Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dregið úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði Ríkisútvarpið mun fá tæplega þrjá komma sjö milljarða króna á ári með innheimtu nefskatts samkvæmt frumvarpi menntamálaráðherra. Tekjur Ríkisútvarpsins aukast við þetta um rúmar 600 milljónir króna á ári. Á móti verður dregið úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. 9.12.2008 19:30
Vegagerðin varar við hálku Talsverð hálka er er í öllum landshlutum og getur hún verið afar varasöm þar sem hiti er yfir frostmarki. 9.12.2008 21:55
Eftirlaunafrumvarp VG tekið til umræðu Frumvarp þingflokks Vinstri grænna um að afnema sérréttindi æðstu embættismanna sem kveðið er á um í hinum umdeildu eftirlaunalögum verður tekið til umræðu á Alþingi í kvöld. 9.12.2008 19:57
Öryggisgæsla hert á Alþingi í kjölfar átaka Öryggisgæsla hefur verið hert á Alþingi eftir að til átaka kom milli mótmælenda og þingvarða í þinghúsinu í gær. Þingpallarnir voru þó opnir almenningi í dag. 9.12.2008 18:58
Forsvarsmenn Samherja útiloka ekki ESB-aðild Forsvarsmenn Samherja útiloka ekki lengur aðild að Evrópusambandinu. Þeir segja gengisflöktið erfitt nú um stundir og ætla að skila áliti um bandalagið í næsta mánuði. 9.12.2008 18:41
Vissi ekki um úttekt KPMG fyrr en í gær Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi ekki fyrr en í gær að ráðgjafafyrirtækið KPMG hefði verið fengið til þess að sinna verkefnum fyrir skilanefnd gamla Glitnis í kjölfar bankahrunsins. Þetta var fullyrt í fréttaskýringu í Kastljósi fyrr í kvöld. 9.12.2008 20:05
Sýking í síld meiri en talið hafði verið Útbreiðsla ichtiophonus-sýkingar í íslensku síldinni er meiri en talið hafði verið. Ástand síldarstofnsins við Suðvesturland er afar slæmt en sníkillinn hefur lagst á um 70% stofnsins þar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 9.12.2008 19:35
Líkt og hús sé keypt án vitneskju um kostnað og stærð Formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis treysti sér ekki til að samþykkja þingsályktunartillögu stjórnarflokkanna sem gefur stjórnvöldum víðtæka heimild til að semja um innistæðureikninga í íslensku bönkunum erlendis. 9.12.2008 19:30
Rúmlega 3000 lóðir óseldar Vel á þriðja þúsund lóðir standa tilbúnar fyrir gröfurnar á höfuðborgarsvæðinu en seljast ekki. Reykvískur læknir leggur til að sveitarfélögin snúi vörn í sókn og leigi lóðirnar út til matjurtaræktunar. 9.12.2008 19:02
Óttast að missa völd samhliða aðildarviðræðum Hagsmunasamtök útgerðarmanna virðast hrædd við að missa valdastöðu verði gengið til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu og loka augunum fyrir tækifærunum, segir sérfræðingur í sjávarútvegsmálum sambandsins. Við höldum áfram að skoða ýmsar hliðar á Evrópusambandsmálum. 9.12.2008 18:49
Mun afla gagna með tiltækum ráðum Skattrannsóknarstjóri hyggst leita annara leiða til að afa gagna um félag sem stofnað var í Lúxemborg en er í eigu Íslendinga. Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, skrifaði skilanefndum gömlu bankanna bréf þar sem hún óskaði eftir aðgangi að gögnunum. Tvær skilanefndir höfnuðu beiðninni og ein svaraði henni ekki. 9.12.2008 17:44
Ekkert díoxínkjöt á Íslandi Ekkert írskt, díoxínmengað svínakjöt er til sölu hér á landi samkvæmt athugun Matvælastofnunar. 9.12.2008 17:32
Laun borgarfulltrúa lækka Laun borgarfulltrúa munu lækka, samkvæmt samþykktum forsætisnefndar borgarstjórnar, nái frumvarp um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins fram að ganga. Hið sama gildir um aðra sem sitja í nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Ólafur Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar. 9.12.2008 17:10
