Fleiri fréttir

Metaðsókn í Fríkirkjuna í Reykjavík

Um þúsund manns komu í Fríkikjuna við Tjörnina á aðfangadagskvöld og fjölmargir urðu frá að hverfa í miðnæturguðsþjónustunni kl. 11.30.

Aftansöngur frá Grafarvogskirkju

Aftansöngur jóla frá Grafarvogskirkju var sendur beint út á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. Séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur þjónaði fyrir altari.

Fjöldi fólks hefur vitjað leiða ástvina í dag

Það fylgir jólahaldinu hjá mörgum að vitja leiða ættingja og vina í kirkjugörðum. Nokkur fjöldi hefur í dag lagt leið sína í kirkjugarðinn í Fossvogi og hefur veðrið verið með ágætu móti.

Kviknaði í gardínum

Eldur kviknaði í gardínum á heimili í Drápuhlíð rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Eldurinn átti upptök sín í kertaskreytingu. Að sögn slökkviliðsins var ekki um mikinn eld að ræða og var hann fljótlega slökktur. Íbúðin var jafnframt reykræst. Slökkvilið hefur jafnframt verið kallað út fjórum sinnum í dag vegna vatnsleka.

Ítarleg umfjöllun um Björk í New York Times

New York Times fjallar í dag ítarlega um stofnun fagfjárfestingasjóðsins Bjarkar sem rekinn verður af Auði Capital. Greint var frá sjóðnum í íslenskum fjölmiðlum fyrr í desember, en það er ekki daglegt brauð að íslenskir fjárfestar fái jafn jákvæða umfjöllun í erlendum stórblöðum og birtist í New York Times í dag.

Björgunarsveitin Sigurvon bjargaði báti á reki

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út í morgun vegna báts sem losnaði frá bryggju. Um var að ræða um 10 tonna trillu sem losnaði frá og rak í nærstadda báta.

Atvinnuleysisbætur hækka 1. janúar

Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur í samráði við forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra ákveðið að flýta hækkun atvinnuleysisbóta sem átti að koma til

Reykræsta þurfti hús á Laufásvegi

Slökkviliðið var kallað að Laufásvegi á áttunda tímanum í morgun þar sem pottur hafði gleymst á eldavél. Húsið var reykræst og að því búnu hvarf slökkviliðið á brott. Að sögn slökkviliðsmanna leggur mikinn óþef um hús þegar svona lagað gerist. Það kemur þó ekki í veg fyrir að íbúar hússins geti notið jólasteikarinnar þar í kvöld því að til eru sérstök tæki sem geta eytt lyktinni á örskammri stundu.

Heilbrigðisráðherra styrkir átta líknar- og stuðningsfélög

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að styrkja átta líknar- og stuðningsfélög sjúkra af því fé sem kom í hlut hans af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar. Þá ákvað ráðherra að styrkja Foreldrasímann með 500 þúsund króna framlagi.

Færð víða erfið

Ófært er yfir Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og Eyrarfjall, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Annars staðar á Vestfjörðum er víða hálka og hálkublettir. Á Suður- og Vesturlandi er greiðfært. Hálkublettir eru þó sumstaðar í uppsveitum.

Brotist inn í Brynju

Brotist var inn á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt, að sögn lögreglu. Brotist var inn í verslunina Brynju á Laugavegi á sjötta tímanum og þaðan stolið verðmætum handsmíðuðum hnífum. Einnig var brotist inn í Bónusvideo á Grundarstíg og í vinnuskúr við Víkurhvarf í Kópavogi.

Spáir íslenskri prentun

„Ég get lofað því að þetta eru síðustu jólin þar sem íslensku plöturnar eru prentaðar í Austurríki," segir Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður og útgefandi. Hann gefur út plötu sína Silfursafnið sem nú þegar hefur selst í um 13 þúsund eintökum eða meira en nokkur önnur fyrir þessi jól.

Björn forðast fréttamenn

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að miklu skipti fyrir fundarstaði ríkisstjórnarinnar að ráðherrar hafi rými þannig að þeir gangi ekki beint í flasið á fréttamönnum að loknum ríkisstjórnarfundum. Björn gerði fundarstaði ríkisstjórnarinnar að umfjöllunarefni í nýjustu færslu á vefsíðu sinni. Ríkisstjórnin fundaði í morgun í fundarsal forsætisnefndar Alþingis í þinghúsinu.

