Fleiri fréttir

Íbúar í Hólahverfi fordæma veggjakrot

„Ég veit ekkert verra, þetta er ömurlegt,“ sagði íbúi við Krummahóla í samtali við blaðamann Vísis og átti við veggjakrot sem áberandi er í Hólahverfinu í Breiðholti eins og víðar um bæinn.

Verðandi iðnaðarmenn keppa í Laugardalshöllinni

Íslandsmót iðngreina hófst í morgun í gömlu Laugardalshöllinni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra setti mótið kl. 11 og stendur það til kl. 18 í dag, föstudag, og kl. 9-18 á morgun, laugardag. Sýnt verður beint frá keppninni á Netinu.

Búast við löngum fundi stjórnar OR

Nú stendur yfir fundur stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur á 6.hæð í húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi. Fundarmenn vildu lítið tjá sig við fjölmiðla fyrir fundinn en bjuggust við löngum fundi.

Erlent vinnuafl forsenda hagvaxtar

Framlag erlends vinnuafls verður ein meginforsenda hagvaxtar hér á landi á komandi árum samkvæmt rannsókn Samtaka atvinnulífsins. Samkeppnisstaða Íslands um hæft starfsfólk er í meðallagi.

Heitavatnslaust í Neðra-Breiðholti

Stofnæð heita vatnsins í Neðra-Breiðholti er biluð og af þeim sökum verður heitavatnslaust í Bakkahverfi fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Hollvinir hallargarðsins stofna samtök

Stofnfundur Hollvinasamtaka Hallargarðsins verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11, sunnudaginn 20. apríl kl. 13.00. Flutt verða stutt ávörp og boðið verður upp á leiðsögn um húsið og garðinn.

Enn réttað í TR-fjársvikamáli

Fyrirtaka var í morgun í hinu umfangsmikla fjársvikamáli sem upp komst í Tryggingastofnun Ríkisins. Höfuðpaurinn í því máli er 45 ára fyrrverandi starfsmaður TR sem grunuð er um að hafa stolið 76 milljónum króna úr sjóðum stofnunarinnar og komið til vina og vandamanna.

REI ekki selt - Hætt við áhættusöm verkefni

Ekki verður lögð fram tillaga um að hefja undirbúning að sölu REI á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag eins og Fréttablaðið greinir frá. Heimildir Vísis herma að engin slík tillaga verði lögð fyrir á fundinum en hinsvegar verði rætt hvort hægt sé að losa REI út úr þeim verkefnum sem þykja of áhættusöm.

Sjálfstæðisflokkurinn með „óábyrgar skyndihugmyndir“

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að sé forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag rétt sé Sjálfstæðisflokkurinn að ganga gegn málegnasamningi sitjandi meirihluta. Fréttablaðið segist hafa fyrir því heimildir að samkomulag hafi náðst innan meirihluta stjórnar Orkuveitunnar að samþykkja tillögu um að hefja undibúning að sölu REI.

Fyrirlestur um jarðskjálftaáhættu

Dr. John Douglas frá BRGM í Orleans í Frakklandi heldur fyrirlestur í boði verkfræðideildar Háskóla Íslands í stofu 158 í VRII mánudaginn 21. apríl kl. 16:00.

Forsætisráðherra höggvi á löggæsluhnút

Opinn borgarafundur, sem haldinn var á Ránni í Reykjanesbæ í gærkvöldi, skorar á forsætisráðherra, Geir H. Haarde, að höggva á þann hnút og deilur sem nú eru uppi um lögreglustjóraembættið á Suðurnesjum.

Nokkur erill hjá slökkviliði í nótt

Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu átti nokkuð annríkt í nótt og kom til þriggja útkalla. Um klukkan hálftólf í gærkvöldi var tilkynnt um eld í skipi er lá við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.

Töluvert um ölvunarakstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti tiltölulega rólega nótt, að sögn varðstjóra. Þó var nokkuð um það að borgararnir settust undir stýri eftir að hafa fengið sér eitthvað hjartastyrkjandi en sex mál komu upp vegna ölvunaraksturs í nótt.

Nýr einkarekinn leikskóli í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær og Bjargir leikskólar ehf undirrituðu þjónustusamning í hádeginu í dag, um leikskólastarf og rekstur ungbarnaleikskóla í Hafnarfirði. Hann mun heita Leikskólinn Bjarmi.

Enginn rökstuðningur fyrir 3% takmörkum

Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að úrskurður Samkeppniseftirlitsins um eignarhald Orkuveitunnar á REI gangi lengra en hann hafi gert ráð fyrir.

Lög um dýravernd verði endurskoðuð

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að endurskoða dýraverndarlög. Markmið með endurskoðun laganna er meðal annars að stjórnsýsla og eftirfylgni mála á sviði dýraverndar verði skilvirk og sem einföldust í framkvæmd.

Bjargráðasjóður lagður niður

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að Bjargráðasjóður verði lagður niður. Um leið á að skipta eignum hans á milli eigenda, sem eru ríkið, sveitarfélögin og Bændasamtök Íslands.

Stál í stál vegna REI

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að ekki komi til greina að selja einkaaðilum hlut í REI. Þetta kom fram í Kastljósi nú í kvöld.

