Innlent

Fiskiskipum fækkaði um helming á fimm árum

Íslenskum fiskiskipum fækkaði um nærri helming á árunum 2003 til 2008 samkvæmt samantekt Landssambands íslenskra útvegsmanna. Árið 2003 voru um 1.400 fiskiskip skráð á landinu en á síðasta fiskveiðiári voru þau um 770 talsins. Fækkunin nemur því um 590 skipum. Á heimasíðu LÍÚ kemur fram að nánast enginn munur er á þróuninni hvort sem um er að ræða aflamarks- eða krókamarksskip.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×