Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alvarlegt umferðarslys - Reykjanesbraut lokuð Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut við Kaldárselsveg á sjötta tímanum í dag. Lögreglan telur að tveir bílar hafi lent saman og í framhaldinu hafi annar þeirra farið nokkrar veltur. Ökumaður bifreiðarinnar er talinn alvarlega slasaður. 27.12.2008 17:45
Nokkur hundruð mótmæltu á Austurvelli Hátt í 700 manns komu saman til friðsamlegra mótmæla á Austurvelli í dag. Samtökin Raddir fólksins stóðu fyrir mótmælafundinum og var Hörður Torfason, einn af talsmönnum samtakanna, afar ánægður hvernig til tókst. Stemmning hafi verið góð og mikill hugur í fólki. 27.12.2008 17:02
Hugleiddu frið og samkennd á Ráðhústorgi Undanfarna mánuði hefur hópur fólks hist fyrir framan Samkomuhúsið og gengið niður á Ráðhústorg undir yfirskriftinni ,,Virkjum lýðræðið". Þar hafa ýmsir tekið til máls en í dag var ákveðið að hugleiða í stað þess að láta gamminn geysa. 27.12.2008 16:25
2009 verður ár uppgjörsins Árið 2009 gengur senn í garð og telur Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, að það verði ár uppgjörsins. Kristinn segir í pistli á heimasíðu sinni að haustið hafi verið mörgum landsmönnum erfitt og eðlilega hafi reiðin verið mikil. 27.12.2008 15:45
Fjöldamorð framin til að uppræta Hamas - 195 látnir Ísraelar fremja fjöldamorð á Palastínumönnum á Gaza-svæðinu til að ganga á milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, að mati Sveins Rúnars Haukssonar formanns félagsins Ísland-Palestína. Hann segir að árásin í morgun hafi verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Það styttist í þingkosningar í Ísrael og frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir að þeir vilji eyða Hamas. 27.12.2008 15:30
Mótmælt á Austurvelli í dag Raddir fólksins standa fyrir mótmælum á Austurvelli í dag, 12. laugardaginn í röð. ,,Ríkisstjórnin, stjórnir Seðlabankans og Fjármáleeftirlitsins, bankastjórar og auðmenn sem hafa leikið almenning þessa lands illa skulu ekki halda að það sé að draga úr krafti mótmælanna. Það er af og frá," segir á vefsíðu samtakanna. 27.12.2008 14:37
Páll: Samfylkingin er skækja Samfylkingin hélt útsölu á stefnumálum sínum þegar hún myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, að mati Páls Magnússonar bæjarritara Kópavogs og formannskandídat í Framsóknarflokknum. Allt var falt fyrir völdin. ,,Hafi Framsóknarflokkurinn verið hækja, þá er Samfylkingin skækja," segir Páll í pistli á heimasíðu sinni. 27.12.2008 14:24
Rekstur björgunarskipa tryggður Rekstur björgunarskipa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hefur verið tryggður en um tíma leit út fyrir að 45 milljón króna skuld ríkisvaldsins myndi hugsanlega leiða til rekstrarstöðvunar skipanna. Félagið fékk 30 milljónir á fjáraukalögum. 27.12.2008 13:57
Flugeldasala hefst á morgun - bankatertan í boði Árleg flugeldasala Slysavarnafélagsins Landsbjörgar hefst á morgun. Flugeldasalan er stærsta, og um leið mikilvægasta, fjáröflun björgunarsveita en kostnaður við rekstur björgunarsveitar er mikill þrátt fyrir að allt starf sé unnið í sjálfboðavinnu. 27.12.2008 12:48
