Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sektuð fyrir að slá til strætóbílstjóra Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu til að greiða 30 þúsund króna sekt fyrir að ráðast á strætisvagnastjóra og slá hann í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut eymsli við nefið og mar á kinn og kinnbeini. 14.1.2008 10:05
Skólahaldi aflýst í Grindavík vegna veðurs Mikil ófærð er í Grindavík þessa stundina og hefur skólahaldi verið frestað fram að hádegi vegna veðurs. Björgunarsveitamenn í Björgunarsveitinni Þorbirni hafa verið að störfum frá því klukkan fimm í morgun við að aðstoða ökumenn við að komast leiðar sinnar. 14.1.2008 10:03
Verðbólga óbreytt milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,28 stig frá fyrra mánuði og og mælist verðbólga hér á landi nú 5,9 prósent samkvæmt Hagstofu Íslands. 14.1.2008 09:20
Björk réðst á ljósmyndara á Nýja Sjálandi Flestir fjölmiðlar í Nýja Sjálandi greina frá því að söngkonan Björk Guðmundsdóttir hafi ráðist á ljósmyndara við komuna til Auckland en þar á hún að koma fram á tónlistarhátíð. Árásin átti sér stað á flugvellinum í Auckland og mun Björk hafa rifið stuttermabol ljósmyndarans í tvennt. 14.1.2008 08:40
Bæjaryfirvöld lækki nýtingarhlutfall á Gróttusvæðinu Íbúahópur um lágreista byggð austan við Gróttu á Seltjarnarnesi skorar á bæjaryfirvöld að lækka nýtingarhlutfall á svæðinu. 14.1.2008 07:55
Tveir 15 ára brutust inn í 15 bíla á Selfossi Tveir 15 ára piltar hafa játað að hafa brotist inn í 15 bíla á Selfossi aðfararnótt laugardagsins og stolið ýmsu smálegu úr þeim. 14.1.2008 07:53
Komust undan á hlaupum frá skemmdarverki Brotist var inn í verslanamiðstöina Grímsbæ í nótt og málningu sprautað úr úðabrúsum á nokkra veggi. Þar sást til tveggja dökkklæddra ungmenna, sem komust undan á hlaupum. 14.1.2008 07:51
Mörg þekkt nöfn vilja frekari sjálfstæði dómstóla Vísir sagði frá því í dag að hafin væri undirskriftarsöfnun áhugafólks um sjálfstæði dómstóla. Nú í kvöld eru komnar 517 undirskriftir og eru þar nokkrir þjóðþekktir einstaklingar sem hafa ritað nafn sitt. 13.1.2008 20:02
Undrar sig á ummælum Svandísar Svavars „Einkennilegt er að heyra Svandísi Svavarsdóttur, formann skipulagsráðs borgarinnar, átelja vegagerðina fyrir niðurstöðu hennar vegna Sundabrautar,“ skrifar Björn Bjarnason í pistli á heimasíðu sinni í dag. Þar undrar hann sig á ummælum oddvita Vinstri grænna í borgarstjórn. 13.1.2008 21:00
Ölvaður á Reykjanesbraut um hábjartan dag Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur á suðurnesjum í dag. Annar þeirra mældist á 115 km/klst á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst. 13.1.2008 19:35
Frjálslyndar konur senda ríkisstjórninni tóninn Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum beinir þeim tilmælum til ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að flokkarnir sjái til þess að vinna hefjist nú þegar við endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins, í ljósi niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í málaleitan. 13.1.2008 17:35
Þriggja bíla árekstur á Akranesi Þrír bílar lentu í árekstir á Akranesi fyrir stundu. Ekki varð neitt slys á fólki og tjón var óverulegt. 13.1.2008 16:53
Skaparinn snýr aftur „Ýmislegt hefur gengið á undarfarnar vikurnar í kynþáttamálum á Íslandi. Löggimann heimsótti einn af betri hugsandi mönnum landsins og ruddist þar inn með leitarheimild,“ segir á vefsíðunni skapari.com. 13.1.2008 14:20
Tony Blair vill verða forseti Fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, vill verða fyrsti forseti Evrópusambandsins. Blair hóf kosningabaráttu sína á kosningafundi hjá Sarkozy í Frakklandi í gær. 13.1.2008 14:03
Færri slasa sig á heitu vatni Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss telur að átaksverkefnið Stillum hitann hóflega hafi nú þegar borið árangur með fækkun brunaslysa af völdum heits vatns. 13.1.2008 13:44
Íslendingar drekka minnst vestrænna þjóða Íslendingar drekka minnst vestrænna þjóða, samkvæmt rannsókn sem Fréttablaðið greinir frá í dag. Jafnvel þótt drykkja Íslendinga hafi aukist um 110% á árunum 1980 til 2005, eða úr þremur lítrum í 6,4 lítra á mann á ári, þá drekki Íslendingar samt minna áfengi en íbúar annarra vestrænna ríkja. 13.1.2008 13:02
