Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæðismenn í Árborg vilja skoða einhliða upptöku evru eða dollars Sjálfstæðismenn í Árborg og sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi vilja að kannað verði til hlítar þann kost að taka einhliða upp annan gjaldmiðil í stað krónunnar. Þetta kemur fram í ályktun sem fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Árborg og sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi hafa samþykkt. 20.12.2008 13:24
Á annan tug mála bíða afgreiðslu Alþingis Hátt á annan tug mála bíða afgreiðslu Alþingis fyrir þessi jól meðal annars fjárlög fyrir árið 2009, fjáraukalög fyrir 2008 sem og breytingar á eftirlaunalögum æðstu ráðamanna. 20.12.2008 12:22
Verðum að ákveða hvert við ætlum að stefna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist ekki geta fullyrt að ESB aðild verði samþykkt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn verður í lok janúar. 20.12.2008 11:51
Alþingi samþykkir lög um kjararáð Frumvarp um kjararáð var samþykkt sem lög frá Alþingi nú á ellefta tímanum í morgun. Geir H Haarde forsætisráðherra sendi kjararáði bréf í nóvember og fór þess á leit að ráðið lækkaði tímabundið laun þeirra sem heyra undir ráðið um 5-15%. 20.12.2008 10:26
Allar helstu þjóðleiðir færar Allar helstu þjóðleiðir um landið eru færar, ef frá er talin leiðin milli byggða á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum þar sem Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru tepptar. 20.12.2008 10:16
Mótmæla ellefta laugardaginn í röð Hörður Torfason og félagar í Röddum fólksins boða enn sem fyrr til útifundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú. 20.12.2008 10:12
Nóg til af jólatrjám Björgunarsveit Hafnarfjarðar segir enga ástæða til að óttast að skortur verði á jólatrjám í landinu fyrir þessi jól þar sem mun meira virðist vera af íslenskum trjám á markaðnum í ár en oft áður. 20.12.2008 10:07
Skíðasvæði víða opin í dag Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað núna klukkan tíu og er þetta fyrsta skíðahelgin þar í vetur. Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða, segir frábært færi í brekkunum og góð veðurspá sé fyrir daginn og hvetur fólk til að skella sér í brekkurnar og upplifa jólastemningu í fjöllunum utan við ys og þys borgarinnar. 20.12.2008 09:59
Fundað á Alþingi í dag Þingfundur hófst klukkan hálf tíu í morgun en hátt á annan tug mála bíða afgreiðslu Alþingis fyrir jól. Meðal þeirra eru fjárlög fyrir árið 2009, fjáraukalög fyrir 2008, lög um launalækkun alþingismanna og ráðherra og breytingar á hinum umdeildu eftirlaunalögum. 20.12.2008 09:57
Bíll keyrði á hross Jeppa var ekið á hross á Fljótshlíðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli slapp hrossið ómeitt og bíllinn skemmdist einungis lítillega. 20.12.2008 09:47
Fjöldi í miðborginni Mikill mannfjöldi var samankominn í miðborg Reykjavíkur í nótt og nokkur ölvun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitthvað var um minniháttar pústra og nokkrir skemmtanaglaðir næturhrafnar voru fluttir á lögreglustöð þar sem þeir voru látnir sofa úr sér áfengisvímuna . Að öðru leyti fór næturlífið vel fram um liðna nótt, að sögn lögreglunnar. 20.12.2008 09:43
Ölvaður ökumaður skildi bílnúmerið eftir Ökumaður sem grunaður er um að hafa ekið ölvaður í gegnum girðingu við heimahús á Akureyri í morgunsárið stakk af af vettvangi. Ekki vildi þó betur til en að númerplata af bílnum varð eftir í garðinum. 20.12.2008 09:39