Stefna Samfylkingarinnar skýr í Evrópumálum Forysta Samfylkingarinnar hefur ekki umboð flokksins til að sækja um aðild að Evrópusambandinu, segir Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Varaformaður Samfylkingarinnar segir augljóst að umræddur þingmaður hafi ekki mætt á marga landsfundi Samfylkingarinnar. 27.12.2008 12:45
Laun Geirs lækka um 15% og þingmanna um 7,5% Laun forsætisráðherra lækka um tæp 15% um áramótin samkvæmt úrskurði Kjararáðs frá því í morgun. Laun þingmanna lækka um tæplega 7,5%. 27.12.2008 12:22
19 hross dauð 19 hross hafa nú drepist vegna salmónellusýkingar sem lagðist á stóð á Kjalarnesi í byrjun vikunnar. Þremur var lógað í gærkvöldi nótt og í morgun. 27.12.2008 12:08
Ríkisstjórnin sýnir ekki vilja til samstarfs Endurskoðun kjarasamninga á almennum markaði er í uppnámi en þeirri vinnu á að vera lokið fyrir 15. febrúar. Forsvarsmenn ASÍ telja að ríkisstjórnin sýni ekki vilja til samstarfs og eru ósáttir við fjárlögin. 27.12.2008 12:01
Hefur ekki tekið ákvörðun um formannsframboð ,,Ég hef ekki útlokað að gefa kost á mér en ég hef ekki tekið ákvörðun," sagði Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í útvarpsþættinum Vikulokin í aðspurður hvort hann hafi hug á að gefa kost sér til formennsku í Framsóknarflokknum. 27.12.2008 11:35
Skíðasvæðin á Dalvík, í Tindastóli og Hlíðarfjalli opin Í dag er skíðasvæðið á Dalvík opið frá klukkan 12 til 16. Þar er logn og milt veður. Skíðasvæðið í Tindastól er einnig opið til kl 16 í dag en þar er nægur og góður snjór. Þá eru tvær lyftur opnar í Hlíðarfjalli við Akueyri og verður opið klukkan 16 í dag. 27.12.2008 10:16
Efnahagsráðgjafi vegna fjárfestinga á Bretlandi Ríkisstjórnin ætlar að skipa sérstakan efnahagsráðgjafa sem falið verður að hafa yfirumsjón með fjárfestingum á Bretlandi sem fjármagnaðar voru af íslensku bönkunum. Þetta kemur fram breska dagblaðinu Daily Mail í dag. 27.12.2008 10:02
Varað við hálku á Vestfjörðum Vegagerðin varar við flughálku á Hálfdáni og á Kleifaheiði á Vestfjörðum og á Breiðdalsheiði á Austfjörðum. Á Steingrímsfjarðarheiði er krapi. 27.12.2008 09:42
Rólegt víða um land - líkamsársás á Húsavík Nóttin var með rólegast móti samkvæmt lögreglu víða um land og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Á Húsavík var maður handtekinn grunaður um líkamsárás og vinnur lögregla að rannsókn málsins. Sá sem varð fyrir fyrir árásinni er ekki talinn mikið slasaður. Hinn grunaði var vistaður í fangageymslu í nótt. 27.12.2008 09:35
Samfylkingin bíður Sjálfstæðisflokksins Ljóst er að Samfylkingin mun ekki gera breytingar á ráðherraliði sínu fyrr en eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn verður í lok janúar. 27.12.2008 08:30
Augnlæknar ætla í útrás Augnlæknastofan Sjónlag ætlar að markaðssetja starfsemi sína erlendis á næsta ári, jafnvel í samstarfi við tannlækni og lýtalækni, vegna þess hversu ódýrar aðgerðir eru vegna gengis krónunnar. Erlendir sjúklingar eru þegar farnir að koma til landsins í augnaðgerðir. 27.12.2008 07:30
Sýking líklega í yfirborðsvatni „Sextán hross eru dauð og sex til átta alvarlega veik,“ segir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis. 27.12.2008 06:30
Íslenskir stjórar tilnefndir Bankastjórar íslensku bankanna eru tilnefndir til „CEO overpaid award“ sem þýða mætti sem oflaunuðustu stjórnendurnir. Þetta kemur fram á vef Financial Times. 27.12.2008 05:00
