Fleiri fréttir

Húðsjúkdómadeild án sérfræðings

Ný göngudeild húðsjúkdóma hefur verið opnuð á Sjúkrahúsi Akureyrar. Enginn húðsjúkdómasérfræðingur er þó starfandi við sjúkrahúsið eins og er.

Túnisi í fangelsi í fyrir vegabréfsfölsun

Karlmaður frá Túnis var handtekinn í Leifsstöð við komuna til landsins frá Kaupmannahöfn í gær eftir að falsað danskt vegabréf fannst í fórum hans. Hann var strax ákærður, dæmdur í 30 daga fangelsi og sendur í afplánun.

Straumur og Kaupþing meðal hæstu gjaldenda

Straumur-Burðarás og Kaupþing banki narta í hælana á Fjársýslu ríkisins á lista Skattstjórans í Reykjavík yfir þá sem greiða hæstu opinber gjöld í ár. Reykjavíkurborg er í sjötta sæti með hátt í fjórfalt lægri gjöld en fjármálafyrirtækin tvö.

BSRB í hart við Landspítalann

BSRB hefur falið lögfræðingi að afla gagna um samninga sem Landspítalinn hefur gert við starfsmannaleigur. Fram kemur á vef bandalagsins að það hafi óskað eftir slíkum gögnum en í þeim var strikað yfir alla hluta samninganna þar sem tímakaup starfsmanna kemur fram.

Sjúkraflugvél staðsett á Ísafirði yfir vetramánuðina

Sjúkraflugvél verður staðsett á Ísafirði yfir vetramánuðina samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðis- og tryggingmálaráðherra. Hefur hann falið embættismönnum að gera viðbótarsamning við flugrekandann sem sinnir sjúkraflugi á svæðinu vegna þessa.

Vilja merkingar á erfðabreytta matvöru

Merkja verður erfðabreytta matvöru betur til þess að tryggja upplýsingagjöf til neytenda samkvæmt kröfu hóps miðjumanna á Norðurlandaráðsþinginu í Osló. Að mati miðjumanna gengur lagasetning á Norðurlöndum ekki nógu langt í þessum efnum.

Engin ákvæði í lögum um samstarf sveitarfélaga og einkaaðila

Engin ákvæði er að finna í sveitarstjórnarlögum um samstarf sveitarfélaga við einkaaðila og telur Reykjavíkurborg mjög tímabært að endurskoða lögin þar að lútandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Reykjavíkurborgar við tólf spurningum sem Umboðsmaður Alþingis setti fram í tengslum við samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og aðkomu Orkuveitu Reykjavíkur að því.

Leikfangasali segir neytendakönnun ranga

Dúkkuhúsin vinsælu sem Neytendasamtökin gerðu verðsamanburð á eru ekki seld í Dótakassanum á Akureyri, að því er Finnur Gunnlaugsson, eigandi verslunarinnar fullyrðir.

Þrjú smyglmál á einni viku í Leifsstöð

Tollverðir á Keflavíkurflugvelli hafa komið upp um þrjár tilraunir til dópsmygls á undanfarinni viku. Efnin voru kókaín og amfetamín og nálgast samanlagt magn eitt kíló.

Ráðgjafastarf Regnbogabarna lagt niður

Töluverðar breytingar verða gerðar á starfsemi samtakanna Regnabogabörn á næstunni. Eina stöðugildi samtakanna verður lagt niður um áramótin vegna fjárskorts.

Vó salt á hlöðnum kanti

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í Hnífsdal um sjöleytið í morgun vegna hálku með þeim afleiðingum að bíllinn rann útaf veginum og stoppaði ofan á hlöðnum kanti í fjöruborðinu þar sem hann síðan vó salt. Engan sakaði.

Samkeppnishæfni Íslands minnkar

Ísland fellur um þrjú sæti, úr því tuttugasta í það tuttugasta og þriðja, á lista World Economic Forum, eða Alþjóðlegu efnahagsstofnuninni, yfir samkeppnishæfni landa sem mæld er með samkeppnisvísitölu.

Vöruskiptahalli minnkar milli ára

Vöruskiptajöfnuður við útlönd reyndist nærri 78 milljarðar á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birtir í dag. Það er 33 milljörðum króna minni halli en á sama tíma í fyrra.

Lyfjafyrirtæki svindla á þróunarríkjunum

Lyfjafyrirtæki víðsvegar úr heiminum reyna að lokka lækna í þróunarríkjunum til þess að kaupa af sér lyf með því að bjóða þeim alls kyns fríðindi, allt frá þvottavélum til dýrra bifreiða.

Mikill verðmunur á leikföngum

Áttatíu og fjögurra prósenta verðmunur er á vinsælu dúkkuhúsi, eftir því hvar það er keypt, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna.

Köstuðu snjóboltum í bifreiðar á ferð

Lögreglan á Hvolsvelli hafði í vikunni hendur í hári ungmenna sem höfðu gert það að leik sínum að kasta snjóboltum í bifreiðar sem ekið var yfir Ytri-Rangá. Hætt var við að ökumenn misstu stjórn á bifreiðum sínum vegna athæfis ungmennanna að sögn lögreglu.

Telur Norðurlöndin geta haft áhrif á þróun umhverfismála

Stór ríki á borð við Bandaríkin og Kína þurfa að samþykkja takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda til þess að árangur náist í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, í sjónvarpsþættinum Standpunkt í norska ríkissjónvarpinu, NRK 1, í kvöld.

Hefja samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu

Heilbrigðisráðuneytið hefur hafið undirbúning að samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu í samræmi við tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og ráðuneytisins. Nú þegar hafa nokkur sveitarfélög leitað eftir samstarfi um slíka samþættingu.

