Fleiri fréttir

Lúðvík var ekki inni í myndinni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafnar því að fjármál Lúðvíks Bergvinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjórn undir hennar forsæti. Þetta var fullyrt í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Milljarðar í ónýttum lögnum í mannlausum hverfum

Orkuveita Reykjavíkur hefur fjárfest fyrir um 2,6 milljarða króna í lögnum í hverfum sem fáir eða engir búa í. Þetta telst vannýtt, eða ónýtt, fjárfesting, þar sem litlar sem engar tekjur skila sér á móti. Þetta þykir dæmi um þá efnahags­lægð sem þjóðin er í, en ekki síst um það skipulagsleysi sem ríkt hafi á höfuðborgar­svæðinu.

Gálgafrestur frystra myntlána

Talsmenn helstu fjármögnunarfyrirtækja, sem hafa lánað til bílakaupa síðustu ár, segjast enn ekki hafa þurft að taka marga bíla aftur af skuldurum í vandræðum. Verst stöddu skuldunautarnir hafi kosið að frysta lán sín um tíma.

Frumvarp lagt fram fljótlega

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sett á fót ráðgjafarhóp til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbýr frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt verður fram á Alþingi á næstu vikum. Aðrir í hópnum eru Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.

Eigum ekki annarra kosta völ

„Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er lögþvingaður. Honum verður ekki breytt nema fjárlög verði tekin upp á ný. Þetta er ekki ljúft verk en við eigum ekki annarra kosta völ en að draga saman seglin,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra.

Afstaða Davíðs olli Jóhönnu vonbrigðum

Brýnt er að frumvarp það sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi um endurskipulagningu á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands fái eins skjóta afgreiðslu og unnt er, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í yfirlýsingu sem hún hefur sent frá sér vegna bréfs sem hún fékk frá Davíð

Davíð neitar að hætta

Davíð Oddsson formaður bankastjórnar Seðlabankans ætlar ekki að láta af störfum í bankanum eins og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur farið fram á. Davíð skýrði frá þessu í bréfi til forsætisráðherra sem birt var á vef Seðlabankans rétt í þessu.

Björn tekur undir orð Davíðs

Björn Bjarnason tekur undir gagnrýni Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á bréf sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi seðlabankastjórunum.

Ásta Möller gefur kost á sér í 3. sæti

Ásta Möller, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Í Reykjavík sem haldið verður 14. mars næstkomandi vegna Alþingiskosninga á vordögum.

Réðst inn í Lyfju með exi að vopni

Karlmaður var handtekinn á sjötta tímanum eftir að hafa ráðist inn í Lyfju í Lágmúla vopnaður exi og heimtað að fá afhent ritalin, sem er örvandi lyf. Starfsmaður Lyfju elti manninn út á götu eftir ránið og gat bent lögreglumönnum á það hvert hann hefði farið. Lögreglumenn fóru á eftir manninum og fundu hann í Álftamýri.

Víðast hálka á Suðurlandi

Það er hálka víðast hvar á Suðurlandi. Þó er autt yfir Hellisheiði og að Hvolsvelli, hálkublettir eru í Þrengslum. Ófært er á Bláfjallavegi sunnan

Vinstri grænir verða með prófkjör í Reykjavík 6. mars

Ákveðið hefur verið að efna til forvals í hjá Vinstri grænum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Fimm manna kjörstjórn leggur til að forvalið fari fram 6. mars næstkomandi og framboðsfrestur sé til 19. febrúar.

Undirbúa stjórnarskrárbreytingar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett á fót ráðgjafarhóp ríkisstjórnarinnar til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbúa mun frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt verðu fram á Alþingi á næstu vikum.

Erla Ósk vill fimmta sætið

Erla Ósk Ásgeirsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Erla er stjórnmálafræðingur að mennt og stundar nám í opinberri stjórnsýslu. Hún starfar í markaðsdeild á viðskiptabankasviði Landsbankans.

Ríkisstjórnin mun dæla fjármagni í atvinnuleysisbætur

Ríkisstjórnin er viðbúin því að setja inn aukið fjármagn í atvinnuleysistryggingarsjóð, en hann mun að óbreyttu tæmast á árinu. Forsætisráðherrra segir engan þurfa að óttast það að ekki verði hægt að greiða út atvinnuleysisbætur.

Þórlindur vill á þing

Þórlindur Kjartansson mun gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna sem fram fer um miðjan mars.

Ögmundur er mættur í uppvaskið

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, býst ekki við því að breytingar verði á forystu flokksins fyrir næstu þingkosningar. Þetta sagði Ögmundur í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann segir jafnframt að forysta flokksins njóti mjög mikils stuðnings.

Skíðasvæði víða opin

Skíðasvæðin á landinu eru víða opin í dag. Á Norðurlandi eru skíðasvæðin á Dalvík, Siglufirði, Tindastóll á Sauðárkróki og Hlíðarfjall á Akureyri opin. Nokkuð kalt er á Dalvík, eða tíu stiga frost, en hlýrra á Siglufirði þar sem frostið er þrjár gráður.

Rúmlega 30 kaupsamningum þinglýst

Rúmlega helmingi færri kaupsamningum vegna fasteigna var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt samantekt fasteignamats ríkisins. Þá dróst velta saman um nærri tvo og hálfan milljarð króna. Alls var 34 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku en í fyrra voru þeir 82. Velta nam rétt tæpum 900 milljónum króna en var 3,3 milljarðar á sama tíma í fyrra.

Harður árekstur á Kringlumýrabraut

Harður árekstur varð á gatnamótum Listabrautar og Kringlumýrabrautar rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Bifreið var ekið á móti umferð og lenti hún framan á annarri bifreið. Karlmaður í annarri bifreiðinni var fluttur slasaður á slysadeild.

