Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gert ráð fyrir að yfirvinnubannið taki gildi Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir félagið ekki gera ráð fyrir öðru en að boðað yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga sem vinna hjá ríkinu taki gildi þann 10. júlí. 25.6.2008 13:55
Hjúkrunarfræðingar hjá ríkinu í yfirvinnubann 10. júlí Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað yfirvinnubann frá og með 10. júlí næstkomandi eftir að fundi þess með samninganefnd ríkisins lauk án árangurs í morgun. 25.6.2008 13:27
Skartgripasölumennirnir héldu leiðar sinnar í morgun Rúmenarnir sem lögreglan á Selfossi handtók í gær fyrir ólöglega skartgripasölu hafa verið látin laus. Fólkið var handtekið í gær eftir að kvartað hafði verið yfir því að þau væru að selja verðlaust glingur sem fínasta skart. Að sögn lögreglunnar var fólkið vistað í fangageymslum lögreglunnar í nótt en þeim sleppt í morgun eftir að mál þeirra höfðu verið gerð upp. 25.6.2008 13:23
Ráðherrar borga 15 þúsund fyrir afnot af ráðherrabílum Ráðherrar greiða í grunninn 14.896 krónur á mánuði fyrir einkaafnot af ráðherrabílum. Allir núverandi ráðherrar hafa einkabílstjóra og aka um á ráðherrabílum í eigu hins opinbera. 25.6.2008 13:00
Yngri heilabilunarsjúklingar látnir bíða dauðans í geymslu Íslenska heilbrigðiskerfið gerir vart ráð fyrir að fólk undir 65 ára aldri greinist með heilabilunarsjúkdóm. Sérhæfð úrræði eru af skornum skammti og yfirleitt er sjúklingum einfaldlega komið fyrir á hjúkrunarheimilum með mun eldra fólki þar sem ekkert er ýtt undir andlega virkni. 25.6.2008 12:45
Engin lausn í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða Engin lausn virðist vera í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða. Búist er við miklum röskunum á áætlunarflugi þegar verkfallsaðgerðir hefjast á föstudaginn. 25.6.2008 12:08
Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum ekki töpuð Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum er ekki töpuð, segir Sigþrúður Jónsdóttir, íbúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hún segir fleiri landeigendur íhuga málaferli gegn Landsvirkjun eftir að hreppsnefndin ákvað einróma í fyrrakvöld að setja tvær af þremur fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá inn á aðalskipulag. 25.6.2008 12:02
Fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu Efla þarf Ferðamálastofu sem opna og greiðfæra gátt fyrir aðkomu ríkisins að ferðaþjónustu og fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu. 25.6.2008 11:39
Franskar herþotur æra Keflvíkinga Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað til bæjarfélagsins vegna hávaða frá Mirage þotum franska flughersins sem nú sér um loftrýmiseftirlit yfir landinu. Bæjarbúar segja að hávaðinn í vélunum sé mun meiri en hann var þegar Bandaríkjamenn voru hér á sínum tíma með sínar herþotur. Ekki hefur borið á kvörtunum hjá utanríkisráðuneytinu. 25.6.2008 11:28
Vill ekki skapa vangaveltur um forstjórastöðu LSH Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-sjúkrahússins í Noregi, segir að hún vilji ekki skapa vangaveltur varðandi sig og forstjórastöðu LSH. Hulda hefur verið nefnd sem hugsanlegur forstjóri. 25.6.2008 11:28
Segja flugumferðarstjóra ekki vinna mikla yfirvinnu Flugstoðir ohf. hafna þeim fullyrðingum formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra að vinna þeirra sé keyrð á yfirvinnu. Eins og fram hefur komið hafa flugumferðarstjórar boðað til 20 vinnustöðvana frá og með föstudeginum og vilja með því knýja á um nýjan kjarasamning. 25.6.2008 11:25
Mál séra Gunnars sent saksóknara í dag Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn sinni á meintum kynferðisbrotum séra Gunnars Björnssonar, sóknarprests á Selfossi, og verður málið sent ríkissaksóknara í dag. Þetta staðfesti Elís Kjartansson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi, við Vísi. 25.6.2008 10:59
Utanríksiráðherrar norrænu ríkjanna vilja lýðræði í Simbabve Utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi ástandið í Simbabve. 25.6.2008 09:19
