Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm milljarða lánsheimild vegna leiguíbúða Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að veita fimm milljarða króna lánsheimild til Íbúðalánasjóðs vegna leiguíbúða. 27.6.2008 15:44
Framtíð Alþjóðahvalveiðiráðsins sett í nefnd Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins ákvað að stofna vinnuhóp sem ætlað er að vinna að lausn ágreiningsmála sem hamlað hafa starfi ráðsins undanfarin ár. 27.6.2008 15:43
Fréttamenn staðfesta aðgangshindranir yfirvalda á Skaga Deilur Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Blaðamannafélags Íslands vegna ísbjarnarmálsins á Hrauni á Skaga halda áfram. 27.6.2008 15:32
Bakkafjöruvegur hefur áhrif á fuglalíf Skipulagsstofnun telur að framkvæmdir vegna ferjuhafnar í Bakkafjöru, vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju, séu ásættanlegar en setur þó skilyrði fyrir framkvæmdinni. Þetta kemur fram í áliti stofnunarinnar sem lagt var fram í dag. 27.6.2008 15:19
Hægt að bjóða út rekstur á ráðherrabílum Guðmundur Hannesson hjá Innkaupastofnun segir að hægt sé að bjóða út kaup og rekstur á ráðherrabifreiðum. ,,Það er hugsanlegt. Það er hægt að bjóða allt út," segir Guðmundur. 27.6.2008 15:00
Varað við hálku og snjókomu eystra í nótt Veðurstofa Íslands varar við hálku og snjókomu á Fjarðarheiði, Hellisheiði eystri og Vatnsskarði eystra aðfaranótt laugardags. 27.6.2008 14:44
Bjóða ungum jafnaðarmönnum í Vg Ung Vinstri - græn hvetja ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoða val sitt á flokki í ljósi nýjustu frétta. 27.6.2008 14:35
Tók upp samfarir á símann sinn Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir brot gegn blygðunarsemi 17 ára stúlku. Maðurinn var staddur í sumarbústað og tók upp myndskeið á símann sinn, þar sem vinur hans hafði samfarir við stúlkuna í heitum potti. Eitt myndskeiðanna sendi hann í síma tengdamóður sinnar. 27.6.2008 14:23
Sýknaður af hnífstungu við Hellisheiðarvirkjun Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag pólskan karlmann af ákæru um líkamsárás. Honum var gefið að sök að hafa lagt til samlanda síns með eggvopni þanning að hann fékk skurð á kálfa. Atvikið átti sér stað í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í nóvember í fyrra. 27.6.2008 14:21
Halldór vissi af aðgerðum ríkisstjórnar klukkan þrjú Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja, vissi klukkan þrjú um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði og kynntar voru einum og hálfum tíma síðar síðastliðinn fimmtudag. Þetta er staðfest í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi frá sér í dag. 27.6.2008 14:13
Aukin aðsókn í störf á sambýlum og frístundaheimilum Það hefur varla farið framhjá mörgum að atvinnumarkaðurinn hefur breyst umtalsvert í ár. Síðustu ár hefur reynst erfitt að manna störf á vegum ríkis og sveitafélaga, til að mynda í þjónustu við fatlaða, leikskólum og frístundaheimilum. Vegna samdráttar stóru fyrirtækjanna upp á síðkastið hefur þó reynst breyting þar á. Bæði Guðný Anna Arnórsdóttir starfsmannastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík sem og Steingerður Kristjánsdóttir sem sér um starfsmannamál fyrir frístundaheimili í Reykjavík sjá aukningu í aðsókn í störf hjá þeim. 27.6.2008 14:10
Fjölbýlum á hjúkrunarheimilum eytt á næstu misserum Gert er ráð fyrir að heildarábyrgð á þjónustu við aldraða verði færð til sveitarfélaga eigi síðar en á árinu 2012 og að fjölbýlum á hjúkrunarheimilum verði eytt á næstu misserum. 27.6.2008 13:51
Topp-Starf er gott starf Í sumar hafa ungmenni með þroskahömlun á aldrinum 16 til 20 ára starfað í verkefninu Topp-Starf í Hinu Húsinu. ,,Það er rosalega gaman í vinnunni. Mér finnst skemmtilegast að vinna í barnagæslunni í World Class út af því litlu börnin eru svo skemmtileg við mig. Mér finnst gott að prófa öðruvísi vinnur. Ég hef líka unnið í Bónus við að safna kerrum saman, í Valsheimilinu og Póstinum en mér finnst skemmtilegast í barnagæslunni,” segir Ásdís Ásgeirsdóttir, starfsmaður Topp-Starfs. 27.6.2008 13:26
Ræðst á næstu dögum hver fær Laxá í Leirársveit á leigu Byrjun laxveiðitímabilsins lofar góðu og er byrjunin í Laxá í Leirársveit betri en í fyrra. Á næstu dögum skýrist hver fær ána á leigu næstu þrjú árin, en Stangveiðifélag Reykjavíkur átti hæsta tilboðið. 27.6.2008 13:23