Fíkniefni fundust á Álftanesi Fíkniefni fundust við húsleit á Álftanesi í gærkvöld. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á þýfi. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins, eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni. 9.12.2008 17:03
Eldur í Listasafni Íslands Eldur kom upp í Listasafni Íslands á fimmta tímanum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn enda væri tjón af völdum mikils elds á safninu gríðarlegt. 9.12.2008 16:30
Geir: Eðlilegt að greiða fyrir störfum skattrannsóknarstjóra Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, spurði forsætisráðherra að því í óundirbúnum fyrirspurnatíma hvort stjórnvöld ætli að láta það gerast að lykilgögn um stöðu íslensku bankanna sem er að finna á útibúum og dótturfyrirtækjum þeirra í Lúxemborg gangi yfirvöldum úr höndum verði fyrirtækin seld. Steingrímur vísaði meðal annars til hádegisfrétta Ríkisútvarpsins þar sem greint var frá því að skilanefndir bankanna hafi neitað skattrannsóknarstjóra um gögn frá Lúxemborg. Geir segir eðlilegt að greiða fyrir því að skattrannsóknarstjóri vinni sín störf. 9.12.2008 14:55
Óeirðir við Ráðherrabústaðinn (myndskeið) Tveir mótmælendur voru handteknir við Ráðherrabústaðinn í morgun líkt og áður hefur verið greint frá. Ráðherrar gengu inn í bústaðinn í lögreglufylgd og bústaðurinn var girtur af. Myndatökumenn Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis voru að sjálfsögðu á staðnum og náðu myndum af því sem fram fór. 9.12.2008 14:24
Helgi Hjörvar: Forseti og forsætisráðherra séu launahæstir Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar spurði Árna Mathiesen fjármálaráðherra út í laun forstjóra ríkisstofnana og fyrirtækja í meirihlutaeigu ríkisins á Alþingi í dag. Helgi fagnaði frumkvæði ríkisstjórnar um að lækka laun þeirra sem heyra undir kjararáð en hann vakti athygli á því að ríkisforstjórar séu oft og tíðum með hærri laun en forsætisráðherra, sem að mati Helga á að vera hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn, að forseta Íslands undanskildum. 9.12.2008 14:20
Frumvarp um launalækkun æðstu embættismanna lagt fram Árni Mathiesen fjármálaráðherra hefur lagt fram á þingi frumvarp um að kjararáð kveði upp úrskurð sem feli í sér 5-15% launalækkun þingmanna og ráðherra frá 1. janúar 2009. 9.12.2008 13:59
Á tali með Olli Rehn Íslendingum gefst einstakt tækifæri til að hlusta á og ræða milliliðalaust við Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Háskólanum í Reykjavík á morgun. Fyrirlestri, sem hann heldur erlendis, verður varpað beint til Íslands og verður unnt að beina til hans spurningum í lokin. 9.12.2008 12:57
Sprenging í járnblendinu á Grundartanga Engin slasaðist þegar sprenging varð í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi, þar sem snarráður verkstjóri hafði rýmt verksmiðjuna í skyndi rétt áður en sprengingin varð. 9.12.2008 12:30
Lögreglumennirnir sem slösuðust eru mættir aftur til vinnu Lögreglumennirnir sem leituðu á slysadeild eftir átökin í Alþingi í gær voru bitnir, segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri. Annar var bitinn í höndina og hinn í öxlina. Stefán segir að þeir hafi það ágætt eftir atvikum og fari strax aftur til vinnu. 9.12.2008 12:03