Tvenn málaferli líkleg vegna hryðjuverkalaga og áhlaups á Kaupþing

Forsætisráðherra telur líklegt að tvenn málaferli hefjist gegn breskum stjórnvöldum vegna hryðjuverkalaga og áhlaups á Kaupþing, áður en frestur til málaferla rennur út í janúar. Íslensk stjórnvöld hafa nýlega skrifað þeim bresku og krafist þess að hryðjuverkalögunum verði aflétt.

Sjö hross hafa drepist í Mosfellsbæ

Fjögur hross hafa drepist í hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ til viðbótar við þau þrjú sem þegar höfðu drepist þar. Tvö hross drápust í nótt en það fyrsta sem drapst fannst í haga þar sem fjörutíu hross voru í útigangi. Rannsóknir benda til þess að um salmonellusmits, en ekki er hægt að fullyrða það með vissu enn sem komið er.

Mótmælendur í jólafríi

Ríkisstjórnin, stjórnir Seðlabankans og Fjármáleeftirlitsins, bankastjórar og auðmenn sem hafa leikið almenning þessa lands illa skulu ekki halda að það sé að draga úr krafti mótmælanna. Það er af og frá. Reyndar er ætlunin að efla þau og styrkja ef eitthvað er. Þetta segir í tilkynningu frá Röddum fólksins sem hafa staðið að mótmælum ellefu laugardaga í röð.

Laun Landsbankastjóra lækka um 450 þúsund

Laun Elínar Sigfúsdóttir, bankastjóra Landsbankans, hafa verið lækkuð úr 1950 þúsund krónum á mánuði í 1500 þúsund. Þá hefur hún áfram afnot af Bensbifreið sem skráð er á bankann.

Aftansöngur í beinni frá Grafarvogskirkju á aðfangadag

Stöð 2, Bylgjan og Vísir verða með beina útsendingu í opinni dagskrá frá aftansöng í Grafarvogskirkju á aðfangadag. Stöð 2 hefur boðið landsmönnum uppá þessa kærkomnu þjónustu undanfarin ár við einstaklega góðar viðtökur. Sem endranær mun séra Vigfús Þór Árnason sjá um athöfnina og hefst beina útsendingin um leið og kirkjuklukkur hringja inn jólin klukkan sex.

Ólíklegt að breytingar verði á ríkisstjórninni

Ólíklegt er að breytingar verði gerðar á ríkisstjórn á næstunni. Geir H. Haarde forsætisráðherra útilokar að ráðherrum Sjálfstæðisflokks verði skipt út um áramótin og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra telur eðlilegt að stjórnarflokkarnir fylgist að í þessum efnum. Ingibjörg Sólrún sagðist þó í dag telja fulla þörf á að skoða möguleg ráðherraskipti.

Útför frú Halldóru á vegum ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að útför frú Halldóru Eldjárn, fyrrverandi forsetafrúar, fari fram á vegum ríkisstjórnarinnar. Þetta var ákveðið í samráði við fjölskyldu frú Halldóru.

Búist við mikilli umferð við kirkjugarða

Búast má við talsverðri umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þung umferð um alla borg

Að sögn lögreglu er gríðarlega þung umferð á höfuðborgarsvæðinu nú þegar fólk er á síðustu metrunum í jólainnkaupunum. Umferðin hefur þó gengið slysalaust fyrir sér en lögregla skorar á ökumenn að fara sér hægt og láta þolinmæðina ráða ferðinni.

Starfsmenn Lyfja og heilsu gáfu 1,5 milljón

Starfsfólk Lyfja og heilsu ákvað að þiggja ekki jólagjafir frá fyrirtækinu þetta árið og þess í stað var ákveðið að gefa andvirði jólagjafa til þeirra sem þyrftu á aðstoð að halda.

Hanna Birna úthlutaði úr forvarnasjóði

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, úthlutaði í dag styrkjum úr forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar til 12 verkefna og nemur heildarupphæðin um 25.550.000. Alls bárust 88 umsóknir.