Franskar herþotur farnar af landi brott Frönsku herþoturnar sem gætt hafa loftrýmisins yfir Íslandi hafa lokið verkefnum sínum og héldu af landi brott í morgun. 27.6.2008 13:14
Margir sækja um í HR Mikil eftirspurn er eftir að komast í nám í Háskólanum í Reykjavík. Alls sóttu rúmlega 2200 manns um skólavist við skólann fyrir næsta skólaár. Aldrei fyrr hafa jafnmargir sóst eftir því að stunda nám við skólann. Í fyrra voru umsækjendur í fyrsta sinn í sögu skólans yfir 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR. 27.6.2008 13:08
Skuggahverfi dæmt til að greiða Þorvaldi og frú um fjórar milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 101 Skuggahverfi til þess að greiða Þorvaldi Gylfasyni háskólaprófessor og konu hans, Önnu Karítas Bjarnadóttur, 4,1 milljón króna í bætur vegna galla á íbúð sem þau keyptu í Skuggahverfinu árið 2005. 27.6.2008 13:03
Samfylkingin þurfti að gefa eftir í umhverfismálum Einn helsti hugmyndafræðingurinn á bak við umhverfisstefnu Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi þurft að gefa eftir veigamikil atriði í umhverfismálum í ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hann vill þó ekki meina að Fagra Ísland séu orðin tóm. 27.6.2008 12:28
Slæmt að fámenn stétt geti valdið svo mörgum óvissu og tjóni Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda telur slæmt að svo fámenn og vellaunuð stétt sem flugumferðastjórar eru geti valdið svo mikilli óvissu og tjóni á meðal fjölda fólks með því að beita verkfallsrétti sínum. 27.6.2008 12:13
Flug komið í eðlilegt horf Flug er svo gott sem komið í eðlilegt horf eftir aðgerðir flugumferðarstjóra. Aðgerðir flugumferðarstjóra stóðu í rúmar tvær klukkustundir. 27.6.2008 12:04
Meira þarf til en að skipta um oddvita ,,Það virðist sem mun meira þurfi að koma til hjá Sjálfstæðisflokknum en að skipta um oddvita," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ. 27.6.2008 12:03
Ungir jafnaðarmenn húðskamma Samfylkingarráðherra Ungir jafnaðarmenn átelja ráðherra Samfylkingarinnar harðlega fyrir að stuðla að tveimur nýjum álverum á Íslandi og ganga þar með gegn stefnu flokksins í umhverfismálum. 27.6.2008 11:57
Gat á bensíntanki batt enda á flótta Gat á eldsneytistanki batt enda á flóttatilraun ökumanns sem grunaður er um ölvunarakstur á Akranesi í síðustu viku. 27.6.2008 11:41
Lögmaður höfuðpaursins: „Maður hefur ekki séð þetta áður“ „Ég er ekki sammála dómnum enda voru engin bein sönnunargögn sem tengdu hann þessu máli. Þetta voru meira og minna spádómar um eitthvað sem menn hefðu getað verið að tala um,“ segir Grímur Sigurðarson, lögmaður Antons Kristins Þórarinssonar, sem í gær var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir smygl á um 700 grömmum af kókaíni. 27.6.2008 11:34
Sundlaugarhús á Akranesi skemmdist mikið vegna gufu Miklar skemmdir urðu á sundlugarhúsi Bjarnalaugar á Akranesi í síðustu viku eftir að óprúttnir aðilar brutust þar inn. 27.6.2008 11:29
Matsmenn kallaðir til í Mýrarhúsaskólamáli Matsmenn verða kallaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna skaðabótamáls kennara á hendur móður stúlku sem skellti hurð á kennarann. Dómur hefur þegar fallið í málinu í héraðsdómi en matsgerð sérstakra matsmanna á að leggja fyrir Hæstarétt þegar hann tekur málið fyrir. 27.6.2008 11:12
Staða fatlaðra verst á Suðvesturhorninu Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar, segir að staðan í málefnum fatlaðra sé verst í Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. ,,Það er pólitísk ákvörðun tekin af Alþingi sem ákvað að setja ekki aukið fjármagn í málaflokkinn á svæðinu. Á seinsta ári kölluðum við eftir auknu fjármagni í uppbyggingu en töluðum fyrir daufum eyrum," segir Gerður. 27.6.2008 10:28
Slegist með golfkylfum, öxi og borðfótum á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast við að stilla til friðar í gærkvöldi þegar sló í brýnu á milli stríðandi fylkinga úr undirheimum bæjarins. Að sögn lögreglu snérist málið um fartölvu sem hóparnir ásökuðu hvorn annan um að hafa stolið. Töluverð slagsmál brutust út og var gripið til vopna. 27.6.2008 09:48
„Þetta horfði þunglega í alla nótt“ „Þetta horfði þunglega í alla nótt alveg fram undir morgun,“ sagði Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, sem í morgun náði samkomulagi í kjaradeilu sinni við samninganefnd Samtaka atvinnulífsins sem semur fyrir hönd Flugstoða ohf. 27.6.2008 09:42