Tvær bílveltur og einn útafakstur

Bílvelta varð á Biskupstungnabraut við Spóastaði um klukkan fjögur í dag. Þrír voru í bílnum ásamt ökumanni en enginn slasaðist alvarlega. Bíllinn skemmdist mikið.

Leggja áherslu á hækkun lægstu launa í komandi kjarasamningum

Lögð verður megináhersla á hækkun lægstu launa og kaupmáttaraukningu í komandi kjarasamningum að sögn Sigurðar Bessasonar, formanns samningarnefndar Flóafélaganna og Boðans. Þetta kom fram á fundi félaganna með Samtökum atvinnulífsins í dag.

Efling netsambands í samkeppni um fólk og fyrirtæki

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi segir samkeppni ríkja milli sveitarfélaga um fólk og fyrirtæki og til að bæta samkeppnisstöðu Seltjarnarness verði öllum boðin endurgjaldslaus aðgangur að þráðlausu netsambandi.

Svör um meðferð valds og eftirlits

Umboðsmanni Alþingis hefur borist svör frá sveitarfélögunum þremur sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur, við bréfi þar sem umboðsmaður óskar skýringa um meðferð valds og eftirlits þeirra með Orkuveitunni.

REI hafnar útreikningum ráðherra

„Við getum ekki fallist á þessa tölu sem Össur nefnir. Enn er aðeins um þreifinagar að ræða og því er of snemmt að festa einhverja tölu á samninginn, það er ekkert í hendi enn“ segir Hafliði Helgason upplýsingafulltrúi REI í samtali við Vísi.

Rúða brotnar í flugvél í lendingu

Slökkvilið Akureyrar var sett í viðbragðsstöðu í morgun eftir að framrúða í flugvél brotnaði skyndilega í aðflugi að flugvellinum á Akureyri. Um var að ræða flugvél Flugfélags Íslands.

Fjórar bílveltur í umdæmi Selfosslögreglu

Sjö umferðaróhöpp, þar af fjórar bílveltur áttu sér stað í umdæmi Selfosslögreglunnar í dag. Einn varð fyrir minniháttar meiðslum þegar bíll hans valt en aðrir sluppu ómeiddir. Að sögn lögreglu er mikil hálka á svæðinu og margir enn á sumardekkjunum.

Fjörutíu og sjö umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu

Hálkan í gær virðist hafa komið borgarbúum á óvart en tilkynnt var um fjörutíu og sjö umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að það sé óvenju mikið. Flest voru óhöppin minniháttar en fjórir ökumenn stungu af eftir áreksturinn.

Bæjarstjórinn svarar ásökunum

Bæjarstjórinn á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta af samskiptum bæjarins og eiganda verslunarinnar Síðu. Sigrún Björk Jakobsdóttir segir að í kjölfar ásakana Höskulds Stefánssonar um að bærinn hafi sýnt honum yfirgang varðandi brottflutning verslunarinnar vegna byggingarframkvæmda vilji bærinn koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Klámkóngar fengu fimm milljónir frá Hótel Sögu

„Þau fengu greiddar skaðabætur í sumar og var samið um upphæðina utan réttar,“ segir Oddgeir Einarsson fyrrum lögmaður skipuleggjenda Snowgathering klámráðstefnunnar sem átti að fara fram í Reykjavík í mars á þessu ári.

SGS kynnir markmið sín í komandi samningum

Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins kynntu Samtökum atvinnulífsins markmið sín í komandi kjarasamingum. Kaupmáttaraukning og efnahagslegur stöðugleiki, - hækkun lægstu launa og launaþróunartrygging ber hæst í markmiðum SGS.

Fimm varamenn tóku sæti á Alþingi

Fimm varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í fyrsta sinn í dag við upphaf þingfundar. Þingmennirnir skrifuðu þá undir drengskapareið þar sem þeir lýsa hollustu sinni við stjórnarskrá.

Verðandi mæður í Namibíu fá íslenskt húsaskjól

Konur í bænum Engela nyrst í Namibíu geta brátt leitað í mæðraskýli sem byggt verður upp fyrir íslenskt fjármagn. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands eru framkvæmdir við skýlið þegar hafnar og á það að verða tilbúið í byrjun næsta árs.

Heilbrigðisráðherra gagnrýndur fyrir að styðja áfengisfrumvarpið

Þingmaður Vinstri grænna, Björn Valur Gíslason, fór hörðum orðum um Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í umræðum um störf þingsins. Hann sagði að afstaða ráðherrans til frumvarps, sem á að leyfa einkaaðilum að selja léttvín, veki upp spurningar um hvort ráðherrann sé hæfur til að gegna embætti sínu.

Vilja lausn á viðvarandi manneklu á Skjóli

Fulltrúi í stjórn Aðstandendafélags heimilisfólks á hjúkrunarheimilinu Skjóli segist hafa orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með fund með heilbrigðisnefnd Alþingis í morgun. Þangað leituðu fulltrúar í stjórninni ásamt fulltrúa frá aðstandendafélagi Droplaugastaða til þess að ræða viðvarandi manneklu á hjúkrunarheimilunum.

Litlar vonir um aukinn þorskkvóta á næstu árum

Flest bendir til þess að 2007 stofninn af þorskseiðum sé álíka lélegur og stofnarnir frá 2004 til 2006. Það er því harla lítil von til þess að þorskkvótinn verði aukinn á næstu árum.

Mótmæla Bitruvirkjun á Hengilssvæðinu

Andstæðingar Bitruvirkjunar hafa nú opnað heimasíðu hengill.nu þar sem fyrirhugaðri jarðgufuvirkjun á Hengilssvæðinu rétt austan við Ölkelduháls er mótmælt.

Sjá næstu 50 fréttir