Fleiri fréttir

Umdeildir vopnasalar funda á Íslandi

Nú stendur yfir á Nordica Hilton hótelinu í Reykjavík fundur yfirmanna BAE vopnaframleiðslufyrirtækisins. BAE er eitt stærsta vopnaframleiðslufyrirtæki heims og jafnframt eitt það umdeildasta.

Árekstrahrina í hálkunni

Árekstrahrina varð í Reykjavík í gær í fyrstu umtalsverðu hálku vetrarins. Engin slasaðist þó alvarlega en talsvert eignatjón varð.

Síldarævintýri á Grundarfirði

Ekkert lát er á síldveiðinni í Grundarfirði og verður sára lítillar síldar vart á hefðbundinni veiðislóð út af Suðurströndinni.

Lítið fannst af rækju í haustkönnun Hafró

Lítið magn fannst af rækju í haustkönnun Hafrannsóknarstofnunar á rækjumiðjum á Vestfjörðum og á fjörðum og flóum norðanlands. Þá benda fyrstu niðurstöður til þess að 2007 árgangur þorsks sé slakur.

Ók útaf eftir árekstur

Fólksbíll fór útaf veginum efst í Norðurárdal eftir að pallbíl með kerru í eftirdragi var ekið utan í hann um klukkan hálf tíu í kvöld. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki að sögn lögreglu. Bíllinn var fluttur í burtu með kranabíl.

Kristín S. Kvaran, fyrrverandi alþingismaður, látin

Kristín S. Kvaran, fyrrverandi alþingismaður, er látin, 61 árs að aldri. Banamein hennar var krabbamein. Hún sat á Alþingi fyrir Bandalag jafnaðarmanna og síðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1983–1987.

Banaslys við Egilsstaði

Banaslys varð við Ærlæk rétt norðan við Egilsstaði um klukkan fimm í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum virðist ökumaður hafa misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann fór útaf veginum og hafnaði á staur.

Með tófu sem húsdýr

Fjölskyldan að Goðatúni 4 á Flateyri hefur frá því í vor haft nokkuð óvenjulegt húsdýr en það er tófan hún Birtan.

Mikið um umferðaróhöpp vegna hálku

Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í dag vegna hálku. Harður árekstur varð á Reykjanesbraut við Stekk í Reykjanesbæ og þá hafnaði einn bíll á ljósastaur á Vallarheiði.

Reyndu að villa á sér heimildir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina ellefu ökumenn sem ýmist höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi eða aldrei öðlast ökuréttindi. Tveir þeirra reyndu að villa á sér heimildir og gaf annar þeirra upp nafn bróður síns. Þá framvísaði einn ökuskírteinin sem rann út fyrir hálfum öðrum áratug.

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 14 ökumenn fyrir ölvunarakstur um helgina. Í flestum tilvikum var um að ræða karla á aldrinum 20 til 45 ára.

Við Dabbi erum góð blanda

Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker hefur samið sálmalög sem hann ætlar að gefa út fyrir þarnæstu jól. Hann fékk Davíð Oddson, seðlabankastjóra í lið með sér sem situr nú við sálmaskriftir í frítíma sínum.

Staðfestir farbann yfir manni í Hraunaveitumáli

Hæstiréttur hefur staðfest farbannsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir Letta sem tengist rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á kæru á hendur starfsmannaleigunni NCL og GT verktökum.

Á 186 km hraða á Jökuldal

Lögreglumenn hjá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði höfðu hendur í hári ökumanns aðfaranótt laugardagsins eftir að hann var mældur á 186 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi 1 á Jökuldal.

Lögðu vegslóða án leyfis

Umhverfisnefnd og bæjarráð Akureyrar átelja vinnubrögð forsvarsmanna skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli sem gerðu vegslóða upp á brún Hlíðarfjalls án þess að hafa fyrir því tilskilin leyfi.

Telur flugmenn hafa brugðist hárrétt við

Framkvæmdastjóri flugfélagsins JetX, sem á flugvélina sem hafnaði utan flugbrautar á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt, telur að flugmenn vélarinnar hafi brugðist hárrétt við þeim aðstæðum sem komu upp í lendingunni.

Negrastrákarnir seljast eins og heitar lummur

Barnabókin Tíu litlir negrastrákar hefur selst gríðarlega vel en útgáfa bókarinnar hefur valdið nokkru fjaðrafoki. Bryndís Loftsdóttir, sölustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson segir að bókin hafi selst feykilega vel um helgina og að svo virðist sem sumir standi í þeirri trú að til standi að banna bókina og ætli sér því að tryggja sér eintak í tíma.