Rafmagnslaust á hluta Sauðárkróks Rafmagnslaust er nú á hluta Sauðárkróks eftir að háspennurofi í rafstöð í bænum brann yfir. 27.6.2008 09:30
Landsbjörg með björgunarsveitir á hálendinu í sumar Slysavarnafélagið Landsbjörg hyggst í sumar verða með slysavarnaverkefni á hálendinu, þriðja sumarið í röð. 27.6.2008 09:25
Samið í flugumferðarstjóradeilu Samkomulag hefur náðst í deilu flugumferðarstjóra og samninganefndar Samtaka atvinnulífsins og gerðist það rétt í þessu. Verið er að ganga frá henni samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá ríkissáttasemjara. 27.6.2008 09:10
Ók á börnin á Lækjartorgi Rétt fyrir klukkan fimm í morgun varð umferðaróhapp í Lækjargötunni. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á veggnum sem settur hefur verið upp utan um brunarústirnar á horni Lækjargötu og Austurstrætis. 27.6.2008 08:38
Vinnustöðvun flugumferðarstjóra hafin Vinnustöðvun Félags íslenskra flugumferðarstjóra hófst klukkan 7 í morgun og er ráðgert að hún standi í fjórar klukkustundir. Þegar rætt var við starfsfólk Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar rétt fyrir átta fengust þau tíðindi að fjöldi farþega væri samankominn í flugstöðinni og biðu menn átekta. 27.6.2008 07:02
Samfylkingin með meirihluta í borginni Samfylkingin hlyti meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, átta borgarfulltrúa, gengi það eftir sem fram kemur í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Morgunblaðið segir frá þessu í morgun en könnunin var framkvæmd fyrir Samfylkinguna dagana 2. - 22. júní. 27.6.2008 07:00
Erill í miðborginni og eldur í Álfsnesi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í nótt, að sögn vakthafandi varðstjóra. Borgarbúar nutu mikillar veðurblíðu og var margt um manninn í miðbænum enda komið fram á þann tíma að margir eru í sumarfríi. Nokkuð var um ölvun og háreysti að sögn lögreglu, tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn gisti fangageymslur. 27.6.2008 06:50
Mátti ekki mynda undirskrift Ljósmyndaranum Gunnari V. Andréssyni var meinað að mynda þegar skrifað var undir viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, Alcoa og Norðurþings í Iðnaðarráðuneytinu í morgun. 26.6.2008 20:08
Lýsa eftir vitnum að dauðaslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að dauðaslysinu á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk. 26.6.2008 23:00
Búið að flýta flugi til Barcelona Sigurður Valur Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Iceland Express, hvetur farþega til að fylgjast vel með flugi frá landinu vegna fyrirhugaðs verkfalls flugumferðarstjóra. Flugi til Barcelona hefur verið flýtt vegna málsins. 26.6.2008 21:24
Vill bráðabirgðalög á aðgerðir flugumferðarstjóra Markaðsstjóri Flugfélags Íslands vill að sett verði bráðabirgðalög á aðgerðir flugumferðarstjóra. Forseti Íslands er ekki á landinu til að undirrita slík lög en forsætisráðherra sem verið hefur í útlöndum er væntanlegur til starfa í fyrramálið. Ríkisstjórnin mun þá funda um málið 26.6.2008 20:31
Engin sátt í tölvupóstmáli Jónínu Stjórnvöld ætla ekki að leita sátta í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn íslenska ríkinu og því er líklegt að málið verði tekið fyrir hjá Mannréttindadómstóli Evrópu innan tíðar. 26.6.2008 18:55
Neðanjarðarlest betri kostur Dýr göng og lestarkerfi gætu þýtt að ríkið tæki upp vegatolla. Verkfræðingar í Háskóla Íslands vilja hins vegar sjá alvöru skoðun á lagningu neðanjarðarlesta 26.6.2008 18:51
Útsvarstekjur borgarinnar minnka um 700-800 milljónir á árinu Útsvarstekjur borgarinnar á árinu verða 700-800 milljónum króna minni en áætlað var. Þetta segir í minnisblaði sem borgarhagfræðingur lagði fram á borgrráðfundi í dag. Borgarráð lýsir yfir áhyggjum af breyttum efnahagshorfum. 26.6.2008 17:45
Hvetur farþega til að fylgjast með brottförum á morgun Þar sem enn er óljóst hvort af verkfalli flugumferðarstjóra verður í fyrramálið og hvaða flug verður hugsanlega fyrir röskun ef af því verður hvetur Icelandair þá sem eiga bókað flug hjá félaginu á morgun að fylgjast með upplýsingum á textavarpi og vefmiðlum sem birta komu- og brottfarartíma í Leifsstöð. 26.6.2008 17:33
Tveir menn á sextugsaldri teknir ölvaðir og próflausir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær tvo menn á sextugsaldri fyrir ölvunarakstur. 26.6.2008 17:10