Innlent

Hross á röltinu á Selfossi

Sex hross brugðu sér í kaupstað í nótt, sprönguðu um götur Selfoss og hópuðust saman við pósthúsið, líkt og þau ættu erindi þangað. Allir tiltækir lögreglumenn lögðust í smölun og tókst að reka þau inn í gerði í hesthúsahverfinu í austurjaðri bæjarins. Ekki er vitað hver á hrossin, en talið er líklegt að þau séu úr hesthúsahverfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×