Veltu bíl á Suðurstrandarvegi Skömmu fyrir miðnættið í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um bílveltu á Suðurstrandarvegi rétt við Ísólfsskála. Þar höfðu ferðamenn velt bílaleigubíl sínum. Engin slys á fólki og komu farþegarnir sér sjálfir upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem þeir voru á leið í flug. 25.6.2008 07:47
Fjörutíu mál í dagbók lögreglu í nótt Mikill erill var hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins í nótt. Frá miðnætti og til klukkan sex í morgun eru 40 mál skráð í dagbók lögreglunnar. 25.6.2008 07:45
Umboðsmaður átelur Utanríkisráðuneytið Utanríkisráðuneytið vísaði til jafnréttislaga við skipu í stöðu embætti sendifulltrúa í utanríkisþjónustunni. Umboðsmaður Alþingis átelur Utanríkisþjónustuna fyrir það þar sem slíkt réði ekki úrslitum við stöðuveitinguna 24.6.2008 23:10
Agaviðurlög og gjaldþrot í nýjan Evrópu-gagnagrunn Persónuvernd telur ekki þörf á að breyta lögum um persónuvernd vegna þáttöku Íslands í nýjum gagnagrunni á vegum Evrópusambandsins. Í gagnagrunninum verðurmiðlað verður upplýsingum um fjárhagsstöðu einstaklings, hvort hann hafi lögleg starfsréttindi eða gerst brotlegur við lög. 24.6.2008 20:45
Keppt í puttaglímu í ölpunum Gömul þjóðaríþrótt í Bæjaralandi og Austurríki nýtur nú sívaxandi vinsælda. Víða eru haldin mót í puttaglímu og hörðustu keppendurnir fara í sérstakar æfingabúðir. 24.6.2008 23:28
Fær martraðir út af fótamissi Bandarísk kona missti báða fæturna þegar hún varð undir lest segist fá stanslausar martraðir og hroll í hvert skipti sem hún heyrir lest keyra framhjá. 24.6.2008 22:32
Skorið á hjólbarða - faraldur Skorið var á þrjá hjólbarða í Hafnarfirði í gær og sex í Keflavík. Svo virðist sem um faraldur sé að ræða. Kona sem Vísir ræddi við og býr í sömu götu og skorið var á sex bíla í Keflavík var í vinaheimasókn í Hafnarfirði þar sem skorið var gat á dekkið hennar. 24.6.2008 21:38
Snöruprófessor sagt upp störfum Svartur prófessor í Bandaríkjunum breyttist á einni nóttu úr píslarvætti í skúrk. Madonna Constantine komst í heimsfréttirnar þegar hún gekk fram á hengingarsnöru sem hengt hafði verið á dyr skrifstofu hennar. Nú hefur hún verið rekin fyrir ritstuld. 24.6.2008 19:26
Sex í haldi fyrir ólöglega skartgripasölu Lögreglan á Selfossi handtók fjóra karla og tvær konur fyrir ólöglega skartgripasölu. Skartgripasalarnir töldu fólki trú um að átján karata gull væri að ræða en svo var ekki. Glópagullinu var smyglað hingað til lands í bíl. 24.6.2008 17:32
Dæmdir fyrir þjófnað á sígarettum og peningum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo menn í fangelsi fyrir þjófnað. Þeim var gefið að sök að hafa stolið fjórum sígarettukartonum og 360 þúsund krónum úr verslun Olís að Esjugrund á Kjalarnesi. Annar mannana fór í heimildarleysi inn í verslunina með lyklum sem hinn lét honum í té. Sá sem fór inn í verslunina hafði að auki fengið upplýsingar um myndavéla- og öryggiskerfi fyrirtækisins svo hann ætti greiða leið inn í húsnæðið. 24.6.2008 16:28
Jónsmessuganga á Seltjarnarnesi í sól og blíðu Árleg Jónsmessuganga menningarnefndar Seltjarnarness var farin í gærkvöldi. Gengið var eftir Norðurströndinni og út að Gróttu með fyrrverandi bæjarstjóranum Sigurgeir Sigurðssyni. 24.6.2008 16:40
Metþátttaka í dorgveiðikeppni í Hafnarfirði Metþátttaka var í dag í dorgveiðikeppni leikjanámskeiðanna í Hafnarfiði þegar rúmlega 400 börn komu saman á höfninni. 24.6.2008 16:19
Loftþrýstingur yfir landinu veldur góða veðrinu Veðrið hefur verið óvenju hlýtt og gott það sem liðið er af sumri. Þó að Íslendingar hafi oft brennt sig á að vonast eftir að slík tíð haldi áfram þá ætti að vera ágætis líkur á áframhaldandi góðviðri samkvæmt Sigurði Þ. Ragnarssyni eða Sigga stormi, veðurfréttamanninum góðkunna. 24.6.2008 15:52
Þungt hljóð í flugfreyjum Um þriðjungi flugfreyja hjá Icelandair var sagt upp í morgun eftir því sem Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir. Alls var 138 flugfreyjum sagt upp í sparnaðaraðgerðum félagsins en að sögn Sigrúnar voru um 400 flugfreyjur fastráðnar fyrir uppsagnirnar. 24.6.2008 15:38
Tveir í fimm mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fimm mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fíkniefnabrot, umferðarlagabrot, þjófnað og hylmingu. 24.6.2008 15:24