AGS segir virkjanir upphaf ofþenslunnar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir framkvæmdir tengdar áliðnaðinum vera upphafið að ofþenslu íslensks efnahagslífs. Þetta kemur fram í skýrslu sjóðsins um Ísland. 20.12.2008 09:00
Átta hundruð fjölskyldur þáðu aðstoð Löng biðröð myndaðist í gær við hús Fjölskylduhjálpar Íslands í Eskihlíð þegar þriðja og síðasta matarúthlutun fyrir jólin fór fram. Til Fjölskylduhjálparinnar leitar meðal annars fólk úr lágtekjuhópum, öryrkjar, einstæðir foreldrar, eldri borgarar og aðrir þeir sem tekst ekki að láta enda ná saman. 20.12.2008 08:00
Eignir Landsbanka rýrna um helming Gamli Landsbanki átti 4.500 milljarða króna fyrir hrun. Skilanefnd metur eignir bankans nú á þúsund milljarða. NBI fékk 1.300 milljarða. Íslendingar greiða 150 milljarða fyrir Icesave. Aðrir kröfuhafar verða líklega af 2.000 milljörðum. 20.12.2008 08:00
Vonbrigði og óvissa fyrir Skjáinn Ákvörðun menntamálanefndar um að fresta gildistöku laga um RÚV veldur starfsmönnum sjónvarpsstöðvarinnar Skjásins miklum vonbrigðum og skapar óvissu um framtíð fyrirtækisins. Þetta segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Sigríður Margrét Oddsdóttir. 20.12.2008 07:30
VG vill auka skatta á tekjur yfir 6 milljónir VG vill auka skattheimtu um allt að sex milljarða með þríþrepaskiptum tekjuskatti, hærri fjármagnstekjuskatti og sköttum á fjármagnstekjur. 20.12.2008 07:00
Háskólinn í verulega alvarlegri klemmu Háskólaráð fer fram á aukafjárveitingu til Háskóla Íslands (HÍ) vegna niðurskurðar á fjárveitingu til skólans og aukinnar ásóknar nemenda. 20.12.2008 06:00
Hagræðir og ræður tugi lögreglumanna Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, hefur auglýst eftir tuttugu og þremur lögreglumönnum til starfa. Tilfærslur verkefna, svo og lækkanir á föstum kjörum í hagræðingarskyni, skila embættinu stórum upphæðum. 20.12.2008 06:00
Ostakrækir hnuplar úr Búrinu Írskur gáda-osthleifur var numinn á brott af heimili sínu í fyrrinótt og skömmu síðar varpað á jörðina. Osturinn, sem staðið hafði á afgreiðsluborði ostaverslunarinnar Búrsins við Nóatún, komst aftur óskaddaðar í réttar hendur. 20.12.2008 06:00
Ögmundi brigslað um skrök á þingi Kristinn H. Gunnarsson bað Ögmund Jónasson um að hætta að skrökva á Alþingi í gær. Líflegar umræður spunnust um eftirlaunakjör þingmanna. 20.12.2008 06:00
Tekist á um aðstoðarmennina Í sparnaðar- og niðurskurðarvinnu Alþingis síðustu dægrin hefur verið lagt til að aðstoðarmenn þingmanna landsbyggðarkjördæmanna verði slegnir af. Áætlað er að kostnaður við kerfið nemi um 60 milljónum á ári. 20.12.2008 06:00
Fréttablaðið sýknað af kröfum Hjalta Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Fréttablaðið og ritstjóra þess af kröfum Hjalta Árnasonar vegna fréttar sem birt var í október 2007. 20.12.2008 04:00
Fallast á dómsátt í lóðadeilu Borgarráð hefur samþykkt að leysa ágreining vegna lóðarinnar Sturlugötu 10 með dómsátt. 20.12.2008 03:00
Þórunn verðlaunuð af RÚV Verðlaun Stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins veitti í gær Þórunni Valdimarsdóttur, rithöfundi og sagnfræðingi, viðurkenningu sjóðsins fyrir árið 2008 og 600 þúsund króna verðlaun. 20.12.2008 03:00
Hagar sektaðir fyrir undirboð í verðstríði Samkeppniseftirlitið (SE) hefur lagt 315 milljóna króna stjórnvaldssekt á Haga, sem meðal annars reka verslanir Bónuss, Hagkaupa og 10-11, fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu sinni í verðstríði lágvöruverslana árið 2005. Sektin er sú hæsta sem um getur fyrir þess konar brot. 20.12.2008 03:00
