Innlent

Lúðvík var ekki inni í myndinni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafnar því að fjármál Lúðvíks Bergvinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar, hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjórn undir hennar forsæti. Þetta var fullyrt í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

„Þessi fullyrðing er ekki sannleikanum samkvæm", segir í fréttatilkynningu sem forsætisráðherra sendi frá sér í gærkvöldi. „Frá upphafi stjórnarmyndunar­viðræðna Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs lá fyrir að lögð var áhersla á að fá utanaðkomandi fagaðila til þess að gegna embætti ráðherra bankamála og dómsmála." - shá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×