Fleiri fréttir

Bankaræningi hefur játað

Karl á þrítugsaldri hefur játað að hafa framið rán í útibúi Landsbankans á Bæjarhrauni í Hafnarfirði síðastliðinn miðvikudag en maðurinn var handtekinn í gærkvöld. Hann var einn að verki.

Í spreng fyrir utan Baðhúsið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrotstilraun í Baðhúsið í Brautarholti rétt fyrir klukkan fimm í morgun.

Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu strandaglópa

Björgunarsveitarmenn þurftu að aðstoða fólk sem hugðist fara yfir Steingrímsfjarðarheiði í nótt, en heiðin var lokuð sökum ófærðar. Að sögn lögreglu urðu fjölmargir strandaglópar á Hólmavík vegna ófærðar.

Byrjaði smátt og bætti við

Bílastæði eru hluti af andliti fyrirtækja út á við. Ýmsir hafa falið BS verktökum umsjá þeirra. „Við málum línur á bílastæði, sópum þau og gerum við malbik og kantsteina auk þess að setja upp skilti. Þetta er eina fyrirtækið hér á landi sem hefur þetta allt á einni hendi,“ segir Bjarni Hilmar Jónsson, forstjóri BS verktaka, þegar hann er spurður út í starfsemina.

Lögreglan á Akureyri biður ökumenn að fara gætilega

Lögreglan á Akureyri hafði samband við Vísi fyrir stundu og vildi brýna fyrir ökumönnum á norðurlandi að fara varlega á vegum úti. Fjórir árekstrar hafa orðið í grennd við bæjarfélagið nú í kvöld en mikil hálka er fyrir norðan.

Steingrímsfjarðarheiði ófær

Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði þar sem er mikil stórhríð. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og Snjóþekja og éljagangur á Laxárdalsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í kvöld.

Móðir Byrgisstúlku gat ekki lesið dóminn vegna hryllings

Oddrún Einarsdóttir móðir stúlku sem varð fórnarlamb Guðmundar Jónssonar í Byrginu segist hafa þurft að hætta að lesa dóminn sem féll í svokölluðu Byrgismáli í dag þar sem lýsingarnar voru svo hræðilegar. Mæður stúlknanna þriggja voru í viðtali í Íslandi í dag fyrir stundu. Þær eru ekki smeykar um að Guðmundur verði sýknaður í Hæstarétti.

Sauðaþjófnaðarmálinu á Höfn lokið

Rannsókn á svokölluðu sauðaþjófnaðarmáli á Höfn sem lögreglustjórinn á Eskifirði fór með er lokið. Ákveðið var að fella málið niður þar sem sönnunargöngin í málinu þóttu ekki nægjanleg til sakfellingar.

Segir niðurstöðu Hæstaréttar miður

Í dag birti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu í máli rétthafa gegn Svavari Lúthersyni og Istorrent ehf. Snæbjörn Steingrímsson hjá rétthafasamtökunum Smáís segir niðurstöðuna miður þar sem málinu hafi verið vísað frá á þeim forsendum að málsóknarumboð væru ekki gild.

Borgarstjóri með lygaþvælu skrifaða á ennið

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir Ólaf F. Magnússon borgarstjóra ekki þann heilindamann sem hann segist vera. Í harðorðri yfirlýsingu frá Óskari segir hann borgarstjóra með lygaþvælu og svik skrifað á ennið.

Borgarfulltrúar þurfa ekki að óttast úttekt á utanlandsferðum

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ráðningu Jakobs Frímanns Magnússonar vera sambærilega við ráðningar hjá borginni undanfarin ár. Hann segist ekki óttast boðaða úttekt borgarstjóra á utanlandsferðum borgarfulltrúa en segir nauðsynlegt að þeir ferðist til útlanda til að læra af reynslu annara.

Segist ekki hafa lagt drög að handtöku Jóns Ásgeirs

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir það rangt sem fram hafi komið í fréttaskýringu DV þann 1. maí að hann hafi lagt drög að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, yrði handtekinn í framhaldi af húsleit hjá Baugi.

