Fleiri fréttir

Vík burt, ríkisstjórn!

"Vík burt, ríkisstjórn", endurómaði á Austurvelli í dag í fjölmennustu mótmælunum til þessa vegna kreppunnar. Á annað þúsund manns mættu í kröfugöngu og á útifund.

Björgunarsveitamenn hafa sótt tvo slasaða menn í dag

Björgunarsveitin Elliði í Staðarsveit er nú að sækja rjúpnaskyttu sem hrapaði í hlíð við Hafursstaði í Hnappadal. Björgunarsveitarmenn eru komnir að skyttunni og fleiri eru á leiðinni með lækni og börur til að koma honum niður úr hlíðinni og í sjúkrabíl. Með í för eru tveir sjúkrabílstjórar. Maðurinn er töluvert slasaður.

Tónleikar Kristjáns klukkan fimm

Tónleikar Kristjáns Jóhannssonar með Sinfóníunni eru í dag klukkan fimm en ekki í kvöld klukkan hálfátta, eins og hermt var í Fréttablaðinu i dag.

Barnahús er 10 ára í dag

Það eru á bilinu fimm til sex prósent líkur á því að barn sem fæðist í dag þurfi að leita sér aðstoðar Barnahúss. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem kynntar eru í dag í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá því að Barnahús var sett á stofn.

Geir og Brown ræddu ekki um að Ísland leitaði aðstoðar IMF

Á fundi Geirs Haarde forsætisráðherra og Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, í Lundúnum í apríl, var sú hugmynd ekki rædd að Ísland leitaði eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða IMF, jafnvel þó að sjóðurinn hafi borist í tal á fundinum. Þetta segir Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarmaður Geirs, í samtali við Vísi.

Aðlögun án ESB aðildar gæti tekið 20 ár

Fyrir höndum er mjög langt aðlögunartímabil fyrir Ísland. Ferlið gæti tekið 10-20 ár ef Íslendingar ganga ekki í ESB. Þetta sagði Hannes Smárason , athafnamaður í Markaðnum á Stöð 2. Hann segir að tímalengd efnahagskreppunnar muni ráðast af þeim ákvörðunum sem núna verði teknar.

Mótmælendur ganga frá Hlemmi í dag

Boðað hefur verið til mótmæla í miðborg Reykjavíkur, þriðja laugardaginn í röð. Safnast verður saman á Hlemmi klukkan 14 og þaðan gengið niður á Austurvöll. Slagorð þeirra mótmæla er Nýir tímar og eru skilaboðin þau að ríkisstjórnin eigi að víkja og kosningar verði haldnar. Að göngu lokinni hefst dagskrá á Austurvelli um klukkan 15.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda í Lækjargötu um sexleytið í morgun. Konan var flutt á slysadeild með sjúkrabíl, en lögreglan telur að meiðsli hennar hafi ekki verið alvarleg. Mikil ölvun og óspektir voru í borginni í nótt að sögn lögreglu og gistu manns fangageymslur og 10 voru teknir fyrir ölvunarakstur .

Milljóna lúxusbílar verða eldi að bráð

Munstrið í bílabrunum hefur breyst á undanförnum mánuðum. Nýrri og dýrari lúxusbílar verða nú eldi að bráð þar sem þeir standa mannlausir í stæðum. Tryggingafélögin hafa hafið rannsókn á meintum sviðsettum árekstrum.

Fyrirspurnum eftir húsnæði fjölgar

Fyrirspurnum eftir húsnæði hefur fjölgað umtalsvert undanfarnar vikur, að sögn Ingibjargar Þórðardóttur formanns Félags fasteignasala.

Árekstur vörubifreiðar og fólksbifreiðar

Umferðarslys varð fyrir stundu á gatnarmótum Sæbrautar við Skeiðarvog og Kleppsmýrarveg í grennd við verslun Húsasmiðjunar í Skútavogi þegar vörubifreið og fólksbifreið lentu saman.

Starfsfólk Kjötbankans endurráðið

Eftir viðamikla endurskipulagningu stjórnar og starfsmanna Kjötbankans hefur verið ákveðið að endurráða alla núverandi starfsmenn fyrirtækisins.

Drengurinn ekki lengur á gjörgæsludeild

Drengurinn sem hlaut alvarlegustu áverkana í gassprengingu sem varð í vinnuskúr í Reykjavík í vikunni var útskrifaður af gjörgæsludeild í gærkvöldi.

Íslendska krónan er í løtuni metlág, so tú fært meira fyri minni.

Full vél af Færeyingum lenti á Reykjavíkurflugvelli í dag en margir þeirra ákváðu að skella sér í verslunarferð og nýta sér hagstætt gengi krónunnar. Færeyingarnir sem fréttastofa ræddi við eru ánægðir með hugmyndir um færeyskt lán til Íslendinga.

Sóknarfæri í kreppunni

Norðlenska er einn stærsti kjötframleiðandi landsins og veltir árlega milljörðum. Nú er sláturtíð lokið og gekk vel að breyta um 77.000 lömbum í matvæli. Fallþungi dilka er rúm 16 kíló og hefur aldrei verið hærri.