Ber einn tjón vegna stolinna bíla

Bandarísk tollayfirvöld segja nú ekkert benda til að stolnir bílar frá Bandaríkjunum hafi verið seldir til Íslands. Viðtæk rannsókn þeirra bendi til að Íslendingur sem keypti 11 stolna bíla sé sá eini sem lent hafi klóm glæpagengis. Kaupandinn var nýgræðingur og mun sjálfur bera tugmilljóna króna tjón vegna þessa.

Sveitarfélögin voru blekkt

Stjórnvöld blekktu sveitarfélögin vísvitandi með nýrri skipulags- og byggingalöggjöf, segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs. Hann segir að sveitarfélögum hafi verið talin trú um að skipulagsmál væru á þeirra valdi, en raunin sé allt önnur.

Gætu orðið Íslendingum til skammar

„Það er mjög alvarlegt ef hringlandahátturinn í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins er farinn að verða okkur Íslendingum til skammar á alþjóðavettvangi,“ segir í orðsendingu frá Sigrúnu Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

Reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu

Óprúttnir aðilar reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu í Árnessýslu í gær að sögn lögreglunnar á Selfossi. Um kvöldmatarleytið fékk hún símtal frá konu sem talaði mjög skýra ensku.

OR má einungis eiga þrjú prósent í HS

Orkuveita Reykjavíkur má aðeins eiga þrjú prósent af heildarhlutafé Hitaveitu Suðurnesja samkvæmt ákvörðun sem Samkeppniseftirlitið birti í dag.

Sektaðir fyrir brot á útvarpslögum

Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjaness og sektaði fjóra menn um hálfa milljón hvern fyrir brot á útvarpslögum.

Sömu laun fyrir sömu vinnu hjá RÚV

Í ræðu sinni á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. minntist Ómar Benediktsson, stjórnarformaður félagsins á umræðu síðustu vikna um laun stjórnenda hjá RÚV. Vísir hefur óskað eftir upplýsingum um laun dagskrárstjóranna Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur. Enn hafa þær upplýsingar ekki verið veittar. Ómar segir sömu laun vera greidd fyrir sömu vinnu hjá Ríkisútvarpsins.

Stjórnarformaður RÚV með 200 þúsund á mánuði

Á fyrsta aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. sem haldinn var í dag voru laun stjórnarmanna í félaginu ákveðin. Fundurinn samþykkti að greiða stjórnarmönnum 100 þúsund krónur á mánuði. Stjórnarformaður fær 200 þúsund krónur á mánuði fyrir sín störf og varamenn í stjórn fá 25 þúsund krónur fyrir hvern fund.

Ferjusamningafundur í Eyjum yfirstandandi

„Það er verið að fara yfir málin núna, við vitum ekki enn hvort okkar tilboði verður tekið eða því hafnað eða hvað verður gert, þetta eru fyrstu samningaviðræður.

Vilja reisa netþjónabú í Þorlákshöfn

Samkomulag hefur náðst á milli sveitarfélagsins Ölfuss og fyrirtækisins Greenstone ehf. um viljayfirlýsingu um uppbyggingu netþjónabús í sveitarfélaginu.

Nútímaíslenska kennd við 40 háskóla

Íslenskukennsla við erlenda háskóla og þýðingar íslenskra bókmennta á erlend tungumál er meðal yrkisefna málþings Íslenskrar málnefndar, Bókmenntasjóðs og Háskólabókasafns sem haldið verður í Þjóðarbókhlöðunni á morgun.

Undibúa koltrefjaverksmiðju á Króknum

Kaupfélag Skagfirðinga, Gasfélagið og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert með sér samkomulag um að stofna undirbúningsfélags sem hyggst reisa koltrefjaverksmiðju á Sauðarkróki.

RÚV tapaði 20 milljónum á mánuði

Ríkisútvarpið hélt í dag sinn fyrsta aðalfund eftir að stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Þar kom meðal annars fram að tap af rekstri félagsins nam um 108 milljónum króna á þessu fyrsta rekstrartímabili sem markast af 1. apríl 2007 til 31. ágúst 2007.

Óskar vill viljayfirlýsingar REI upp á borðið

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins vill að viljayfirlýsingar sem Reykjavík Energy Invest hefur undirritað síðustu daga verði kynntar í borgarráði. Hann segir nauðsynlegt að skýra frá innihaldi yfirlýsinganna, ekki síst í ljósi þess sem hann kallar misvísandi ummæli sjálfstæðismanna í málinu.

Hent út á sloppnum einum fata

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk heldur óvenjulegt verkefni á dögunum sem tengdist erjum á heimili fólks. Lögreglan var kölluð að húsi og þegar þangað var komið var karlmaður þar utandyra.

Samráð um framkvæmdir á gatnamótum

Borgaryfirvöld ætla að hafa samráð með íbúum í Hlíðunum og nágrenni um framkvæmdir tengdum mislægum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Á annað hundrað manns mættu á kynningarfund sem haldinn var um málið í gær.

Gagnrýndu skipulag þingfundar í dag

Stjórnarandstaðan gagnrýndi á Alþingi í morgun að haldinn væri langur fundur á Alþingi um samgöngu- og menntamál á sama tíma og samgönguþing og aðalfundur Ríkisútvarpsins færu fram.

Sjá næstu 50 fréttir