Ósammála um hvort nýtt mál sé að ræða Verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar segir ákæruvaldið fallið á tíma og krefst þess að rannsókn á skattamálum Baugsmanna verði dæmd ólögmæt. Sækjandi segir um nýtt mál að ræða þar sem séu sömu sakborningar og í Baugsmálinu. 20.12.2008 03:00
Lára býður sig fram til að rannsaka bankahrunið Sturla Böðvarsson forseti alþingis sagði í gær að nefnd til að rannsaka orsakir og aðdraganda bankahrunsins yrði skipuð fyrir jól. Lára Ómarsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona sendi honum tölvupóst í morgun, og bauð sig fram í nefndina sem fulltrúi almennings. 19.12.2008 21:06
RÚV-frumvarpi frestað Menntamálanefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í daga að fresta fram á næsta ár að takmarka stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Nefndin hefur haft frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, til umfjöllunar og hefur nú ákveðið að afgreiða einungis hluta af frumvarpinu sem lög fyrir áramót. Sá hluti snýr að breyttri gjaldtöku og svokölluðum nefskatti. 19.12.2008 16:07
Mótmælt með ellefu mínútna þögn á Austurvelli Mótmælt verður á austurvelli á morgun líkt og undanfarna ellefu laugardaga. Í þetta sinn með ellefu mínútna þögn. Í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna segir að kröfurnar séu skýrar. Stjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins víki tafarlaust, og að kosið verði sem fyrst. 19.12.2008 23:17
Kannabisræktun á Skagaströnd Lögreglan á Blönduósi handlagði í gærkvöldi yfir 150 kannabisplöntur og tæki til ræktunar í kjölfar húsleitar í íbúðarhúsi á Skagaströnd. 19.12.2008 20:23
Ósanngjarnt að niðurskurðurinn skuli bitna á börnum Það er ákaflega ósanngjarnt að niðurskurður á fjárlögum skuli bitna á börnum sem glíma við geðraskanir, segir Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD samtakanna. „Vegna þess að þjónustu við þennan hóp hefur verið mjög ábótavant um árabil,“ segir Ingibjörg. 19.12.2008 20:00
Útilokar ekki skattahækkanir Ríkisstjórnin boðar allt að 50 milljarða króna niðurskurð í fjárlögum fyrir næsta ár. Þrátt fyrir hækkun ýmissa gjalda sem hækkun tekjuskatts upp á eitt prósentustig er gert ráð fyrir að ríkisjóður verði rekinn með um 170 milljarða krónu halla. 19.12.2008 19:07
Kominn út fyrir tólf mílur á stolnu björgunarskipi Íslendingur um þrítugt, sem stal Ingibjörgu, fjörutíu tonna björgunarskipi, frá Höfn í Hornafirði í morgun, stefndi hraðbyri til Evrópu þegar hann fékk á sig brotsjó suður af landinu. Hann sneri þá við en með ólíkindum þykir að manninum, sem hafði enga skipstjórnarreynslu, skyldi takast að sigla tvívegis um Hornafjarðarós í mikilli ölduhæð með stýrið læst. 19.12.2008 19:26
70 prósenta samdráttur í barnageðlækningum Sjötíu prósenta samdráttur verður á þjónustu í barnageðlækningum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir uppsögn verksamnings, að mati barnageðlæknis við sjúkrahúsið. Hann segir væntanlega hægt að verja ákvörðunina þar sem menn með viti séu sagðir hafa tekið hana. Það ætli hann hins vegar ekki að gera. 19.12.2008 19:19
Atvinnuleysið kemur verst við þá yngstu Atvinnuleysi bitnar harðast á yngsta fólkinu á vinnumarkaði. Nemendur sem útskrifuðust í dag eru uggandi um framtíðina. Rúmlega níu þúsund manns eru skráðir atvinnulausir sem þýðir 5,5% atvinnuleysi. 19.12.2008 18:49