Þingpallar opnir almenningi þrátt fyrir átökin í gær Þingpallar verða opnir almenningi í dag eins og endranær þrátt fyrir atökin sem brutust út við upphaf þingfundar í gær. Þingfundur hefst klukkan 13:30 og er fyrsta mál á dagskrá óundirbúnar fyrirspurnir. Siv Friðleifsdóttir, þingkona framsóknar, var einmitt að bera upp óundirbúna fyrirspurn til Árna Mathiesen fjármálaráðherra varðandi Icesave málið í gær þegar upp úr sauð þannig að hún fær annað tækifæri til að knýja Árna svara í dag. 9.12.2008 12:01
Harður árekstur við Kringlumýrarbraut Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur smárútu og fólksbíls á gatnamótum Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar á ellefta tímanum í morgun. Klippa þurfti einn farþegann út úr fólksbílnum, en ekki er vitað hversu alvarlega slasað fólkið er. 9.12.2008 10:38
Mótmælum lokið - tveir handteknir Mótmælendur eru farnir frá Ráðherrabústaðnum. Um 20 manna hópur safnaðist þar saman fyrir ríkisstjórnarfund og hugðist koma í veg fyrir að ráðherrar kæmust til reglulegs fundar þar. Tveir mótmælendur voru handteknir þegar þeir sinntu ekki fyrirmælum lögreglunnar. 9.12.2008 10:19
Neytendasamtökin minna á skilaréttinn Nú þegar jólin nálgast vilja Neytendasamtökin minna á rétt neytenda til þess að skila vörum því þrátt fyrir bestu viðleitni þarf fólk stundum að skila eða skipta gjöfum sem gefnar eru á aðfangadag. Samtökin hafa því á heimasíðu sinni birt frétt þar sem farið er yfir helstu atriði í þessu sambandi. 9.12.2008 10:17
Mótmælt við Ráðherrabústaðinn - einn handtekinn Hópur fólks mótmælir fyrir utan Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu og reynir að varna því að ráðherrar komist á ríkisstjórnarfund. Lögreglan hefur þegar handtekið einn mótmælanda úr hópnum, sem var snúinn niður af þremur lögreglumönnum, en lögreglan vill ekki tjá sig um ástæður handtökunnar. 9.12.2008 09:38
Nýr jólasveinn? Hluti af fiskmetinu, sem stolið var úr Litlu fiskbúðinni í Breiðvangi í Hafnarfirði í fyrrinótt, komst óvænt til skila í gær. Lögreglumenn voru að gera húsleit vegna rannsóknar á fíkniefnamáli, þegar þeir fundu óvenjumikið af fiskmeti á vettvangi. 9.12.2008 07:17
Telja allsherjarverkfall vænlegt Réttast væri að verkalýðshreyfingin efndi til allsherjarverkfalls til að knýja ríkisstjórnina frá völdum, var ein hugmyndin sem viðruð var á fjölmennum borgarafundi í Háskólabíói í gærkvöldi og tóku margir fundarmanna vel í hugmyndina. 9.12.2008 07:11
Öryggiseftirlit hert á Alþingi Von er á því að öryggisreglur verði hertar og eftirlit aukið í alþingishúsinu vegna atburða dagsins, segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. 8.12.2008 22:01
Sóley eykur breiddina í borgarstjórnarflokknum Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir að það sé starfsregla að báðir borgarfulltrúar flokksins og 1. varaborgarfulltrúi séu viðstaddir fundi borgarstjórnar flokksins. Með því sé verið að auka breiddina í borgarstjórnarflokknum. 8.12.2008 20:37
Vilja óskerta fjölmiðlaumfjöllum um íþróttir Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands skorar á stjórn RÚV að sjá til þess að umfjöllun og fréttaflutningur af íþróttum skerðist ekki. Þetta kemur fram í ályktun sem framkvæmdastjórnin samþykkti á dögunum. Þar er bent á að umfjöllun um íþróttir sé lögbundin skylda RÚV. 8.12.2008 21:03
Allir mótmælendur lausir úr haldi Allir mótmælendurnir sem voru handteknir í Alþingishúsinu í dag eru nú lausir úr haldi lögreglu. Sjö voru færðir til skýrslutöku en fólkið, sex karlar og ein kona, er flest á þrítugsaldri. Ekki fóru allir mótmælendurnir út úr Alþingishúsinu með góðu en einn þeirra hafði sig sýnu mest í frammi og beit tvo lögreglumenn og sparkaði í þann þriðja. 8.12.2008 20:48