Tvöfaldur lottópottur næst

Enginn var með allar aðaltölurnar réttar í Laugardagslottóinu í kvöld og verður potturinn því tvöfaldur næst. Tveir skiptu á milli sín bónusvinningnum og fær hvor rúmlega 97 þúsund krónur.

Neyðin eykst

Þeim fjölgar ört sem eiga ekki fyrir mat og leita á náðir Mæðrastyrksnefndar. Um fjögur hundruð heimili sækja þangað aðstoð í hverri viku. Formaður nefndarinnar segir að sem betur fer séu enn margir tilbúnir að láta gott af sér leiða.

Lögreglan rannsakar andlát ungrar konu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvað kann að hafa valdið andláti erlendrar konu á þrítugsaldri, sem fannst á gistiheimili í Laugardalnum um fimmleytið í dag. Að sögn lögreglunnar virðist við fyrstu athuganir sem að ekkert saknæmt hafi orðið til þess að konan lést. Hún var ferðamaður hér á landi og virðist hafa látist í svefni á gistiheimilinu. Lögreglan rannsakar tildrög málsins.

Hjólamessa björgunarsveitarmanna

Allar hjálparsveitir á höfuðborgarsvæðinu komu saman með fjórhjólin sín í dag á svokallaðri hjólamessu. Þetta er í fyrsta sinn sem slík uppákomu er haldin.

Forsætisráðherra þakklát Ingimundi

Forsætisráðherra íhugar að kalla sérstaklega eftir svari frá Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra, hvort hann hyggst láta af embætti. Davíð hefur hingað til virt óskir forsætisráðherra að vettugi.

Sturla hættir á þingi

Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðvesturkjördæmi, mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Hann lýsti þessu yfir á kjördæmisþingi

Sala áfengis eykst á milli ára

Sala áfengis í janúar jókst um 12% í lítrum miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs jókst um 15% á tímabilinu og sala hvítvíns um 12%. Sala rauðvíns og ókryddaðs brennivíns jókst um 4% og 8% á

Fleiri nýta sér fæðingarorlof

Karlmönnum sem nýta sér fæðingarorlof sem þeir eiga inni fjölgar í takt við aukið atvinnuleysi. Hátt í fjórtán þúsund manns eru án atvinnu samkvæmt vef Vinnumálastofnunar en atvinnulausum hefur fjölgað ört síðustu mánuði.

Landsfundur verður síðustu helgina í mars

Samfylkingin heldur landsfund sinn í Smáranum í Kópavogi helgina 26-29 mars. Nú stendur yfir Framtíðarþing Samfylkinarinnar og segir Skúli Helgason framkvæmdastjóri flokksins að það sé lokaundirbúningur fyrir landsfundinn. Skúli segir að um 300 manns séu á Framtíðarþinginu sem lýkur um þrjúleytið í dag með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Halda prófkjör um miðjan mars

Sjálfstæðismenn í Reykjavík halda prófkjör dagana þrettánda og fjórtánda mars næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi Varðar - Fulltrúaráðsins í Reykjavík, sem fram fór í Valhöll nú í morgun. Á fundinum flutti Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins jafnframt ræðu. Landsfundur flokksins verður svo haldinn 26. – 29. mars næstkomandi.

Ingimundur hættir

Ingimundur Friðriksson, einn þriggja bankastjóra Seðlabankans, hefur ákveðið að verða við beiðni forsætisráðherra um að láta af embætti. Tekur uppsögn hans gildi á mánudag.

Víða færi til að skíða

Skíðasvæðið á Siglufirði er opið í dag frá klukkan ellefu til klukkan fimm. Að sögn staðarhaldara gerast aðstæður vart betri en þar er frábært veður og færi. Einnig er opið í Hlíðarfjalla á Akureyri til klukkan fjögur. Þar er ágætt veður en kalt, ellefu stiga frost. Nokkuð hlýrra er í Bláfjöllum eða fjögurra stiga frost en þar er opið í dag til fimm.

Stálu tölvu og tölvuskjám úr Öskjuhlíðaskóla

Fangageymslur lögreglunnar fylltust í nótt. Á meðal þeirra sem gistu fangageymslurnar voru innbrotsþjófar sem fóru inn í Öskjuhlíðaskóla á fimmta tímanum og stálu þaðan tölvu og tölvuskjám.

Morgunblaðsljósmyndari í vinnu fyrir lögregluna

„Mér finnst harla óeðlilegt að blaðamenn, ljósmyndarar eða tökumenn séu að vinna fyrir lögregluna," segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri útvarps, um það að ljósmyndari Morgunblaðsins skuli einnig starfa sem ljósmyndari fyrir lögregluna.

Segja marga ágalla á seðlabankafrumvarpi

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins tættu í sig frumvarp um ný lög um Seðlabankann í þinginu í gær. Auk þess að telja á því margvíslega ágalla segja þeir það lagt fram til höfuðs Davíð Oddssyni. Stjórnarflokkarnir segja málið faglegt.

Enex skipt upp

Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Það hefur verið staðfest á hlutafundi í félaginu og af stjórnum stærstu eigendanna, Reykjavik Energy Invest, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis Green Energy. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur jafnframt afgreitt samkomulagið fyrir sitt leyti.

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Karlmaður sem er grunaður um að eiga þátt í andláti konu sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði, hefur verið hnepptur í tveggja vikna gæsluvarðhald. Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds síðdegis í dag.

Tveir seðlabankastjórar búnir að svara

Seðlabankastjórarnir Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason hafa sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra skrifleg svör en hún óskaði eftir því að þeir bæðust lausnar undan störfum.

Sjá næstu 50 fréttir