Hlutafjárútboð á næsta ári „Við ætlum að fara í alþjóðlegt hlutafjárútboð á öðrum ársfjórðungi næsta árs og reynum að standa við það, hvort sem það verður í íslensku eða erlendu félagi,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, sem framleiðir tölvuleikinn Eve Online. 27.12.2008 04:00
Bærinn ekki tekið lán í tíu ár „Við höfum ekkert í hyggju að hækka útsvarið,“ segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness. 27.12.2008 03:30
Aðsókn í þjónustu kirkjunnar Kirkjusókn yfir hátíðarnar var mun meiri á höfuðborgarsvæðinu í ár en í fyrra að sögn sóknarpresta og prófasta sem Fréttablaðið talaði við. Gísli Jónasson, sóknarprestur í Breiðholtsprestakalli, segir að kirkjusókn hafi verið óvenju mikil alla aðventuna og hann hafi orðið var við meiri kirkjusókn frá því í haust. Jón Dalbú Hróbjartsson, segir aðsóknina í Hallgrímskirkju hafa verið enn meiri í ár en í fyrra þó ekki hafi hún verið dræm þá. 27.12.2008 03:15
Vinsælustu fréttir Vísis árið 2008 Árið 2008 fer líklega í sögubækurnar sem eitt viðburðarríkasta árið í sögu þjóðarinnar. Hvort fall Lehman brothers eða óhóflegar lánveitingar til tengdra aðila komu okkur í hóp með Simbabve og fleiri góðum er hinsvegar ekki vitað. 26.12.2008 10:19
Innheimta á 360 milljónir með gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu Ekki er búið að útfæra hvernig innheimta á 360 milljónir króna á næsta ári með ýmis konar gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu. Forsætisráðherra segir marga þeirra sem sækja þjónustu í heilbrigðiskerfinu við góða heilsu í grunninn, og geti staðið undir gjaldtökunni. 26.12.2008 18:30
Hefur verið í farbanni í 20 mánuði Hæstiréttur staðfesti í vikunni farbannsúrskurð héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er umfangsmikil efnhagsbrot. Maðurinn hefur verið í farbanni í 20 mánuði. 26.12.2008 18:30
Spennan magnast á milli Indverja og Pakistana Spennan virðist vera að magnast á milli kjarnorkuveldanna Indlands og Pakistans. Sagt var frá því fyrr í dag að indversk stjórnvöld hafi ráðið landsmönnum sínum frá því að fara yfir landamærin til Pakistans og nú berast fregnir af því að Pakistanski herinn sé að flytja sig í auknum mæli að landamærum ríkjanna. 26.12.2008 17:52
Ekið á hjólreiðamann á Sæbraut Umferðarslys varð nú fyrir stundu á gatnamótum Sæbrautar og Súðarvogs. Ekið var á hjólreiðamann og var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Ekki er vitað nánar um líðan mannsins en að sögn lögreglu var hann þó með meðvitund þegar sjúkrabíll kom á vettvang. 26.12.2008 15:28
Níunda lýðræðisgangan á Akureyri á morgun Á morgun klukkan 15.00 verður farin níunda lýðræðisgangan á Akureyri. Gengið verður að venju frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg. Á Ráðhústorgi verður tekið höndum saman og myndaður hringur. Síðan verður hugleitt í 10 mínútur um frið og samkennd. Guðrún Þórsdóttir forsvarsmaður göngunnar hvetur alla Akureyringa til að láta sjá sig. 26.12.2008 14:48
Spyr hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen Styrmir Gunnarsson skrifar merkilega grein í dag þar sem hann fjallar um evrópuumræðuna sem nú fer fram í Sjálfstæðisflokknum. Hann spyr m.a hvort við séum á leið til Munchen og vitnar til þess þegar Neville Chamberlain sneri sigri hrósandi heim til Bretlands frá Munchen með undirskrifað pappírblað frá Adolf Hitler sem átti að tryggja frið í heiminum. 26.12.2008 13:48
