Innlent

Víkur sér enn undan því að svara

Formaður Samfylkingarinnar víkur sér enn undan því að segja álit sitt á skipan Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir hins vegar óþolandi að menn séu látnir gjalda þess hverra manna þeir eru.

Matsnefnd um hæfi umsækjenda, undir formennsku Péturs Hafstein, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, átelur Árna M. Mathiesen, harðlega fyrir að skipa Þorstein Davíðsson dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur ítrekað komið sér undan ósk Stöðvar tvö um álit á þessari embættisveitingu, síðast í morgun, þegar hún bar því við að hún hefði ekki enn lesið rökstuðning fjármálaráðherra.

Það stóð hins vegar ekki á svörum frá varaformanni Sjálfstæðisflokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

„Það geta alltaf komið upp ákveðnar deilur um embættisráðningar, það kann vel að vera en engu að síður er þetta mat Árna og þetta er fullkomlega réttmætt mat Árna. Það er rétt að undirstrika það að það er ekki hlutverk nefndarinnar að skipa mönnum í flokka eftir hæfni og að mínu mati hefðu menn átt segja hæfur eða ekki hæfur," segir Þorgerður Katrín.

Síðan sé það mat og ábyrgð hvers ráðherra að taka ákvörðun. Það geri fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra og aðrir ráðherrar. „Ég hef líka staðið í svona embættisveitingum og það er alltaf á endum ráðherra sem ber ábyrgðina," segir Þorgerður Katrín.

Aðspurð hvort hún styddi valið játti hún því. „Ég styð mína ráðherra og í því sem þeir eru að gera og þetta er hans mat. Mér finnst algjörlega óþolandi að sjá það að menn árið 2007 eða 2008 þurfi að líða fyrir það hverra manna þeir eru," segir Þorgerður Katrín.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×