Fleiri fréttir

Dæmdar fyrir að misþyrma kynsystur sinni

Þrjá stúlkur allar innan við tvítugt voru dæmdar í Hérðasdómi Reykjavíkur í morgun fyrir hrottalega árás á jafnöldru sína. Meðal annars stungu þær sígarettu í líkama hennar og neyddu hana til að borða sígarettuna.

Útilokar ekki frekari skattahækkanir

Nú rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi í Alþingishúsinu þar sem fjárlagafrumvarpið var kynnt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Geir H. Haarde og Árni Mathiesen ræddu við fjölmiðla. Geir útilokaði ekki að skattar yrðu hækkaðir frekar en samkvæmt frumvarpinu verður tekjuskattur hækkaður um 1 prósentustig.

Tekjuskattur verður hækkaður um eitt prósentustig

Tekjuskattur hækkar um 1 prósentustig auk heimildar til hækkunar á útsvari. Með þessum og fleiri aðgerðum mun halli ríkissjóðs verða 165 – 170 milljarðar króna en hefði að óbreyttu geta orðið u.þ.b. 215 milljarðar.

N1 lækkar verð á sjö þúsund vörutegundum

Olíufélagið N1 hefur lækkað verð á yfir sjö þúsund vörutegundum hjá sér í morgun auk þess sem eldsneytisverð hjá fyrirtækinu hefur enn einu sinni lækkað. Lækkanirnar ná að sögn til fjölmargra vöruflokka en bensínlítrinn lækkaði um tvær krónur í morgun og dísellítrinn lækkaði um fjórar krónur.

Hver Grímseyingur fær 45.000 kr. frá samgönguráðherra

Grímseyingar fá langhæsta framlag á mann í úthlutun samgönguráðherra á 250 milljónum króna vegna samdráttar í aflamarki á þorski á árinu. Rösklega 45 þúsund krónur koma í hlut hvers íbúa í Grímsey.

Hross á röltinu á Selfossi

Sex hross brugðu sér í kaupstað í nótt, sprönguðu um götur Selfoss og hópuðust saman við pósthúsið, líkt og þau ættu erindi þangað.

Stálu fjórum stórum flatskjám í innbroti

Brotist var inn í verslunina Öreind í Kópavogi í nótt og þaðan meðal annars stolið fjórum stórum flatskjám. Þjófarnir komust undan á bíl og eru þeir ófundnir. Vitni að innbrotinu segir að mennirnir hafi talað saman á erlendu tungumáli.

Breytingar á mótmælum - Þögn í 17 mínútur

Engar ræður verða fluttar á mótmælunum á Austurvelli næstkomandi laugardag. Þess í stað verður fólk hvatt til að líta til Alþingishússins, lúta höfði og hafa þögn í nákvæmlega 17 mínútur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herði Torfasyni.

Vinnubrögð Sigrúnar Elsu og Sóleyjar sérkennileg

Óskar Bergsson, formaður framkvæmda- og eignaráðs Reykjavíkur, segir að sér komi á óvart á að sama tíma og meirihlutinn í borgarstjórn bjóði minnihlutanum upp á að vinna að fjárhagsætlun með sér skuli fulltrúar minnihlutans rísa upp í miðri vinnu og gefa út yfirlýsingu líkt og gert var í dag.

ESB-aðild skipti sköpum fyrir Svía

Íslenska bankakreppan er mun alvarlegri og dýpri en sú sem Svíar gengu í gegnum í byrjun síðasta áratugar að mati Göran Person, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Hann segir að Evrópusambandsaðild hafi skipt sköpum fyrir Svía til að vinna bug á kreppunni.

Iðnnám er komið í tísku

Metaðsókn er í kreppunni í stærstu iðnskóla landsins. 1350 nemar innrituðust í Verkmenntaskólann á Akureyri síðastliðið haust og höfðu þeir aldrei verið fleiri. En það var þó fyrir kreppu og fækkar alla jafna á vorönn. En nú er öldin önnur.