Hugnast ekki fækkun bæjarfulltrúa

Þorvaldur Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Árborgar, gefur ekki mikið fyrir tillögur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarfélaginu sem lögðu til í gær að bæjarfulltrúum verði fækkað úr níu í sjö og að bæjarstjóri þiggi ekki laun sem bæði bæjarstjóri og bæjarfulltrúi. Þorvaldur telur meiri þörf vera á að auka lýðræði heldur en að draga úr því.

Rúmlega 600 milljónir í vexti vegna Impregilomáls

Eins og Vísir sagði frá fyrr í dag felldi Héraðsdómur Reykjavíkur dóm í máli Impregilo gegn íslenska ríkinu í morgun. Verktakafryrirtækið höfðaði mál á hendur ríkinu vegna vangoldinnar greiðslu á opinberum gjöldum. Lögmaður Impregilo segist ánægður með niðurstöðuna enda hafi verið fallist á allar kröfur stefnanda. Ríkið var dæmt til þess að greiða þær rúmu 1.230 milljónir sem Impregilo fór fram á. Auk þess þarf ríkið að greiða dráttarvexti á bilinu 600-700 milljónir króna.

Vilja fækka bæjarfulltrúum í Árborg

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Árborg lögðu til í bæjarstjórn í gær að bæjarfulltrúum yrði fækkað úr níu í sjö. Slíkt er heimilt samkvæmt lögum. Einnig lögðu þeir til að bæjarstjóri þiggi ekki laun sem bæði bæjarstjóri og bæjarfulltrúi.

Yfir 6700 manns þurfa jólaaðstoð

Síðasti úthlutunardagur jólaaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, Reykjavíkurdeildar RKÍ og Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er í dag Heildarfjöldi afgreiddra umsókna var 2.691 og gert er ráð fyrir 2,5 einstaklingum á bak við hverja umsókn sem þýðir að yfir 6700 einstaklingar njóta aðstoðar félagasamtakanna.

Jafnréttisþing haldið í janúar

Jafnréttisþingi sem var frestað í haust verður haldið 16. janúar í Hótel Nordica. Það eru félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð sem boða til þingsins í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á þinginu.

Öðrum kókaínsmyglaranum sleppt

Ekki verður krafist frekara gæsluvarðhalds yfir kókaínsmyglara sem handtekinn var í Leifsstöða 16.desember sl. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út í dag og verður honum sleppt. Annar maður sem tekinn var með rúmt kíló af kókaíni og talinn er tengjast þessum manni verður hinsvegar í gæsluvarðhaldi til 7.janúar.

Ingibjörg: Engar breytingar á ráðherraliðinu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að engar breytingar verði gerðar á ráðherraskipan flokksins fyrir áramót. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Auk þess taldi Ingibjörg Sólrún hverfandi líkur á því að gerðar verði nokkrar breytingar á ráðherraliði flokksins á næstunni.

Tvö hross drápust í Mosfellsbæ

Tvö hross drápust í hesthúsahverfnu í Mosfellsbæ í gærkvöldi og nótt, til viðbótar við það sem fannst dautt í haga á Kjalarnesi á sunnudag. Tæplega fjörutíu hross voru þar á útigangi og reyndust mörg illa haldin.

Sveltum svínið - mótmælt við Bónusverslanir í dag

Aðgerðahópurinn Sveltum svínið stendur fyrir mótmælum í Bónusverslunum í dag. Markmiðið er að fylla búðirnar á annasamasta degi ársins, af fólki sem ætlar bara að skoða. Mótmælendum var boðið að mæta til fundar við framkvæmdastjóra Bónuss í morgun en enginn mætti.

Páll Hreinsson skipaður í rannsóknarnefnd um bankahrunið

Páll Hreinsson hæstaréttardómari hefur verið skipaður í rannsóknarnefnd um bankahrunið og verður hann formaður nefndarinnar. Alþingi skipar í nefndina og Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, hefur þegar verið skipaður. Í lögum er greint á um að nefndina skipi umboðsmaður Alþingis, hæstaréttardómari og háskólamenntaður sérfræðingur.

Fjölgar um 1600 nema í HÍ eftir áramót

Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í gær að afgreiða umsóknir um grunnnám og framhaldsnám á vormisseri 2009, en umsóknarfrestur rann út 15. desember. Alls bárust 1624 umsóknir.

Sjá næstu 50 fréttir