Innlent

Hver Grímseyingur fær 45.000 kr. frá samgönguráðherra

Frá Grímsey.
Frá Grímsey.

Grímseyingar fá langhæsta framlag á mann í úthlutun samgönguráðherra á 250 milljónum króna vegna samdráttar í aflamarki á þorski á árinu. Rösklega 45 þúsund krónur koma í hlut hvers íbúa í Grímsey.

Næstmest fá íbúar Höfðahrepps, liðlega 20 þúsund krónur, en hæstu heildarupphæðina fær Grindavíkurbær, 35 milljónir króna. Í öðru sæti er Vestmannaeyjabær með röskar 24 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×