Álveri við Húsavík frestað

Undirbúningi nýs álvers á Bakka við Húsavík hefur verið frestað og rannsóknarboranir, sem áformaðar voru á næsta ári, slegnar af. Viljayfirlýsing Landsvirkjunar og Alcoa um verkefnið var ekki endurnýjuð nú um mánaðamótin þar sem álfyrirtækið treysti sér ekki til að leggja út í frekari kostnað við boranir að sinni.

Örtröð í ríkinu

Töluverð ötröð var í áfengisverslunum ríkisins í dag en verð á áfengi hækkar á morgun að meðaltali um rúm fimm prósent.

Vill fækka þingmönnum um ríflega helming

Það á að fækka þingmönnum um 33, segir formaður Rafiðnarsambandsins. Hann segir sýndarumræður fara fram á Alþingi þar sem þingmenn koma ekki að því að móta þau mál sem þar eru til umfjöllunar, gildir þá einu hvort þeir eru stjórnarþingmenn eða í stjórnarandstöðu. Með tiltekt á Alþingi mætti spara á fjórða milljarð.

Hugmyndir um sameiningu bankanna fjarstæðukenndar

Forsætisráðherra skaut föstum skotum á Björgólf Thor Björgólfsson athafnamann á aðalfundi LÍÚ í dag og sagði hugmyndir hans um sameiningu bankannan hafa verið fjarstæðukenndar.

,,Færeyingar! Íslendingar segja takk"

Opnuð hefur verið vefsíða sem hefur þann tilgang að þakka Færeyingum fyrir veitta aðstoð en tilkynnt var í vikunni að Færeyingar ætla að lána Íslendingum 300 milljónir danskra króna að jafnvirði 6,1 milljarða króna. Hægt er að rita nafn sitt á síðuna.

Selja mat eftir könnun á vilja farþega

„Lögðum töluverða vinnu í að skoða matarþjónustu um borð," segir Guðmundur Óskarsson, forstöðu markaðs- og viðskiptaþróunar Icelandair. Hann segir þá ákvörðun félagsins að selja mat um borð hafa verið tekna eftir rannsóknir á því hvaða þjónusta það var helst sem viðskiptavinir félagsins sækjast eftir.

Stelsjúkur lögguhrotti í þriggja ára fangelsi

33 ára gamall karlmaður, Már Ívar Henrysson var dæmdur í þriggja ára fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Már er m.a dæmdur fyrir brot gegn valdsstjórninni með því að hafa ýmist sparkað, bitið eða hrækt framan í lögregluþjóna þegar hann hefur verið handtekinn. Einnig var hann dæmdur fyrir þjófnaði, tilraun til fjársvika, eignaspjöll, nytjastuld og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Már var einnig sviptur ökuleyfi í fimm ár.

Innbrot í tvær verslanir Zik Zak í nótt - myndband

Brotist var inn í tvær verslanir Zik Zak tískuhúss í nótt og öll skiptimynt tekin. Að sögn Berglindar Ásgeirsdóttur eiganda Zik Zak voru 20 þúsund krónur í hverjum kassa, en alls voru þrír búðarkassar spenntir upp og skemmdir. Hún varar verslunareigendur við að hafa skiptimynt í búðarkössum sínum.

Eiga kost á aukaláni og fyrirgreiðslu hjá LÍN

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fallast á tillögur Lánasjóðs íslenskra námsmanna um aðgerðir til að koma til móts við erfiða stöðu námsmanna erlendis vegna efnahagskreppunnar.

Ekki aka með byssuna hlaðna

Geymið byssu og skot á læstum stöðum, ekki aka á veiðistað með byssuna hlaðna og hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu. Þetta er á meðal þeirra skilaboða sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sendir rjúpnaveiðimönnum, en rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun.

Geir segir að lánið úr neyðarsjóðnum yrði viðbót við aðrar ráðstafanir

„Evrópusambandið hefur frumkvæðið að því að viðra þessa hugmynd við okkur í gegnum sendiráðið í Brussel. Það byggir meðal annars á því að ég skrifaði Sarkozy Frakklandsforseta fyrr í mánuðinum til að útskýra stöðuna á Íslandi," segir Geir Haarde um mögulegt lán Íslendinga úr neyðarsjóði Evrópusambandsins.

Adolf nýr formaður LÍÚ

Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á aðalfundi samtakanna sem lauk í dag.

Starfsmenn Össurar fengu 100.000 króna launabónus

Allir starfsmenn stoðtækjaframleiðandans Össurar hf á Íslandi, um 250 talsins, fengu 100.000 króna launabónus frá fyrirtækinu í dag. Fréttir af niðurskurði og launalækkunum í fjölmörgum fyrirtækjum hafa borist að undanförnu en góð afkoma Össurar er ein helsta ástæða fyrir bónusgreiðslunni.

Icelandair rukkar fyrir matinn

Farþegum Icelandair mun framvegis standa til boða að kaupa sér mat um borð í vélum félagsins. Flugfélagið kynnti í dag ýmsar nýjungar um borð í vélum sínum. Þar á meðal er nýtt farrými, nýir búningar og ný tónlist í vélunum. Þá hefur frá því í vor verið unnið að því að endurnýja innréttingar og afþreyingarkerfi, og er því ferli að ljúka.

Skíðasvæðið á Siglufirði opnað í dag

Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði verður opnað í dag klukkan fjögur. Nægur snjór er á svæðinu og þokkalegasta veður. Stefnt er að því að hafa opið alla helgina.

Sjá næstu 50 fréttir