Fjörutíu og sjö umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu 30. október 2007 16:24
Hálkan í gær virðist hafa komið borgarbúum á óvart en tilkynnt var um fjörutíu og sjö umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að það sé óvenju mikið. Flest voru óhöppin minniháttar en fjórir ökumenn stungu af eftir áreksturinn. „Sem fyrr var talsvert um aftanákeyrslur en ökumönnum hættir til að gleyma þeirri góðu reglu að hafa hæfilegt bil á milli ökutækja," segir í tilkynningunni. Þá vill lögreglan sömuleiðis minna á þá staðreynd að veturinn er á næsta leiti og því er rétt að huga að því að setja vetrardekkin undir. „Að sama skapi er mikilvægt að skafa rúðurnar áður en haldið er af stað út í umferðina." Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gærkvöld. „Fyrst var karl á fertugsaldri tekinn fyrir þær sakir á Suðurlandsbraut en bíll mannsins hafnaði þar á ljósastaur. Síðan var karl á þrítugsaldri stöðvaður á Sæbraut en sá var sömuleiðis ölvaður undir stýri." Þá segir að för karls á þrítugsaldri hafi verið stöðvuð í miðborginni í hádeginu í gær en sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi. „Hann ók bíl sem reyndist ótryggður og voru skráningarnúmerin því fjarlægð. Þrír ökumenn voru teknir fyrir að aka gegn rauðu ljósi og jafnmargir fyrir að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað."
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira