Misræmi í fullyrðingum Björgvins og aðstoðarmanna 10. desember 2008 20:53 Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytisins.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, og aðstoðarmenn hans greinir verulega á um þegar kemur að málefnum endurskoðunarfyrirtækisins KPMG og gamla Glitnis. Frá því var greint í Kastljósi í gær að Björgvin hefði ekki vitað að KPMG hefði í tæpa tvo mánuði rannsakað viðskipti gamla Glitnis. Björgvin var gestur í Kastljósi í kvöld þar sem umfjöllun um málið var haldið áfram. Í þættinum kom fram að Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytisins, veitti Kastljósi þær upplýsingar ítrekað í gær að Björgvin hafi ekki vitað um úttekt KPMG á Glitni. Auk þess vitnaði Kastljós í frétt Vísis frá því í gærkvöldi þar sem rætt var við Jón Þór Sturluson, aðstoðarmann Björgvins. Þar hélt Jón því fram að viðskiptaráðherra hafi vitað að rannsókninni en ekki hvaða fyrirtæki væri að vinna fyrir hvaða banka. Þóra Tómasdóttir spurði Björgvin út í málið í kvöld sem sagðist ekki vita af hverju misræmis gætti í orðum hans og aðstoðarmanna hans. Björgvin sagðist hafa vitað í október af því þegar Fjármálaeftirlitið réð þrjár endurskoðunarskrifstofur til að vinna úttektirnar fyrir gömlu bankanna. ,,Ég sá það bara á blaði hverja þeir höfðu ráðið og velti því svo sem ekkert meira fyrir mér. Við ræddum það aldrei neitt sértaklega í ráðuneytinu." Aðspurður um orð Jóns Þórs á Vísi í gær sagði Björgvin: ,,Það var það sem hann hélt enda ræddum við það aldrei. Hann hefur bara gefið sér það. Ég vissi í október hvaða fyrirtæki skoðaði hvaða banka." Gagnrýnt hefur verið að KPMG hafi verið fengið til að vinna verkefnið fyrir Glitni en KPMG er endurskoðandi margra stærstu eiganda gamla Glitnis. Björgvin sagðist hafa komist af hagsmunatengslum KPMG og Glitnis í fyrradag. ,,Mér var einfaldlega ekki ljóst um hagsmunatengslin. Ekki frekar en formanni stjórnar Fjármálaeftirlitsins sem ég ræddi við í morgun." Í dag sagði KPMG sig frá úttektinni á gamla Glitni.
Tengdar fréttir Björgvin vissi af úttekt á gömlu bönkunum Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi að verið væri að vinna úttekt á ákveðnum atriðum í aðdraganda bankahrunsins, að sögn Jóns Þórs Sturlusonar aðstoðarmanns Björgvins. Aftur á móti hafði hann ekki vitneskju um hvaða endurskoðunarfyrirtæki var að vinna fyrir hvaða banka. 9. desember 2008 21:05 KPMG vill fá óháðan aðila til að skoða störf sín fyrir Glitni KPMG vill að fenginn verði sérstakur óháður aðili til að rannsaka störf sín fyrir Glitni. Fjármáleftirlitið fól skilanefndum gömlu bankanna að ráða óháðan aðila til að kanna ákveðin skilgreind atriði í aðdraganda bankahrunsins. 9. desember 2008 17:05 Vissi ekki um úttekt KPMG fyrr en í gær Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi ekki fyrr en í gær að ráðgjafafyrirtækið KPMG hefði verið fengið til þess að sinna verkefnum fyrir skilanefnd gamla Glitnis í kjölfar bankahrunsins. Þetta var fullyrt í fréttaskýringu í Kastljósi fyrr í kvöld. 9. desember 2008 20:05 KPMG segir sig frá rannsókn á Glitni Endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur óskað eftir því við skilanefnd Glitnis að það verði leyst undan því verkefni að rannsaka gamla Glitni í aðdraganda bankahrunsins. Gagnrýni hefur komið fram um að KPMG sé vanhæft í rannsókninni þar sem margir af helstu eigendum Glitnis hafi verið í viðskiptum við KPMG. Þessu hafnar fyrirtækið en segir ljóst að vinnufriður verði aldrei nægjanlegur og hætta sé á að allar niðurstöður verði gerðar tortryggilegar. 10. desember 2008 12:14 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira
Björgvin vissi af úttekt á gömlu bönkunum Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi að verið væri að vinna úttekt á ákveðnum atriðum í aðdraganda bankahrunsins, að sögn Jóns Þórs Sturlusonar aðstoðarmanns Björgvins. Aftur á móti hafði hann ekki vitneskju um hvaða endurskoðunarfyrirtæki var að vinna fyrir hvaða banka. 9. desember 2008 21:05
KPMG vill fá óháðan aðila til að skoða störf sín fyrir Glitni KPMG vill að fenginn verði sérstakur óháður aðili til að rannsaka störf sín fyrir Glitni. Fjármáleftirlitið fól skilanefndum gömlu bankanna að ráða óháðan aðila til að kanna ákveðin skilgreind atriði í aðdraganda bankahrunsins. 9. desember 2008 17:05
Vissi ekki um úttekt KPMG fyrr en í gær Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi ekki fyrr en í gær að ráðgjafafyrirtækið KPMG hefði verið fengið til þess að sinna verkefnum fyrir skilanefnd gamla Glitnis í kjölfar bankahrunsins. Þetta var fullyrt í fréttaskýringu í Kastljósi fyrr í kvöld. 9. desember 2008 20:05
KPMG segir sig frá rannsókn á Glitni Endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur óskað eftir því við skilanefnd Glitnis að það verði leyst undan því verkefni að rannsaka gamla Glitni í aðdraganda bankahrunsins. Gagnrýni hefur komið fram um að KPMG sé vanhæft í rannsókninni þar sem margir af helstu eigendum Glitnis hafi verið í viðskiptum við KPMG. Þessu hafnar fyrirtækið en segir ljóst að vinnufriður verði aldrei nægjanlegur og hætta sé á að allar niðurstöður verði gerðar tortryggilegar. 10. desember 2008 12:14