Krefjast réttlætis vegna peningamarkaðssjóða 10. desember 2008 16:11
Baráttuhópur sem berst fyrir því að fá tap sitt í peningabréfum Landsbanka bætt, hefur opnað vefsíðuna www.rettlaeti.is. Meðlimir hópsins, sem eru um fimm hundruð talsins, krefjast þess að innistæður þeirra séu tryggðar líkt og annarra sparifjáreigenda. Þeir hafa gefið stjórnvöldum frest til fimmtánda desember til að koma til viðræðna við sig um úrbætur. Að öðrum kosti verði gripið til aðgerða. Eigendur peningabréfa Landsbankans töpuðu um þriðjungi innistæðu sinnar þegar bankarnir féllu. Hópurinn leggur til að tapið verði bætt til dæmis með inneign á verðtryggðum reikningum, hlutabréfum í Nýja Landsbankanum, skattaafslætti eða skuldajöfnun. Fólkið segir að það hafi eindregið verið hvatt til þess að velja þessa ávöxtunarleið og krefst meðal annars rannsóknar á markaðssetningu peningabréfa, á fjármagnsútstreymi úr sjóðnum fyrir gjaldþrot og hvernig fjárfestingarstefnu sjóðsins hafi verið breytt án þess að það hafi verið kynnt eigendum bréfanna. Hópurinn segir sparnað í peningabréfum ekkert frábrugðinn öðrum sparnaði. Það fólk sem hafi tapað á þeim sé af ýmsum toga, öryrkjar sem geymdu bætur, ellilífeyrisþegar sem höfðu sparað lengi eða selt fasteignir, launþegar sem hafi lagt fyrir hluta af launum, einstaklingar sem höfðu fengið arf, ungt fólk að safna fyrir námi eða íbúðarkaupum og fyrirtæki sem geymdu rekstrar- eða varasjóði sína í bréfunum. Þá hafi margir notað bréfin til að geyma hagnað af fasteignakaupum meðan beðið var eftir að kaupa nýja. Sumir hafi einnig haft fyrirætlanir um að greiða niður skuldir með bréfunum, en þær ávaxtist nú hratt hjá sömu bönkum og seldu bréfin. „Það sem fólk innan baráttuhópsins á sameiginlegt er að hafa ekki eytt um efni fram heldur lagt fjármuni sína til hliðar og leitað öruggrar ávöxtunarleiðar og geymslu fyrir fé sitt," segir í tilkynningu frá hópnum. „Þetta fólk eru skattgreiðendur og eru í sama hópi og þeir sem þurfa nú að taka á sig allar þær byrðar sem fylgja kreppunni."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira