Fleiri fréttir

Hægir á þorsksölu og aukið birgðahald

Stóru sjávarútvegsfyrirtækin í landinu finna fyrir breytingum á erlendum mörkuðum, sérstaklega í eftirspurn eftir þorski. Verð hefur lækkað í erlendri mynt, jafnvel um allt að þriðjung þótt misjafnt sé eftir mörkuðum og afurðum.

Kannast ekki við uppreisnina

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tekur ekki undir að menntamálanefnd hafi gert uppreisn gegn sér þegar hún frestaði afgreiðslu hluta frumvarps hennar um RÚV.

Ríkið taki af skarið um erlendu lánin

Ríkisbankarnir treysta sér ekki til að taka ákvörðun um hvernig komið skuli til móts við myntkörfuskuldara, þar ríkir algjör ákvörðunarfælni. Því þurfa stjórnvöld að taka af skarið og skera úr um hvernig þetta verði gert. Þetta segir Ragnar Sær Ragnarsson, framkvæmdastjóri Þjóðhags. Hann hefur kynnt hugmyndir um fastar afborganir á erlendum lánum, í félagi við Sverri Geirdal ráðgjafa.

Lánshæfi Landsvirkjunar er metið lakara en ríkisins

Lánshæfismat Landsvirkjunar var fyrir helgi lækkað af Standard & Poor‘s. Lánshæfi fyrirtækisins er því metið lakara en ríkisins. Lækkunin er ekki talin hafa áhrif á fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir af forsvarsmönnum fyrirtækisins.

Fjöldi tilboða í knattspyrnuhús

Fjöldi tilboða barst í byggingu knattspyrnuhúss í Vestmannaeyjum. Bæjarstjórnin ákvað að taka tilboði lægstbjóðanda, Steina og Olla, sem er upp á tæplega 350 milljónir króna að því er segir á eyjafrettir.is. Þar kemur einnig fram að bæjarstjóranum hafi verið falið að semja við verktakann um breytingar á verkáætlun og fyrirkomulagi þannig að í núverandi efnahagsástandi komi ekki til framkvæmda sem bera fyrst og fremst kostnað í erlendri mynt. Einnig að leitast við að efnisval og verkhættir leiði til mannaflsfrekrar framkvæmdar.

Mátti áminna yfirlögregluþjón sinn

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki braut ekki á yfirlöregluþjóni með því að veita honum formlega áminningu fyrir brot í starfi. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur.

Fargjöld til Reykjavíkur hækka

Mikil hækkun verður á fargjöldum í strætisvagna á milli Akraness og Reykjavíkur frá og með 2. janúar næstkomandi. Stakt fargjald hækkar um 200 prósent, úr 280 krónum í 840 krónur. Tímabilskort hækka minna.

Jöfn tækifæri í endurreisninni

„Við endurreisn efnahagslífsins er mjög mikilvægt að láta ekki sömu aðilana hafa allt atvinnulífið í hendurnar aftur heldur eigum við að gefa öllum tækifæri til að taka þátt í endurreisninni,“ segir Ármann Kr. Ólafsson alþingismaður um þingsályktunartillögu sína um endurskoðun á samkeppnislögum.

Vilja ljúka sem mestu fyrir jól

„Við vonum auðvitað að það takist að ljúka sem mestu á morgun [í dag] en það er aldrei hægt að gefa nein ákveðin fyrirheit um þá framvindu,“ sagði Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, um störf þingsins fyrir jólahlé sem stendur til 20. janúar. Á þingfundi í dag er lokaumræða um fjárlagafrumvarp næsta árs stærsta málið á dagskrá. Þess utan á að ræða breytingar á frægum lögum frá 2003 um eftirlaun ráðamanna, frumvarp um breytingu á afnotagjöldum Ríkisútvarpsins í nefskatt, auk tæknilegra breytinga á lagaheimildum fyrir stimpilgjaldi af fjárnámsendurritum.

Veðurstofan varar við stormi

Veðurstofan gerir ráð fyrir stormi um landið sunnan- og vestanvert annað kvöld. Spá Veðurstofunnar næsta sólarhring er eftirleiðis: Norðaustanátt, víða 5-13 m/s og dálítil snjókomu um landið austanvert fram á kvöld, en annars úrkomulítið. Hægari í kvöld og fram á nótt.

Gísli Marteinn í launalaust leyfi

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi mun taka launalaust frí frá störfum borgarstjórnar eftir áramót. Gísli greinir frá þessu í bloggfærslu sem hann skrifaði á vefsíðu sína nú í kvöld.