„Starfið verður auglýst í fyllingu tímans“

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um það hafi verið rætt innan meirihlutans að fá sterkan aðila að málefnum miðborgarinnar. Gríðarlegir hagsmunir séu í húfi og óvissutímabil framundan. Hann segist þeirrar skoðunnar að auglýsa eigi öll störf innan borgarkerfisins en að gild rök geti verið fyrir því að gera á því undantekningu eins og gert var þegar Jakob Frímann Magnússon var ráðinn framkvæmdastjóri miðborgar. Hann segist gera ráð fyrir að starfið verði auglýst í fyllingu tímans.

Dæmdur fyrir að sparka í höfuð manns

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sparkað í höfuðið á öðrum manni við útitaflið í miðbænum.

Guðmundur var með dýflissu í Hafnarfirði

Í framburði fórnarlamba Guðmundar Jónssonar í Byrginu kemur fram að á heimili hans í Háholti í Hafnarfirði var dýflissa sem Guðmundur notaði þegar hann stundaði bdsm kynlíf með skjólstæðingum sínum á meðferðarheimilinu.

Semja ekki við Landsvirkjun vegna virkjana í Þjórsá

Landeigendur við neðanverða Þjórsá fagna yfirlýsingu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra þess efnis að hún muni ekki beita eignarnámi til þess að tryggja Landsvirkjun nauðsynleg lands- og vatnsréttindi til virkjanaframkvæmda.

Minntust uppgjafar nasista í síðari heimsstyrjöldinni

Í dag er þess víða minnst að sextíu og þrjú ár eru liðin frá því að herir nasista gáfust upp fyrir bandamönnum í heimsstyrjöldinni síðari. Minningarathöfn var við minnismerki Rússa í Fossvogskirkjugarði í morgun.

Ráðlagði Ólafi að auglýsa miðborgarstarf

Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ráðningar Jakobs Frímanns Magnússonar í starf framkvæmdastjóra miðborgar. Þar staðfestir hún að hún hafi ráðlagt Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra að auglýsa starf miðborgarstjóra.

Vilhjálmur og Ólafur F. sammála um ráðningu Jakobs

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri ráðfærði sig við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita Sjálfstæðismanna, áður en hann réð Jakob Frímann Magnússon sem framhandlegg sinn. Þetta staðfesti Vilhjálmur við Vísi í dag.

Guðmundur virtist hafa valið sér fórnarlömb

Dómarar í Byrgismálinu fara hörðum orðum um Guðmund Jónsson í dómnum sem kveðinn var upp í morgun. Guðmundur hafi unnið markvisst að því að fá kærendur til fylgilags við sig og hann virðist hafa valið sér fórnarlömb sem áttu mjög erfiða kynlífsreynslu að baki.

Umferðarslys á Holtavörðuheiði

Umferðarslys varð fyrir stundu á Holtavörðuheiði en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er ekki talið að slysið sé alvarlegt.

Gerir ráð fyrir að dómi verði áfrýjað

Hilmar Baldursson, verjandi Guðmundar Jónssonar í Byrginu, sagði við fréttamenn eftir að dómur yfir Guðmundi var kveðinn upp að hann gerði ráð fyrir að honum yrði áfrýjað.

Íslendingar missa ekki svefn yfir jarðhlýnun

Íslendingar hafa ekki þungar áhyggjur af því að hlýnun jarðar muni valda þeim búsifjum. A.m.k. ekki ef marka má nýlega könnun Gallup International sem gerð var víða um heim í tilefni af degi jarðarinnar 22. apríl.

Guðmundur í Byrginu í þriggja ára fangelsi

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í starfi sem forstöðumaður. Hann var einnig dæmdur til þess að greiða um 12 milljónir í sakarkostnað og miskabætur. Dómur var kveðinn upp fyrir stundu.

Útflutningur jókst um fjórðung í fyrra

Útflutningur frá Íslandi í fyrra jókst um rúmlega fjórðung á milli ára á meðan innflutningur dróst saman um eitt prósent. Þetta kemur fram í heftinu Utanríkisverslun sem Hagstofa Íslands gefur út.

Sjá næstu 50 fréttir