Þremur bjargað úr Akstaðaá

Þremur karlmönnum var fyrir stundu bjargað úr bifreið sem sat föst í Akstaðaá á Þórsmerkurleið. Mennirnir gátu hringt eftir aðstoð og fengu þeir fyrirmæli að halda kyrru fyrir í bílnum þar til aðstoð bærist, sem þeir og gerðu.

Vilja mannaflsfrekar framkvæmdir

Stjórn Stéttarfélags Vesturlands lýsir yfir þungum áhyggjum af hratt versnandi atvinnuástandi á félagssvæði sínu. Stjórnin vill að ríkisstjórnin ráðast í mannaflsfrekar framkvæmdir.

Rannsókn lögreglu á amfetamínverksmiðju gengur vel

Rannsókn á amfetamínverksmiðju í Hafnarfirði gengur að sögn lögreglu vel. Þrír karlar sátu um tíma í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins en tveir þeirra afplána nú dóma vegna annarra mála og sá þriðji er laus úr haldi.

Leikskólakennarar neyðast til að skrifa undir

Félag leikskólakennara og launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær. Samkomulagið felur í sér 20.300 króna hækkun grunnlauna. Félag tónlistarkennara skrifaði einnig undir samskonar samning í gær.

Andlátstilkynning kærð til lögreglu

Fangelsismálastofnun hefur kært andlátstilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í blaðinu er sagt frá andláti Hákons Rúnars Jónssonar og hann sagður hafa látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningingsnúmer.

Alþingi samþykkir breytingar á húsnæðismálalögum

Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um breytingu á lögum um húsnæðismál. Lögin veita heimild fyrir því að lengja lánstíma lána vegna greiðsluerfiðleika í allt að 30 ár í stað 15 ára og hámarkslánstími hjá Íbúðarlánasjóði er lengdur úr 55 árum í 70 ár.

Krefjast réttlætis vegna peningamarkaðssjóða

Baráttuhópur sem berst fyrir því að fá tap sitt í peningabréfum Landsbanka bætt, hefur opnað vefsíðuna www.rettlaeti.is. Meðlimir hópsins, sem eru um fimm hundruð talsins, krefjast þess að innistæður þeirra séu tryggðar líkt og annarra sparifjáreigenda. Þeir hafa gefið stjórnvöldum frest til fimmtánda desember til að koma til viðræðna við sig um úrbætur. Að öðrum kosti verði gripið til aðgerða.

Fullyrða að ekki sé forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra framkvæmda

Meirihluti borgarstjórnar vinnur ekki eftir þeirri yfirlýstu stefnu sinni að nýta fyrirhugaða 6 milljarða lántöku borgarinnar í mannaflsfrekar framkvæmdir til að styðja við atvinnustig. Þetta segja Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.

Velferðasvið og SÁÁ undirrita samning um búsetuúrræði

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur gert samning við SÁÁ vegna búsetuúrræðis með félagslegum stuðningi við áfengis- og vímuefnaneytendur í bata. Stella Kr. Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, undirrituðu samninginn í dag.

Fríkirkjan sjónvarpar frá útför Rúnars Júlíussonar

Útför Rúnars Júlíussonar tónlistarmanns verður sýnd í beinni í Fríkirkjunni í Reykjavík og í Duus-húsum í Reykjanesbæ. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur segist telja að um nýbreytni sé að ræða.

Halldór móti tillögur um aðstoð til Íslendinga

Samstarfsráðherrar Norðurlandanna hafa ákveðið að fela Halldóri Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, að móta tillögur um aðgerðir sem eiga að koma Íslendingum til aðstoðar í þeirri fjármálakreppu sem nú stendur yfir. Þetta var ákveðið á fundi ráðherranna sem haldinn var í Kaupmannahöfn í dag.

Björgvin vissi ekki um eignarhlut Baldurs í Landsbankanum

Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu gerði Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra ekki grein fyrir því að hann væri hluthafi í Landsbankanum áður en hann sat fund ásamt viðskiptaráðherra með Alistair Darling fjármálaráðherra Breta.

Flestir treysta Jóhönnu

Flestir Íslendinga, eða 64%, segjast bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem unnin var af MMR.

Eru til upptökur af viðvörun Davíðs til ráðherra?