Strætó kvartar yfir aðstæðum á Hverfisgötunni

Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að þar á bæ hafi menn ekki enn heyrt í konunni sem Vísir sagði frá fyrir helgi en hún varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í leið 13 á Hverfisgötunni þegar vagnstjórinn hótaði að henda henda henni út úr vagninum þegar hún kvartaði yfir aksturslagi hans. Í framhaldi fréttaflutnings Vísis af málinu sendi Strætó frá sér yfirlýsingu þar sem atvikið var harmað og óskaði Reynir eftir því að konan hefði samband við Strætó til þess að þeir gætu beðið hafa afsökunar. Af því hefur þó ekki orðið enn. Reynir segir að aðstæður á Hverfisgötunni geri vagnstjórum kjög erfitt fyrir.

Vakningu þarf til þess að uppfræða erlenda ökumenn

Af þeim ellefu sem látist hafa í umferðinni á þessu ári eru þrír útlendingar. Talsmaður Umferðarstofu segir ekki einfalt að fræða útlendinga um hættur í umferðinni hér. Hann segir að vakningu þurfi meðal almennings við að uppfræða erlenda ökumenn.

Áfram þvaglát og ólæti miðborginni um helgar

Ekkert lát virðist vera á því að fólki kasti af sér vatni á almannafæri eða hafi í frammi ýmiss konar ólæti í miðbænum um helgar þrátt fyrir að lögregla hafi tekið harðar á slíkum brotum undanfarna mánuði.

Fasteignasali kærður fyrir svindl

L94 ehf, sem er í eigu athafnamannsins Andrésar Péturs Rúnarssonar, hefur kært Ernu Valsdóttur, löggiltan fasteignasala, hjá fasteignasölunni Fasteignakaup hf. til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala.

Stóri nagladekkjadagurinn í dag

Stóri nagladekkjadagurinn er á höfuðborgarsvæðinu í dag, eftir að fólk vaknaði í fyrsta sinn við alhvíta jörð á þessu svæði í haust.

Stjórnvöld hemji gjaldtöku bankanna

Stjórnvöld verða að grípa inn í og hemja gjaldtöku bankanna, að mati Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna. Hann segir fámennið og krónuna hindra erlenda banka í að koma til Íslands.

Fékk tveggja mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur

22 ára karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í sextíu daga fangelsi fyrir ölvunarakstur. Hann var einnig sviptur ökuréttindum ævilangt. Þetta er í fjórða skiptið á tveimur árum sem maðurinn var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Flugriti sendur út til rannsóknar

Flugstjóri JetX-farþegavélarinnar, sem hafnaði utan brautar á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt, segist hafa fengið rangar upplýsingar um bremsuskilyrði á vellinum áður en hann lenti. Flugriti vélarilnnar verður sendur út til rannsóknar.

Heilbrigðisráðherra ekki starfi sínu vaxinn

Landspítalinn skuldar ellefu hundruð milljónir króna við birgja sem eru gjaldfallnar, segir Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi formaður framkvæmdanefndar um byggingu hátæknisjúkrahúss. Ráðherra sem ekki taki á fjárhagsvanda spítalans sé ekki starfi sínu vaxinn.

Spyr hvort ekki sé kominn tími til að skipta krónunni út

Starfsgreinasamband Íslands spyr hvort ekki sé kominn tími til að skipta yfir í alvöru gjaldmiðil fyrir íslenskt launafólk ef ekki er hægt að treysta krónunni. Tilefni þessarar spurningar eru nýjustu tíðindi í evrumálum en eins og kunnugt er hefur Kaupþing ákveðið að skrá hlutabréf sín í evrum.

Vilja að Svandísarmáli verði vísað frá

Orkuveita Reykjavíkur vill að mál sem Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, höfðaði til þess á fá skorið úr um lögmæti eigendafundar fyrr í mánuðinum verði vísað frá. Krafan var lögð fram í fyrirtöku við málinu í morgun.

Heimilt að leita í vélum sem hingað koma

Íslensk yfirvöld hafa skýrar heimildir til þess að fara um borð í flugvélar sem lenda hér á landi. Ef grunur leikur á um að um sé að ræða fangaflug geta bæði tollayfirvöld og lögregla farið um borð í vélarnar.

Vill endurbætur á vegi vegna mikillar umferðar

Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, hefur óskað eftir fundi með samgönguráðherra til þess að ræða mikla aukningu á umferð á veginum undir Hafnarfjalli á síðustu árum og þarfar endurbætur á honum.

Barnaræningjar í íslenskri flugvél

Þotan, sem nota átti til að flytja rúmlega hundrað munaðarlaus börn frá Tsjad í Afríku til Frakklands í gær með ólögmætum hætti að mati stjórnvalda í báðum löndunum, er íslensk og í eigu Loftleiða, dótturfélags Icelandair.

Þjóðverjar opna nýtt minjasafn um helförina

Þjóðverjar hafa opnað minjasafn um helförina í Belsen í norðurhluta Þýskalands. Fjölmargir Gyðingar fórust í útrýmingabúðum á þessum stað í Seinni Heimstyrjöldinni, þar á meðal Anna Frank.

Sjá næstu 50 fréttir