Allt gert til að sporna við atvinnuleysi

Allt verður gert til að koma í veg fyrir að svörtustu spár um atvinnuleysi rætist að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Hann vonast til þess að hægt verði að lækka stýrivexti snemma á næsta ári.

Olíugróði Drekasvæðis skattlagður um allt að 59%

Skattar íslenska ríkisins af hugsanlegri olíu- og gasvinnslu á Drekasvæðinu verða allt að 59 prósent af tekjum sem olíulindirnar gefa. Þetta er nokkru lægra hlutfall en Norðmenn taka hæst en sambærilegt við skattlagningu Færeyinga og Kanadamanna.

Forsetinn óskar eftir að fjármálaráðherra lækki laun sín

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur sent fjármálaráðherra bréf þar sem hann óskar eftir því að laun sín verði lækkuð í samræmi við lagafrumvarp um kjararáð. Forsetinn sendi bréfið fyrir helgi en frumvarpið varð að lögum í gær.

Eldur á Bakkabraut

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent að Bakkabraut 12 í kópavogi laust eftir klukkan þrjú í dag þegar eldur kviknaði í iðnaðarrými þar. Mikill reykur var í húsinu en eldurinn var minniháttar. Húsið var reykræst eftir að búið var að slökkva eldinn.

Vestmannaeyjabær hækkar útsvar

Útsvar hjá Vestmannaeyjabæ mun hækka um 0,25% og verður 13.28% eftir hækkun. Þetta var ákveðið á fundi bæjarstjórnar á fimmtudaginn, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum Eyjar.net.

Fært um Hellisheiði

Fært er orðið um Hellisheiði en þar er þæfingur og skafrenningur, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Heiðinni var lokað í nótt vegna ófærðar. Á Suðurlandi er hálka, þæfingur og skafrenningur á flestum leiðum.

Ómögulegt að sjávarútvegurinn lendi í eigu erlendra lánadrottna

Það er engin hætta á því að íslenskar aflaheimildir lendi í eigum erlendra lánadrottna þrátt fyrir að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki séu afar skuldsett og geti hugsanlega farið í gjaldþrot. Þetta sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í þættinum Sprengjusandi á Bylgjjunni í dag.

Tveir menn villtust á Skarðsheiði

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar leituðu í gærkvöld tveggja manna sem villtust í slæmu veðri á Skarðsheiði. Björgunarsveitamönnum barst tilkynning um að mennirnir hefðu týnst um sexleytið og voru þeir fundnir um fjórum tímum síðar.

Stysti dagur ársins í dag

Vetrarsólstöður eru í dag, 21. desember, og er þetta því sá dagur ársins sem nóttin er lengst og birtu nýtur skemmst.

Gott skíðafæri í dag

Skíðasvæðin á Ísafirði í Tungudal og Seljalandsdal voru opnuð í gær og þar er áformað að lyftur verði í gangi í dag milli klukkan eitt og fimm. Áformað er að hafa opið á völdum dögum yfir hátíðirnar. Í Bláfjöllum verður opið frá klukkan 11 til klukkan sex í kvöld. Skíðasvæði Skagfirðinga í Tindastól verður opið til klukkan fjögur og sömuleiðis í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar.

Ætla að selja sendiherrabústaði

Selja á sendiherrabústaði í Washington, Osló, London og New York og nota hluta söluverðs til að leigja annað hentugra húsnæði samkvæmt breytingartillögu frá meirihluta fjárlaganefndar Alþingis.

Þungfært á Austurlandi

Þungfært er á Austurlandi og stórhríð á Fjarðarheiði, milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar, samkvæmt upplýsingum Vegagerðar. Stórhríð er einnig á Oddskarði, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, og þar er þæfingsfærð en verið er að moka vegi. Frá Norðurlandi berast þær fréttir af miklum éljagangi í Eyjafirði og skafrenningi á Mývatnsheiði og Mývatnsöræfum.

Sátu fastir í bílum sínum

Tólf manns sátu fastir í sex bílum vegna ófærðar á Hellisheiðinni í nótt. Nú er unnið að því að moka Hellisheiðina og koma bílunum sem festust í burtu. Hellisheiðinni var lokað upp úr klukkan tvö í nótt og segist lögreglan búast við því að hægt verði að opna hana aftur upp úr klukkan 10.

Þurfa að greiða 50 þúsund fyrir áfengismeðferð

Sjúklingar í áfengis- og vímefnameðferð SÁÁ á Staðarfelli og í Vík verða frá og með næstu áramótum að greiða 50 þúsund krónur fyrir meðferðina. Fram kemur á heimasíðu SÁÁ að vegna fyrirsjáanlegs rekstrarfjárskorts á næsta ári sé óhjákvæmilegt að hefja gjaldtöku af þessu tagi. Samhliða gjaldtöku verður stofnaður sérstakur sjóður sem efnaminni sjúklingar geta sótt styrk í til að greiða sinn hlut.

