Bærinn ekki tekið lán í tíu ár 27. desember 2008 03:30 jónmundur guðmarsson „
Við höfum ekkert í hyggju að hækka útsvarið," segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness. Alþingi samþykkti rétt fyrir jól heimild til hækkunar á útsvari um 0,25 prósent, úr 13,03 prósentum í 13,28 prósent. Seltjarnarnes hefur undanfarið verið með lægsta útsvarið á höfuðborgarsvæðinu og „þótt víðar væri leitað" segir Jónmundur, eða 12,10 prósent. Seltjarnarnes hefur jafnframt lækkað útsvar tvisvar á síðustu fjórum árum. Í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár er gert ráð fyrir óbreyttum fasteignasköttum, engin hækkun verður á gjaldskrám og engin hækkun á útsvarinu. Seltjarnarnes hefur ekki orðið illa úti í efnahagsörðugleikunum að sögn Jónmundar. „Við höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að taka ekki lán síðustu tíu árin og nýtt tekjuafgangana vel," segir Jónmundur. Miklir fjármunir Seltjarnarnesbæjar voru í gömlu bönkunum. Hins vegar fóru menn þar tryggari leið og voru ekki með eina einustu krónu í peningamarkaðssjóðunum heldur lögðu tekjuafgang sveitarfélagsins á venjulega bankabók með þeim afleiðingum að ekki króna tapaðist, að sögn Jónmundar. Sveitarfélagið skuldar einnig lítið, eða um 300 milljónir króna og fóru því ekki illa út úr gengishruni krónunnar, segir Jónmundur. „Markmiðið er að bjóða óbreytt lífskjör án þess að þyngja skattbyrði íbúanna," segir Jónmundur að lokum.- vsp
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Sjá meira