24 innbrot í höfuðborginni frá því á aðfangadag Sex innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt.Brotist var inn í Varmárskóla í Mosfellsbæ og Lauganesskóla í Reykjavík. Þá var brotist inn í fyrirtæki í Hafnarfirði og á heimili í Vatnsendahverfi í Kópavogi. 24 innbrot hafa verið skráð á höfuðborgarsvæðinu frá því á miðnætti á aðfangadag. 26.12.2008 12:20
Innanlandsflugið komið á fullt Innlandsflug er aftur komið á fullt eftir hátíðarnar. Ekkert var flogið í gær en í dag fara 16 vélar á vegum Flugélags Íslands frá Reykajvík til áfangastaða víðs vegar um landið. 26.12.2008 12:17
Hjón með fimm börn fluttu í leiguhúsnæði vegna myglusvepps Hjón með fimm börn sem þurftu að yfirgefa heimili sitt í Grindavík vegna myglusvepps héldu upp á fyrstu jólin í nokkur ár án veikinda. Myglusveppurinn var þess valdandi að fjölskyldan glímdi við margvísleg veikindi. 26.12.2008 12:12
Eyddi jólunum í að hjúkra veikum hrossum Eigendur hrossanna sem sýkst hafa af salmónellu í Mosfellsbæ hafa eytt stærstum hluta jólanna í að hjúkra hrossum sínum. Fjórtán hafa drepist og enn er tvísýnt með hátt í 30. Árni Páll Árnason þingmaður á tvö hross sem sýktust. 26.12.2008 12:09
Jeppi valt á Reykjanesbraut Lítill jeppi sem var á leið frá Reykjanesbæ til Hafnarfjarðar um ellefuleytið í gærkvöldi valt rétt við álverið í Straumsvík. Bílstjórinn missti stjórn á jeppanum sem var á rúmlega 80 kílómetra hraða en mikil hálka var á þessum vegarkafla í gærkvöldi. 26.12.2008 09:44
Fékk purusteik og pakka á spítalann Fimm börn hafa dvalið á Barnaspítala Hringsins í dag og fékk eitt þeirra fjölskylduna í heimsókn í gærkvöldi með purusteik og pakka. 25.12.2008 20:30
Bjart og úrkomulítið á morgun Á morgun verður víða bjart með köflum og úrkomulítið, þykknar upp og hvessir sunnan- og vestan til annað kvöld. 25.12.2008 20:00
Fjórtán hross dauð Fjórtán hross hafa drepist úr salmonellusýkingu í Mosfellsbæ og tuttugu og sex hross til viðbótar eru í gjörgæslu. Átta dýralæknar hafa í dag unnið að því að bjarga hrossunum. 25.12.2008 18:30
Messað á mörgum tungumálum í Reykjavík Messað var á mörgum tungumálum í dag. Fréttastofa fór í guðsþjónustu í Kristskirkju við Landakot í dag. Guðsþjónustan fór fram á pólsku en þrjár messur voru í kirkjunni í dag. Ein á íslensku, ein á ensku og ein á pólsku. 25.12.2008 18:30
Útsvar áfram lægst á Seltjarnarnesi Seltjarnarnes verður áfram með lægstu útsvarsprósentuna á nýju ári, þar sem útsvarið verður 1,18 prósentustigum lægra en þar sem það er hæst. 25.12.2008 18:45
Ferðamenn hissa á opnunartíma veitingastaða Erlendir ferðamenn sem fréttastofa ræddi í dag voru furðu lostnir yfir því að flestir veitingastaðir hafi verið lokaðir í gærkvöldi. 25.12.2008 18:44
Jóladagur rólegur hjá lögreglu og slökkviliði Dagurinn hefur verið með rólegasta móti víðast hvar um landið, að sögn lögreglu. Tíðindalítið hefur verið um að vera hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 25.12.2008 17:39
Íslendingar eru 319.756 talsins Undanfarin fjögur ár hefur fólksfjölgun verið óvenju mikil hér á landi. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 319.756 hinn 1. desember síðastliðinn samanborið við 312.872 ári áður. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 2,2% á einu ári. Þetta kemur fram í mannfjöldatölum Hagstofunar sem nýverið voru birtar. 25.12.2008 16:02