Ríkið kaupir hugsanlega fasteign RÚV Hugmyndir eru uppi um að ríkissjóður kaupi fasteign Ríkisútvarpsins við Efstaleiti og að söluandvirðinu verði ráðstafað til þess að létta á lífeyrisskuldbindingum fyrirtækisins. Þetta er fullyrt á fréttavefnum AMX. 8.12.2008 19:24
Haukur fundaði með lögreglu - var ekki á meðal hinna handteknu Haukur Hilmarsson háskólanemi fundaði ásamt hópi fólks með Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra og Geir Jóni Þórissyni. 8.12.2008 19:19
Mótmælendur funduðu með lögreglustjóra Eftir mótmælin í Alþingishúsinu í dag kom hópur fólks að lögreglustöðinni við Hverfisgötu og leitaði svara við ýmsum spurningum. 8.12.2008 18:17
Færeyingar skoða Landspítalann Sendinefnd skipuð helstu stjórnendum færeyska Landssjúkrahússins kom til Íslands í dag. Tilgangurinn með heimsókninni er að skoða aðstæður á Landspítala háskólasjúkrahúsi með það fyrir augum að auka til muna samstarf milli færeyska Landssjúkrahússins og Landspítala. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, tók á móti sendinefndinni í dag. 8.12.2008 17:25
Gæsluvarðhald vegna mannsláts í sumarbústað staðfest Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að maður sem grunaður er um að hafa orðið félaga sínum bana í byrjun nóvember, sæti gæsluvarðhaldi til 18. febrúar. 8.12.2008 17:10
Þjónustu ekki þröngvað upp á fólk ,,Þjónustu er ekki þröngað upp á fólk heldur velur fólk það sjálft," segir Stella Víðisdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. 8.12.2008 17:00
Maður lést í bílslysi í Berufirði Karlmaður á sjötugsaldri lést í umferðarslysi í ofanverðum Berufirði í gærkvöld eða nótt. Slysið uppgötvaðist á tíunda tímanum í morgun þegar sjúkraflutningamaður sem átti leið um kom auga á bifreið mannsins. Maðurinn var látinn þegar að var komið. Vegurinn þar sem slysið varð er fjölfarinn, samkvæmt lögreglunni á Eskifirði. 8.12.2008 16:52
Ekki refsað þrátt fyrir grófar hótanir Héraðsdómur Suðurlands tók fyrir í dag mál Barkar Birgissonar sem ákærður var fyrir 14 brot gegn valdsstjórninni. Hann var ákærður fyrir að hafa haft í alvarlegum hótunum við starfsfólk Litla-Hrauns og ættingja þeirra. Börkur var fundinn sekur fyrir nokkra liði ákærunnar en þrátt fyrir það var honum ekki gerð sérstök refsing. 8.12.2008 16:38
Verðhækkun hjá Toyota gengur til baka Toyota hefur ákveðið að draga þær verðhækkanir sem orðið hafa á bílum umboðsins til baka. Eins og Vísir greindi frá í síðustu viku hafa bílar hækkað mikið í því efnahagsfárviðri skollið hefur á þjóðinni. Tekið var dæmi af Yaris smábílnum frá Toyota sem hækkaði um 30 prósent á innan við mánuði. 8.12.2008 16:36
Lýsing svarar fyrir sig Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ásökunum viðskiptavina þeirra er svarað. Í morgun hittu forsvarsmenn Lýsingar nokkra vörubílstjóra á fundi sem vildu mótmæla innheimtuaðgerðum fyrirtækisins. 8.12.2008 16:25
Ingibjörg vill lögbann á Club 101 „Við erum ekkert hræddir við Ingibjörgu Pálma,“ segir Anton Þórarinsson einn eigenda skemmtistaðarins Club 101. Lögmenn 101 hótels hafa sent aðstandendum staðarins bréf þar sem farið er fram á að þeir breyti merki sínu. Það segir Anton ekki koma til greina. 8.12.2008 16:10
Sjö handteknir - átökum lokið Lögregla hefur komið fólkinu út úr Alþingishúsinu sem efndi þar til mótmæla klukkan þrjú. Að minnsta kosti sjö hafa verið handteknir en öðrum sem höfðust við inni í anddyri hússins hefur verið sleppt. Einn mótmælendanna var borinn út af lögreglumönnum í hlekkjum og öskraði hann „fasistar!“ áður en hann var lokaður inni í lögreglubíl. 8.12.2008 15:54