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingar, segir ljóst að Davíð Oddsson seðlabankastjóri verði að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi samtöl hans við ráðherra í ríkisstjórninni. Á fundi viðskiptanefndar sagðist Davíð hafa varað ráðherra við að núll prósent líkur væru á því að bankarnir myndu lifa af í aðsteðjandi erfiðleikum. Þessi viðvörun gæti hafa verið hljóðrituð.

Þrettán þúsund króna hrekkur í Morgunblaðinu

Það kostar rúmar 13 þúsund krónur að fá dánartilkynningu birta í Morgunblaðinu, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, auglýsingastjóri blaðsins. Í morgun birtist tilkynning um að Hákon Rúnar Jónsson væri látinn.

Viðgerð lokið hjá Vodafone

Viðgerð er lokið á GSM kerfi Vodafone og GSM samband er því aftur komið í eðlilegt horf á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá Vodafone var beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem truflanirnar kunni að hafa valdið.

Ófært að miða hlunnindaskatt miðað vð bílverð í dag

Það er algjörlega ófært og í andstöðu við stefnu ríkisstjórnar, um að koma til móts við heimilin í landinu, að uppreikna hlunnindaskatt af bifreiðum miðað við verðlista bifreiðaumboðana eins og hann er í dag. Þetta segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins,

Fregnir af andláti fanga stórlega ýktar

Undarlegt mál er komið upp í fangelsinu á Litla - Hrauni en í Morgunblaðinu í dag er sagt frá andláti Hákons Rúnars Jónssonar, refsifanga. Hákon er sagður hafa látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningingsnúmer. Þetta kom forsvarsmönnum Litla - Hrauns í opna skjöldu enda amar ekkert að Hákoni.

Útilokar ekki formannsframboð

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi félagsmálaráðherra, útilokar ekki framboð til formanns á flokksþingi sem fram fer í janúar.

Skilorð fyrir að skalla mann í andlitið

Karlmaður var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann í andlitið svo af hlaust opinn skurður sem náði inn að beini. Héraðsdómur Suðurlands koms að þessari niðurstöðu og tekur dómurinn mið af því að tæp tvö ár eru liðin frá atvikinu og auk þess var skýrsla ekki tekin af hinum ákærða fyrr en einu ári eftir árásina. Ákæran var síðan ekki gefin út fyrr en tæpum tveimur árum eftir árásina og var sá dráttur sem orðið hefur á málsmeðferð ekki skýrður af ákæruvaldinu.

Klukkan á Lækjartorgi komin aftur

Undanfarinn mánuð hafa margir saknað klukkunnar á Lækjartorgi sem sett hefur svip sinn á bæinn síðan árið 1929. Ekið var á klukkuna í sumar með þeim afleiðingum að hún stöðvaðist og var hún tekin niður í byrjun nóvember og sett í viðgerð. Nú er klukkan komin á sinn gamla stað, ný máluð og með gangverkið í lagi.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína

Liðlega fertugur karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína inni á salerni að heimili þeirra, gripið um hálsinn á henni, þrengt að og þrýst henni ofan i baðkarið með þeim afleiðingum að hún hlaut

Bílasala hrunin

Þrjátíu og tvö ökutæki voru nýskráð í fyrstu vinnuviku desembermánaðar í ár en á sama tímabili í fyrra voru þau 471. Hlutfall nýskráðra ökutækja í þessari viku er því aðeins 6,8% af þeim fjölda sem var nýskráður á sama tíma í fyrra.

Ísland einn af vinsælustu ferðamannastöðunum 2009

Ísland verður einn af vinsælustu ferðamannastöðum næsta árs að mati breska blaðsins Times. Mikill áhugi sé á landinu eftir að kreppan skall á. Á Google hafi leit að ferðum til Íslands til dæmis aukist um sextíu prósent á síðustu tveimur mánuðum, og megnið af umferðinni sé komin frá Bretlandi.

Neysluútgjöld hækkuðu um 7,7%

Neysluútgjöld á heimili árin 2005-2007 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2004-2006 og voru tæpar 396 þúsund krónur á mánuði, eða 165 þúsund krónur á mann.

Sjá næstu 50 fréttir