Innlent

Algjör handarbaksvinna

Loftur Jóhannsson
Loftur Jóhannsson
„Þetta er algjör handarbaksvinna,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, FÍF. Flugumferðarstjórar hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar fengu í september bréf um að störf þeirra yrðu lögð niður og Flugstoðir ohf. tækju við ráðningarsamningi þeirra 1. janúar 2009. Kristján L. Möller samgönguráðherra tilkynnti á föstudag að ekkert yrði af fyrirhuguðum flutningi um áramótin heldur tækju þeir við starfi í nýju opinberu hlutafélagi Keflavíkurflugvallar ohf. sem tekur við rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar. Loftur segir að flugumferðarstjórum hafi ekki verið tilkynnt þetta sjálfum. „Það fyrsta sem við sáum um þetta var frétt á mbl.is á föstudaginn,“ segir Loftur, en FÍF hefur enn ekki borist formleg tilkynning þess efnis. Samgönguráðherra hefur heldur ekki falast eftir fundum við félagið. Stjórn FÍF sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem segir að stjórnin líti svo á að flugumferðar-stjórarnir hafi verið ráðnir til Flugstoða og verði þar starfsmenn frá og með 1. janúar 2009, en ekki starfsmenn Keflavíkurflugvallar ohf. „Það getur vel verið að menn séu tilbúnir að fara til Keflavíkurflugvallar ohf. en það yrði ekki nema samsvarandi samningar yrðu gerðir og gerðir voru við Flugstoðir í janúar 2007,“ segir Loftur. Ekki náðist í Kristján L. Möller vegna málsins. - vsp
flugumferðarstjórar Gagnrýna vinnubrögð samgönguráðherra sem hefur ráðið þá og afráðið. fréttablaðið/heiða





Fleiri fréttir

Sjá meira


×