Rúmlega hundrað lítrar af olíu í götuna eftir árekstur í Breiðholti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út rétt fyrir ellefu í gærkvöldi að bílaplani í Möðrufelli í Breiðholti. Þar hafði bíll ekið undir vörubíl með þeim afleiðingum að gat kom á olíutank vörubílsins. 13.1.2008 12:26
Áskorun frá áhugafólki um sjálfstæði dómstóla „Vafi ríkir um sjálfstæði íslenskra dómstóla í kjölfar skipan dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands,“ segir í yfirlýsingu frá áhugafólki um sjálfstæði dómstóla. 13.1.2008 10:26
Gekk berserksgang og skemmdi átta bíla Maður gekk berserksgang í vesturbæ Reykjavíkur nú í morgunsárið. Gekk hann um og skemmdi kyrrstæða bíla með barefli. 13.1.2008 09:24
Meintur berklasmitberi útskrifaður af sjúkrahúsi Maðurinn sem grunaður var um berklasmit í hádeginu í dag hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Grunurinn átti ekki við rök að styðjast og var hann því sendur heim að skoðun lokinni. 12.1.2008 19:58
25 milljóna króna Porche gjörónýtur eftir útafakstur Bíllinn sem fór útaf á Grindavíkurvegi seint í gærkvöldi var af gerðinni Porche 911 GT3RS. Bíllinn er gjörónýtur eftir útafaksturinn. 12.1.2008 18:15
Árás á lögreglumenn samsæri fíkniefnabaróna? Björn Bjarnason spyr á heimasíðu sinni hvort fíkniefnabarónum hafi vaxið viðurkenning fíkniefnadeildarinnar í augum og þess vegna gert erlenda málaliða sína út af örkinn gegn lögreglumönnunum. 12.1.2008 21:15
Svona skipun mun alltaf vekja upp efasemdaraddir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag um skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara, að afgerandi frávik frá niðurstöðu lögmæltrar matsnefndar muni alltaf vekja upp efasemdarraddir um að faglegar forsendur ráði. 12.1.2008 16:59
Ekki grunur um berklasmit í Kópavogi Rétt fyrir hádegi í dag kom til átaka í heimahúsi í Hjallahverfi í Kópavogi. Lenti þar tveimur mönnum saman og hlaut annar skurð á enni. 12.1.2008 15:02
Saksóknaranum misbýður aðdáun á Aroni Pálma Mike Trent, saksóknari í máli Arons Pálma Ágústssonar, misbýður sú aðdáun sem honum hefur fundist Aron hafa hlotið hér á landi. Í bréfi sem hann sendi ritstjórn Vísis í kjölfar frétta okkar af málinu segir hann það vanvirðingu við fórnarlömb Arons að á hann sé litið sem nokkurskonar hetju á Íslandi. 12.1.2008 14:08
Össur stendur með aflimuðum íþróttamanni Össur hf. gerir alvarlegar athugasemdir við þær prófanir sem Alþjóða frjálsíþróttasambandið (IAAF) hefur látið gera á gervifótum spretthlauparans Oscars Pistorius. 12.1.2008 11:40
Ófundinn ræningi 11-11 ógnaði starfsfólki með hnífi Verslun 11-11 við Grensásveg var rænd í gærkvöldi í annað sinn á tveimur vikum. Ræninginn ógnaði starfsfólki verslunarinnar með hnífi í bæði skiptin og komst undan á hlaupum. 12.1.2008 10:35
Fjórir handteknir vegna árásar í Keflavík Rétt fyrir klukkan fimm í morgun brutust út slagsmál fyrir utan skemmtistaðinn Yello í Keflavík. Þegar lögregla mætti á staðinn lá einn óvígur í götunni og var hann fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofunun Suðurnesja til skoðunar hjá lækni. 12.1.2008 09:47
Óttast ekki þótt Aron Pálmi lögsæki Mike Trent, saksóknari í máli Arons Pálma Ágústssonar, segist ekki óttast þótt Aron Pálmi ákveði að stefna honum. Hann segist hafa fulla heimild til að birta gögn í máli Arons Pálma. 11.1.2008 20:47
Seltirningar vilja að aðalskipulag verði endurskoðað Nokkrir ósáttir íbúar á Seltjarnarnesi krefjast þess að bæjaryfirvöld taki aðalskipulag bæjarins til endurskoðunar. Þetta kemur fram í bréfi sem borið var til allra íbúa sveitarfélagsins í dag. 11.1.2008 22:41
Ráðherra hunsi vilja Húsafriðunarnefndar Samband ungra sjálfstæðismanna vill að menntamálaráðherra hafni ósk Húsafriðunarnefndar um friðun húsanna á Laugavegi 4-6. Þetta kemur fram í áskorun sem SUS sendi ráðherra í dag. 11.1.2008 20:24
Kvaldist klukkustundum saman án hjálpar Gæslunnar Slasaður sjómaður á Austfjarðamiðum kvaldist klukkustundum saman eftir að Gæslan hafnaði beiðni um þyrluútkall. Hneyksli, að þyrlurnar standi ónotaðar og séu allar á höfuðborgarsvæðinu, segir læknir. 11.1.2008 19:46
