Innlent

Lyfjafyrirtæki svindla á þróunarríkjunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lyfjafyrirtæki víðsvegar úr heiminum reyna að lokka lækna í þróunarríkjunum til þess að kaupa af sér lyf með því að bjóða þeim alls kyns fríðindi, allt frá þvottavélum til dýrra bifreiða. Í skýrslu frá Alþjóðasamtökum neytenda segir að eftirlit með lyfjafyrirtækjum hafi brugðist. Fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki markaðssetji sig með aðferðum sem ekki yrðu samþykktar í Evrópu. Þá segir í skýrslunni, að auglýsingar alþjóðlegra lyfjafyrirtækja séu ólöglegar. Þar sé til dæmis ekki kveðið á um hvernig lyfin skuli notuð eða hvaða aukaverkanir geti fylgt notkun þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×