoð á Gaza

Norrænu utanríkisráðherrarnir lýstu í dag yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Sri Lanka þar sem um 250.000 óbreyttir borgarar hafa lokast inni á átakasvæðum. Þá sögðu utanríkisráðherrarnir að bráð nauðsyn væri á að auka aðstoð við Palestínumenn á Gaza. Ráðherrarnir funduðu í dag í Ósló og stýrði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundinum.

Jón segir skilið við Frjálslynda

Jón Magnússon tilkynnti við upphaf þingfundnar í dag að hann hefði sagt sig úr Frjálslynda flokknum og þingflokki flokksins. Hann mun sitja á Alþingi fram að kosningum utan flokka. Jón settist á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í maí 2007 og í september sl. var hann kjörinn þingflokksformaður flokksins.

Fíkniefnaleit í FB

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði að fíkniefnum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í hádeginu í dag. Á undanförnum árum hefur lögreglan nokkrum sinnum farið þessara erinda í skólann en niðurstaðan hefur ávallt verið sú sama. Þar hafa engin fíkniefni fundist. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum var notaður við aðgerðina í dag.

Katrín skipar nýja stjórn LÍN

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað nýja fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til næstu tveggja ára frá 9. febrúar 2009.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins með 26 prósent samkvæmt netkönnun sem Reykjavík síðdegis á Bylgjunni lét gera fyrir sig. Alls greiddu 4.300 manns atkvæði og var aðeins eitt atkvæði á hverja ip-tölu. Sé tekið mið af þeim sem tóku afstöðu til flokka þá mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 34 prósent í fylgi.

Dánarorsök konunnar enn óljós

Bráðabirgðaniðurstaða krufningar hefur ekki varpað ljósi á dánarorsök konu á fertugsaldri, sem fannst látin í Kapelluhrauni, sunnan Hafnarfjarðar, á fimmtudag.

Leyfir takmarkaðar loðnuveiðar í rannsóknarskyni

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur því nú ákveðið að heimila takmarkaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni. Um er að ræða 15.000 tonna kvóta.

Ekki til svo mikið sem minnisblað um ákvörðun Einars

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segir að ekki hafi verið til svo mikið sem eitt minnisblað í ráðuneytinu um ákvörðun forvera síns um að gefa út veiðiheimildir til næstu fimm ára á hrefnum og langreyðum. Hann gagnrýnir einnig fátæklegan lagagrunn sem liggur að baki ákvörðuninni og skilur ekki hversvegna forverar sínir hafi ekki endurskoðað lögin sem eru frá fimmta áratug síðustu aldar. Einar segir Steingrím flækja málin.

Seðlabankafrumvarp fer í viðskiptanefnd

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur dregið frumvarp sitt um breytingar á lögum um Seðlabankann til baka. Tvö frumvörp komu fram sem voru samhljóða utan þess að frumvarp Jóhönnu gerði ráð fyrir því að málið færi fyrir efnahags- og skattanefnd en frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins gerir ráð fyrir að málið fari fyrir viðskiptanefnd.

Skráir sig í Frjálslynda flokkinn - og á atvinnuleysisbætur

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson, sem fór fremstur í flokki vörubílstjóra sem mótmæltu háu bensínverði síðasta sumar, er búinn að missa öll vinnutækin sín, auk þess sem hann skráði sig í Frjálslynda flokkinn og hyggur þar á pólitískan frama. Flokkurinn er þó ekki það eina sem hann er búinn að skrá sig í - Sturla er líka búinn að skrá sig á atvinnuleysisbætur. Sturla ekki á sjö daganna

Loðnutorfan ekki nógu stór

Loðnan sem fannst út af Ingólfshöfða gefur því miður ekki tilefni til að gefa út loðnukvóta. Þetta segir Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri um borð í Árna Friðrikssyni.