Höfðu í hótunum við fjórða félagið Þrjú greiðslukortafyrirtæki, sem hafa játað á sig ólöglegt samráð og margvísleg önnur brot á samkeppnislögum og greitt 735 milljónir í sektir, höfðu í hótunum við fjórða félagið, þegar það kom inn á markaðinn fyrir nokkrum árum. 11.1.2008 19:39
Ný stóriðja er óráð Umhverfisráðherra segir óráð að ráðast í nýja stóriðju hérlendis, hvort sem það er á Húsavík eða í Helguvík, fyrr en rammaáætlun um virkjanakosti liggur fyrir. 11.1.2008 19:08
Víkur sér enn undan því að svara Formaður Samfylkingarinnar víkur sér enn undan því að segja álit sitt á skipan Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir hins vegar óþolandi að menn séu látnir gjalda þess hverra manna þeir eru. 11.1.2008 19:02
Telur ríkið skuldbundið að lúta kvótaáliti Mannréttindanefndar S.Þ. Alþingismaðurinn Jón Magnússon telur íslenska ríkið skuldbundið að þjóðarétti að lúta úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið. Oddviti Samfylkingarinnar í sjávarútvegsnefnd Alþingis segir þetta kalla á endurskoðun kerfisins. 11.1.2008 18:57
Engin þjóðarsátt um aukna jaðarskatta Engin þjóðarsátt hefði náðst um að auka jaðarskatta, segir starfandi forsætisráðherra um kröfu verkalýðshreyfingarinnar um sérstakan persónuafslátt lágtekjuhópa. Ríkisstjórnin stefnir þó á annars konar skattabreytingar í þágu fólks með lágar og meðaltekjur. 11.1.2008 18:54
Fasteignamarkaður að kólna 540 kaupsamningum var þinglýst í desember og fækkaði þinglýstum samningum töluvert frá fyrri mánuði. Veltan í desember nam 19,5 milljörðum króna miðað við 18,5 milljarða í desember árið 2006 og er það til marks um að enn sé ágætis hiti á markaðnum, að mati Greiningadeildar Kaupþings. 11.1.2008 18:28
Mjölnis er sárt saknað Sjö mánaða gömlum labradorhvolpi var stolið fyrir utan Fjölbrautaskólann í Breiðholti í gærdag og hefur hópur manna leitað að honum síðan. Marvin Michelsen, eigandi hvolpsins, segir að hann hafi brugðið sér inn í skólann í 20 mínútur og bundið hundinn við ljósastaur. Það var um klukkan hálfþrjú í gærdag. 11.1.2008 17:52
Packardinn kominn á götuna Vegfarendur um Álftanesveg ráku upp stór augu í dag þegar mættu virðulegri Packard bifreið á númerum forsetaembættisins. Um er að ræða fyrsta forsetabíl þjóðarinnar, 1942 módel og hefur bíllinn verið í yfirhalningu hjá Sævari Pétussyni bifvélavirkja frá árinu 1998. 11.1.2008 17:36
Fimm í gæsluvarðhald vegna árásar á lögreglumenn Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir fimm mönnum sem grunaðir eru fyrir fólskulega árás á lögreglumenn í miðborginni í nótt. 11.1.2008 17:20
Nýja húsnæðið að springa utan af Ikea Hið nýja verslunarhúsnæði Ikea í Garðabæ er þegar orðið of lítið þrátt fyrir að hafa einungis verið tekið í notkun fyrir rúmu ári. Þórarinn Hjörtur Ævarsson framkvæmdastjóri segir að langtímaáætlun sem gerði ráð fyrir að ekki þyrfti að stækka verslunina fyrstu tvö til þrjú árin sé löngu úrelt. Nú sé húsnæðið að springa utan af þeim og þeir þurfi líklega að koma sér upp lagerhúsnæði annars staðar. 11.1.2008 16:23
Samiðn lýsir vonbrigðum með ríkisstjórnina Samninganefnd Samiðnar vill að skattkerfið verði notað í auknum mæli til jöfnunar í samfélaginu og lýsir yfir miklum vonbrigðum með það að ríkisstjórnin hafi ekki séð sér fært að mæta óskum stéttarfélaganna um að boðaðar skattalækkanir verði fyrst og fremst nýttar til að lækka skatta á lægstu tekjur. 11.1.2008 16:15
Vistunarmatsnefndum fækkað úr 40 í sjö Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um vistunarmat í tengslum við breytingar á lögum um málefni aldraðra sem hefur í för með sér að vistunarmatsnefndum fækkar úr 40 í sjö. 11.1.2008 15:54
Stór hluti heimila er án lágmarks eldvarna Borgarstjóri og slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins boðuðu til blaðamannafundar í dag þar sem farið var yfir þær aðgerðir sem ráðist verður í vegna eldvarna. Meðal annars á að fjölga um eina slökkviliðsstöð, byggja tvær nýjar og loka þeirri sem nú er á Tunguhálsi. 11.1.2008 15:35