Fær ekki bætur vegna orðaskaks í nágrannadeilum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af kröfu annars manns sem sakaði hann um ærumeiðingar eftir rifrildi. Mennirnir tveir bjuggu í sama húsi og höfðu átt í deilum, meðal annars vegna reykinga í og við húsið. 24.6.2008 15:08
Árekstur við Grindavíkurafleggjara Tveir bílar lentu í árekstri við Grindarvíkurafleggjara nú fyrir stundu. Þrír voru fluttir á slysadeild. 24.6.2008 15:00
Eigandi grafna hundsins fær hann aftur Eigandi hundsins sem fannst grafinn í hrauni við Kúagerði á laugardag fær hann afhentan síðar í dag og hefur því ekki lengur stöðu grunaðs manns. 24.6.2008 14:44
Segja verkföll flugumferðarstjóra aðför að ferðaþjónustu Ferðamálasamtök Íslands segja að yfirvofandi verkföll flugumferðarstjóra, sem hefjast á föstudag, séu aðför að ferðaþjónustunni í landinu. 24.6.2008 14:29
Varar við ruslskilaboðum í síma Í gær barst fjölda símnotenda hér á landi smáskilaboð þar sem þeim var tilkynnt að viðkomandi hefði unnið 170.000 evrur. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, varar fólk við gylliboðum og ruslsendingum í formi smáskilaboða. 24.6.2008 13:49
Sektaður og sviptur fyrir akstur undir áhrifum lyfjakokkteils Karlmaður hefur í Héraðsdómi Suðurlands verið dæmdur fyrir fíknefnakstur í umdæmi lögreglunnar í Selfossi fyrr á þessu ári og var hann í dag sektaður um 180 þúsund krónur vegna athæfisins. 24.6.2008 13:15
Sektuð og svipt ökurétti í tvö ár fyrir fíkniefnaakstur Héraðsdómur Suðurlands sektaði í dag konu um 240 þúsund krónur fyrir að hafa ekið bíl án ökuréttinda og undir áhrifum THC-sýru. 24.6.2008 12:47
Þórunn: Nóg komið af gamaldags lausnum Þórunn Sveinbjarnardóttir segir að fólk sé búið að fá nóg af gamalds lausnum í virkjanamálum. ,,Ég held að fólk sé búið að fá nóg af gömlu lausnunum og meðvitaðra að orkan sem við eigum er mjög verðmæt og hún muni einungis vaxa í verði." 24.6.2008 12:45
Fólk verði áfram á varðbergi gagnvart ísbjörnum Yfirlögregluþjóninn á Sauðárkróki telur fulla ástæðu fyrir fólk að vera áfram á varðbergi gagnvart hugsanlegum ísbjörnum þótt aðeins hafi fundist spor eftir sauðfé á þeim slóðum sem fólk taldi sig sjá ísbjörn í fyrrakvöld. 24.6.2008 12:34
Frístundakort ekki byrjuð að skila tilsettum árangri Frístundakort Reykjavíkurborgar hafa enn sem komið er ekki skilað þeim tilsetta árangri sem vonast var eftir. Nýleg skýrsla sýnir að marktækur munur er á notkun kortsins eftir tekjum því hinir tekjumeiri nýta sér kortið mun betur. 24.6.2008 12:17
Virkjanir í Þjórsá komnar á beinu brautina Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti einróma í gærkvöldi að setja Hvamms og Holtavirkjun inn á aðalskipulag með þeim rökum að þetta væri sá virkjunarkostur sem hefði hvað minnst umhverfsáhrif virkjana á Íslandi. Þar með eru tvær af þremur umdeildum Þjórsárvirkjunum komnar á beinu brautina fyrir Landsvirkjun. 24.6.2008 12:11
Fjöldauppsagnir hjá Icelandair fráleitt einsdæmi Boðaðar uppsagnir Icelandair Group eru í hópi mestu fjöldauppsagna í sögu landsins. Þær eiga sér þó hliðstæður í sögu flugrekstrar hér á landi. 24.6.2008 11:54
Barnaníðingurinn Ágúst barinn af hópi manna Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon var á dögunum laminn fyrir utan heimili sitt af hópi manna. Gengið var í skrokk á Ágústi sem slapp þó óbrotinn frá viðureigninni. Hann hefur ekki kært árásina. 24.6.2008 11:30
Dísellítrinn nálgast óðfluga 200 krónur Verð á eldsneyti hækkaði enn og aftur í dag og í gær og vantar nú aðeins rúmum tveimur krónum upp á að verð á dísilolíu með þjónustu komist í 200 krónur. 24.6.2008 11:04
IKEA innkallar barnasvefnpoka IKEA á Íslandi hefur ákveðið að innkalla Barnslig-svefnpoka og eru viðskiptavinir vinsamlegast um að skila vörunni aftur í IKEA-verslunina gegn fullri endurgreiðslu. 24.6.2008 10:57
Hollenskur smyglari fær að afplána hluta dóms heima Hollendingurinn Johan Hendrick, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir aðild sína að Stóra BMW-málinu árið 2006 þar fjórir menn reyndu að smygla 15 kilóum af hassi og 10 kílóum af amfetamíni í tanki BMW-bifreiðar, hefur fengið leyfi til að afplána hluta dómsins í Hollandi. 24.6.2008 10:18
Landaði um hálfu tonni af humri fram hjá vigt Skipstjóri sem landaði í Vestmannaeyjum nýverið hefur viðurkennt að hafa landað um hálfu tonni af humri fram hjá vigt. 24.6.2008 09:41