Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út vegna sleðamanna

Björgunarsveitir í Árnessýslu fengu beiðni frá lögreglu um að svipast um eftir þremur einstaklingum sem höfðu farið á tveimur sleðum og ætlað á Skjaldbreið í gær.

Leitarbeiðnin barst um hálfáttaleytið, en fólkið fór af stað um klukkan tvö og ætlaði að vera í tvo tíma en ekkert hafði spurst til þeirra þegar beiðnin barst. Kallaðar voru út sveitir í Hveragerði, Grímsnesi, Laugarvatni, Biskupstungum og á Flúðum með vélsleða og jeppa. Þegar björgunarsveitir voru að fara af stað heyrðist frá fólkinu og var staðfest að ekkert amaði að þeim. Fljótlega heyrðist frá þeim aftur og höfðu þau þá orðið bensínlaus en hitt á ferðamenn sem létu þau fá bensín og ætluðu þau að koma sér sjálf til byggða.

Í framhaldi af því voru björgunarsveitir afturkallaðar fyrir utan sveitina á Laugarvatni sem beið í viðbragðsstöðu þar til fólkið skilaði sér. Fólkið lenti í þoku á tímabili og voru komin nokkuð af þeirri leið sem þau áætluðu að fara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×