Gætu orðið Íslendingum til skammar 17. apríl 2008 18:25 Sigrún Elsa Smáradóttir. „
Það er mjög alvarlegt ef hringlandahátturinn í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins er farinn að verða okkur Íslendingum til skammar á alþjóðavettvangi," segir í orðsendingu frá Sigrúnu Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Sigrún segir að síðan Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna hafi tekið við sem stjórnarformaður REI hafi fjölmargar viljayfirlýsingar verið undirritaðar víðsvegar um heiminn. Hún bendir á að skrifað hafi verð undir viljayfirlýsingu við Eþíópíu. Í Djibuti hafi svo verið skrifað undir tvíþætta samninga. Annarsvegar um að ráðast í hagkvæmniathugun, þar sem boðin verði út borun á allt að fimm tilraunaborholum til að kanna efnasamsetningu og kraft svæðisins. Hins vegar hafi verið skrifað undir drög að samningi um virkjun í kjölfarið, reynist niðurstaða tilraunaborunnar jákvæð. Í sömu ferð hafi verið skrifað undir viljayfirlýsingu í Jemen og nú sé forstjóri REI í Alaska að kanna möguleika í virkjunarframkvæmdum þar. „Yfirlýsingar stjórnarformanns REI eftir heimkomu sína, um að Orkuveitan sé að hægja á útrás sinni og dragi sig út úr verkefnum, ganga því þvert á hans eigin störf og athafnir. Auk þess sem hugleiðingar hans um einkavæðingu og hugsanlega sölu á REI ganga þvert á stefnu borgaryfirvalda sem sameiginleg niðurstaða náðist um í Stýrihópi borgarráðs fyrir nokkrum vikum síðan," segir Sigrún Elsa. Sigrún Elsa segir að Íslendingar verði sér til skammar á alþjóðavettvangi dragi REI sig út úr verkefninu í Djibuti vegna duttlunga borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna. Nú þegar sé búið er að vekja miklar væntingar heimamanna í Djibuti og blanda alþjóðlegum bönkum í málið. Sigrún Elsa segir að Kjartan Magnússon, stjórnarformaður REI, verði að standa við gefnar yfirlýsingar og læra að standa í lappirnar gagnvart upphlaupum í röðum sjálfstæðismanna í borginni ætli hann sér önnur eftirmæli í pólitík en að hafa klúðrað íslensku orkuútrásinni.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Fleiri fréttir Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Sjá meira