Boða til mótmæla í Bónus á Þorláksmessu Hópur mótmælenda kom saman á Laugaveginum nú klukkan fimm og dreifði nammipokum til vegfarenda. Í pokunum var súkkulaði en einnig áskorun sem ber yfirskriftina "Sveltum svínið". Í henni er fólk hvatt til þess að fara í næstu Bónusverslun á Þorláksmessu og staldra lengi við án þess að kaupa neitt. 19.12.2008 17:30
Fíkniefnaframleiðsla stöðvuð á Skagaströnd Lögreglan á Blönduósi stöðvaði meinta fíkniefnaframleiðslu í einbýlishúsi á Skagaströnd í gær. Þar fundust ýmis tæki sem talin eru að hafa verið notuð við framleiðslu fíkniefna. Enginn er í haldi lögreglu vegna málsins. 19.12.2008 17:23
Barnageðlæknar harma niðurskurð á þjónustu við börn með geðraskanir Stjórn Barnageðlæknafélags Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem ákvörðun stjórnar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri um að skerða þjónustu við börn með geðraskanir er hörmuð. 19.12.2008 17:14
Orkuveitan hyggst selja hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í dag að selja 16,58% eignarhlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja. Fól stjórnin stjórnarformanni og forstjóra að leita eftir tilboðum. Haft verður samráð við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði með það fyrir augum að kanna hvort hagkvæmt sé að hafa samstarf um söluna. 19.12.2008 17:02
Ritstjórar sýknaðir af tíu milljón króna miskakröfu Ritstjórar Fréttablaðsins, þeir Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson voru í dag sýknaðir í meiðyrðamáli sem Hjalti "Úrsus" Árnason höfðaði gegn þeim fyrir ummæli sem féllu um hann í grein í blaðinu. Hjalti krafðist tíu milljóna í miskabætur auk þess sem hann vildi að ákveðin ummæli sem honum tengdust yrðu dæmd dauð og ómerk. Dómarinn var hins vegar á þeirri skoðun að ummælin væru innan marka tjáningarfrelsisins og sýknaði hann því ritstjórana. 19.12.2008 16:40
Níu mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa flutt tæp 216 grömm af kókaíni til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn þann 29. júní 2008. Talið er að maðurinn hafi flutt efnið inn í sölu- og dreifingarskyni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði er ungur að árum og hefur játað brot sitt frá upphafi rannsóknar málsins. Vegna alvarleika málsins þótti hins vegar ekki koma til greina að skilorðsbinda refsinguna. 19.12.2008 16:11
Kompásmaður opnar heimasíðu fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum Björgvin Þór Þorsteinsson, sem Kompás fjallaði um á dögunum, hefur opnað vefsíðuna kreppulausnir.is þar sem hann auglýsir þjónustuna sína. 19.12.2008 16:02
VG vill leggja niður Varnarmálastofnun Vinstri hreyfingin grænt framboð vill leggja niður Varnarmálastofnun og að verkefnum hennar verði sinnt í utanríkisráðuneytinu, Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og hjá Flugstoðum. Vinstri grænir telja að þetta gæti sparað allt að 700-800 milljónir króna strax á næsta ári. 19.12.2008 15:45
Mannréttindadómstóll Evrópu vísar máli grásleppusjómanns frá Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá kærumáli Björns Guðna Guðjónssonar gegn íslenska ríkinu um bann við grásleppuveiðum í netlögum. Í frétt á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins segir að dómstóllinn hafi lýst kæruna ótæka þar sem hún þótti ,,augljóslega illa grunduð". 19.12.2008 15:44