Bréf Eiríks og Ingimundar birt

Seðlabankinn hefur nú birt svarbréf þeirra Eiríks Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar til Jóhönnu Sigurðardóttur, en svarbréf Davíðs Oddonar hefur þegar verið birt eins og flestir vita. Í bréfunum eru bankastjórarnir að svara tilmælum forsætisráherra um að þeir láti sjálfviljugir af störfum. Þeir Eiríkur og Davíð hyggjast ekki verða við þeirri bón en Ingimundur ætlar sér að hætta.

Fundu gríðarstóra loðnutorfu við Ingólfshöfða

Áhöfnin á Lundey NS sigldi nú undir morguninn fram á gríðarstóra loðnutorfu suður af Ingólfshöfða. Torfan var 14 mílna löng, um 600 til 1000 metra breið og þykkt hennar var um 10 til 30 faðmar.

Össur tekur við Stoltenberg skýrslunni

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag, fyrir hönd norrænna starfsbræðra sinna, við skýrslu Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, um norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að skýrslan hafi verið kynnt á fundi fundi norrænu utanríkisráðherrana sem haldinn var í Ósló í dag.

Mótmælandinn búinn að kæra hagfræðinginn

Hermann Valsson mótmælandi hefur kært Ólaf Klemensson hagfræðing hjá Seðlabankanum fyrir árás. Hermann segir Ólaf hafa bakkað á sig í morgun fyrir utan bankann en Ólafur hefur kært Hermann fyrir að skemma bíl sinn. Vitni að atvikinu segir Ólaf hafa bakkað á Hermann.

Von á bráðabirgðaniðurstöðum krufningar í dag

Vonast er til að bráðabirgðaniðurstöður krufningar í tengslum við andlát konu sem fannst í dúfnakofa í Hafnarfirði fyrir helgi liggi fyrir síðdegis. Sambýlismaður konunnar var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hefð átt aðild að láti hennar.

Lögreglumenn: Metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins

Landsamband lögreglumanna segir það lýsa metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins gagnvart lögreglunni, að ekki séu til brynvarðar bifreiðar eins og til stóð að fá lánaðar frá dönsku lögreglunni vegna óeirða við opinberar byggingar á dögunum.

Þrjú frumvörp um Seðlabanka lögð fram

Svo gæri farið að forsætisráðherra verði undir í atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag, þegar ákveðið verður í hvaða nefnd frumvarp hennar um Seðlabankann verður sent. Greidd verða atkvæði um tvö frumvörp um Seðlabanka Íslands á Alþingi í dag, að lokinni fyrstu umræðu um þau. Annars vegar er frumvarp forsætisráðherra og hins vegar frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins.

Davíð á Landspítalanum

Ekkert hefur sést til Davíðs Oddssonar við Seðlabankann í morgun. Fréttamaður fréttastofu sá hinsvegar til Davíðs þar sem hann ók bíl sínum að Landspítalanum við Hringbraut.

Innbrot í Rauða húsið

Brotist var inn í veitingastaðinn Rauða húsið á Eyrarbakka aðfaranótt laugardags. Þaðan var stolið sjóðvél og skjávarpa. Hluti þýfisins fannst í sandnámu vestan við Eyrarbakka.

Díselolía lækkar

Vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á dieselolíu síðustu daga hefur Bensínorkan ákveðið að lækka verð á Orkustöðvunum um 5 krónur. Almennt verð á diesel verður eftir breytingu 159,1 króna.

Hagfræðingur Seðlabankans hyggst kæra mótmælanda

„Hann var að lemja bílinn með hnefa og kylfu," segir hagfræðingurinn Ólafur Klemensson, en mótmælandi lamdi í bílinn hans og dældaði að sögn Ólafs þegar hann var á leið til vinnu í Seðlabankanum í morgun. Aðspurður segist Ólafur ætla að kæra mótmælandann fyrir að hafa unnið skemmdarverk á grárri Nissan bifreið sem hann ekur um á.

Segir starfsemi Seðlabankans ganga sinn vanagang

Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri hjá Seðlabankanum segir starfsemi bankans ganga sinn vanagang. Um hundrað mótmælendur haf nú tekið sér stöðu við bílageymslu bankans sem og aðalinngang. Stefán segist ekki geta tjáð sig um það hvort Davíð Oddsson sé mættur til vinnu en mótmælendur vilja Davíð úr Seðlabankanum.

