Innlent

Telur Norðurlöndin geta haft áhrif á þróun umhverfismála

Geir H. Haarde
Geir H. Haarde MYND/AB

Stór ríki á borð við Bandaríkin og Kína þurfa að samþykkja takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda til þess að árangur náist í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, í sjónvarpsþættinum Standpunkt í norska ríkissjónvarpinu, NRK 1, í kvöld.

Ásamt Geir H. Haarde voru meðal annars í þættinum Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, Mona Sahlin, leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins og Siv Jensen, formaður norska Framfaraflokksins. Rætt var um umhverfismál í tengslum við leiðtogafund Norðurlandaráðs sem nú fer fram í Osló.

Í þættinum sagðist Geir vera bjartsýnn á að Norðurlandaþjóðirnar geti haft áhrif á stóru þjóðirnar í umhverfismálum til þess að sátt náist um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda áður en Kyoto sáttmálinn rennur út árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×