REI hafnar útreikningum ráðherra 30. október 2007 18:06 Össur segir samninginn um 4 milljarða króna virði. „
Við getum ekki fallist á þessa tölu sem Össur nefnir. Enn er aðeins um þreifingar að ræða og því er of snemmt að festa einhverja tölu á samninginn, það er ekkert í hendi enn“ segir Hafliði Helgason upplýsingafulltrúi REI í samtali við Vísi. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, er nú á leið frá Indónesíu þar sem meðal annars var undirritaður samningur milli REI og Pertamina sem er orkufyrirtæki í Indónesíu og er alfarið í eigu ríkissins. Össur hefur sagt á bloggsíðu sinni að samningurinn sé metinn á um 60 milljónir dollara, eða 4 milljarða íslenskra króna. Hinn frægi 20 ára samningur sem kvað á um að REI hefði forkaupsrétt á öllum verkefnum Orkuveitunnar erlendis í 20 ár var meginstoðin í 8 milljarða króna verðmati á óefnislegum eignum Orkuveitunnar. Ef þessi tala Iðnaðarráðherra er rétt, er athyglisvert að REI er nú þegar búið að borga upp helminginn af 20 ára samningnum með sínum fyrsta samningi sem fyrirtækið gerir erlendis. Hafliði lagði hinsvegar ríka áherslu á að það væri sannarlega ekki mat REI að samningurinn sé 4 milljarða króna virði, of snemmt sé að setja nokkurn verðmiða á samning REI og Indónesíska orkufyrirtækisins Pertamina. Samningur REI og Pertamina felur í sér að fyrirtækin vinni að sameiginlegri þróun á þekkingu og reynslu á sviði jarðvarmarannsókna. Stefnt er að því að samstarf þetta leiði til þess að jarðvarmi verði nýttur enn frekar í Indónesíu.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira