Innlent

Svör um meðferð valds og eftirlits

Heimir Már Pétursson skrifar

Umboðsmanni Alþingis hefur borist svör frá sveitarfélögunum þremur sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur, við bréfi þar sem umboðsmaður óskar skýringa um meðferð valds og eftirlits þeirra með Orkuveitunni.

Hinn níunda október skrifaði umboðsmaður Reykjavíkurborg og bæjarstjórnum Akraness og Borgarness ítarlegt bréf vegna ráðstöfunar ákveðinna eigna Orkuveitunnar til dótturfélagsins Reykjavík Green Energy og síðar ráðstöfunar eigna í því félagi. Bréf umboðsmanns er í tólf liðum og höfðu sveitarfélögin frest til lokunar skrifstofu umboðsmanns í dag til að svara.

Reykjavíkurborg ætlar að opinbera svör sín í fyrramálið, þar sem þeim var skilað skömmu fyrir lokun hjá umboðsmanni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×