Segir forsendur brostnar fyrir opinberri eigu HS

„Þegar Grindavík seldi okkur var miðað við að æskilegt væri að Hitaveita Suðurnesja yrði í eigu opinberra aðila. En í ljósi þess að núverandi meirihluti er myndaður af Reykjanesbæ og Geysi Green Energy, og í ljósi nýrra laga frá Alþingi, eru þær forsendur brostnar,“ segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Sveitarfélög ganga hart að skuldurum

Skuldir þúsunda einstaklinga við sveitarfélag sitt eru í innheimtu hjá innheimtufyrirtækjum, til dæmis Intrum eða Momentum. Í slíkri innheimtu bætist við kostnaður fyrir skuldarann. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið af þeim fimm stærstu sem skiptir ekki við slík fyrirtæki.

Fé til menntamála gæti minnkað 2009

Menntamálaráðherra segist hafa fullan skilning á þeim erfiðleikum sem Háskóli Íslands stendur frammi fyrir í ljósi þess að 1.630 nemendur bætast nú í hópinn, um leið og fjárframlög hafa verið minnkuð um tíu prósent frá því sem áætlað var. Rektor skólans hefur orðað það svo að skólinn sé í „verulega alvarlegri klemmu“.

Fékk aldrei lán fyrir Decode

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar, segist aldrei hafa fengið lán til hlutabréfakaupa í Decode.

Ítalskur skiptinemi með 9,14 í einkunn

„Íslenska er mjög fallegt tungumál," segir Veronica Piazza, sautján ára ítalskur skiptinemi, sem nýlega fékk 10 í einkunn í íslenskuprófi fyrir erlenda nema í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Mikið sparast við fækkun yfirstjórna

Sameining sveitar-félaga er ráðstöfun sem hlýtur að koma til alvarlegrar skoðunar í hagræðingaraðgerðunum sem nú er gripið til í samfélaginu öllu. Þetta er mat Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra á Ísafirði og formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Algjör handarbaksvinna

„Þetta er algjör handarbaksvinna,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, FÍF.

Aldrei meiri áhugi á köttum

„Þetta er átjánda starfsárið okkar og ég man ekki eftir öðru eins,“ segir Sigríður Heiðberg í Kattholti um mikinn áhuga fólks á því að taka að sér ketti Kattholts.

Vilja selja sendiherrabústaði

Í breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs er meðal annars lagt til að veitt verði heimild til að selja sendiherrabústaði Íslands í New York, Washington, London og Ósló.

Varað við ófærð á Suðurlandi

Vegagerðin varar við því að Sandskeið, Hellisheiði og Þrengslin teppist fljótlega eftir að þjónustu líkur á miðnætti, vegna slæmst veðurútlits.

Margrét vill halda áfram á Litla-Hrauni

Margrét Frímannsdóttir hyggst sækja um starf forstöðumanns Fangelsisins á Litla-Hrauni, en staðan er auglýst laus til umsóknar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Dómsmálaráðherra mun skipa í starfið frá 1. febrúar næstkomandi til fimm ára.

Geir slíti stjórnarsamstarfinu frekar en að láta undan hótunum

Sjálfstæðismenn á Ísafirði hvetja Geir H. Haarde formann Sjálfstæðisflokksins til að bregðast við hótunum ráðherra samstarfsflokksins í ríkisstjórn og boða frekar til alþingiskosninga, en að láta undan dulbúnum hótunum, þar sem reynt er að hafa áhrif á

Sagði sig úr bankaráði Seðlabankans

Halla Tómasdóttir, sem var varamaður í bankaráði Seðlabankans, hefur sagt sig úr ráðinu. Halla sat þar sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en tilkynnti um afsögn sína fyrir fáeinum vikum. Halla sagði í samtali við Vísi að ástæðan fyrir afsögn hennar væri sú að hún teldi pólitík og peningamálastjórn ekki fara saman. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig um málið.

Sigmundur Davíð íhugar formannsframboð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, skipulagshagfræðingur og fyrrverandi fréttamaður, segist vera að íhuga framboð til formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi í byrjun næsta árs. Í samtali við Vísi í gær sagðist Sigmundur hins vegar ekki vera skráður í flokkinn og að hann væri ekki á leið í pólitík.

Sjá næstu 50 fréttir