Um hundrað mótmæla Seðlabankastjórum - myndir

Um það bil hundrað manns eru nú að mótmæla fyrir utan Seðlabanka Íslands vopnuð búsáhöldum. Það var Hörður Torfason, forsprakki Radda Fólksins, sem boðaði mótmælin á Laugardaginn.

Að minnsta kosti 13 skip við gulldepluveiðar

Fjölveiðiskipin eru aftur byrjuð gulldepluveiðar suður af landinu eftir brælu í gær. Að minnsta kosti þrettán skip eru nú á Grindavíkurdýpi og fara brátt að berast aflatölur.

Lyfjuræningi grunaður um fleiri en eitt rán

Maðurinn, sem var handtekinn síðdegis í gær eftir að hafa framið vopnað rán í Lyfju við Lágmúla í Reykjavík með því að hóta starfsfólkinu með öxi, er enn í gæslu lögreglu, grunaður um að hafa sitthvað fleira misjafnt á samviskunni.

Höfuðborgarbúar í víking til Selfoss

Tvívegis kom til átaka á Hótel Selfossi í gærkvöldi og í nótt, þar sem starfslið af tveimur veitingahúsum af höfuðborgarsvæðinu héldu sameiginlega árshátíð.

Hyggjast varna Davíð inngöngu í Seðlabankann

Mótmæli við Seðlabankann hófust núna klukkan átta og eru um þrjátíu mótmælendur á staðnum enn sem komið er. Segjast þeir stefna að því að varna Davíð Oddssyni seðlabankastjóra inngöngu í bankann.

Bankastjórar víkja með nýjum lögum

Ólíklegt er talið að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra víki seðlabankastjórunum Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni úr starfi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir hafa báðir ákveðið að sitja áfram í Seðlabankanum þrátt fyrir tilmæli forsætisráðherra um hið gagnstæða. Líklegasta niðurstaða málsins, samkvæmt heimildum, er að þeir sitji fram að þeim tíma að ný lög um bankann taki gildi. Óljóst er hvenær það verður.

Lúðvík var ekki inni í myndinni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafnar því að fjármál Lúðvíks Bergvinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjórn undir hennar forsæti. Þetta var fullyrt í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Milljarðar í ónýttum lögnum í mannlausum hverfum

Orkuveita Reykjavíkur hefur fjárfest fyrir um 2,6 milljarða króna í lögnum í hverfum sem fáir eða engir búa í. Þetta telst vannýtt, eða ónýtt, fjárfesting, þar sem litlar sem engar tekjur skila sér á móti. Þetta þykir dæmi um þá efnahags­lægð sem þjóðin er í, en ekki síst um það skipulagsleysi sem ríkt hafi á höfuðborgar­svæðinu.

Gálgafrestur frystra myntlána

Talsmenn helstu fjármögnunarfyrirtækja, sem hafa lánað til bílakaupa síðustu ár, segjast enn ekki hafa þurft að taka marga bíla aftur af skuldurum í vandræðum. Verst stöddu skuldunautarnir hafi kosið að frysta lán sín um tíma.

Frumvarp lagt fram fljótlega

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sett á fót ráðgjafarhóp til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbýr frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt verður fram á Alþingi á næstu vikum. Aðrir í hópnum eru Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.

Eigum ekki annarra kosta völ

„Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er lögþvingaður. Honum verður ekki breytt nema fjárlög verði tekin upp á ný. Þetta er ekki ljúft verk en við eigum ekki annarra kosta völ en að draga saman seglin,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra.

Afstaða Davíðs olli Jóhönnu vonbrigðum

Brýnt er að frumvarp það sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi um endurskipulagningu á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands fái eins skjóta afgreiðslu og unnt er, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í yfirlýsingu sem hún hefur sent frá sér vegna bréfs sem hún fékk frá Davíð

Sjá næstu 50 fréttir