Innlent

Leikfangasali segir neytendakönnun ranga

Dúkkuhúsið sem allt snýst um.
Dúkkuhúsið sem allt snýst um.

Dúkkuhúsin vinsælu sem Neytendasamtökin gerðu verðsamanburð á eru ekki seld í Dótakassanum á Akureyri, að því er Finnur Gunnlaugsson, eigandi verslunarinnar fullyrðir.

Í fréttum í morgun var sagt frá því að leikfangahúsið Biggest littlest Petshop kostaði 12 þúsund krónur í Dótakassanum og væri 84% dýrari en í Fríhöfninni.

Finnur segist eiga nýrri gerð af húsinu í verslun sinni og kosti hún 7900 krónur. Hann furðar sig af fréttum af málinu og segir fáránlegt að bera verð í verslunum á Akureyri og í Reykjavík saman við verðið í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli þar sem varan er tollfrjáls.

Hjá Neytendasamtökunum fengust þær upplýsingar að starfsmaður þeirra hafi farið inn í verslunina til að kanna verðið og að annar starfsmaður hafi hringt til að útiloka allan misskilning. Því hafi verið vandað til verka en aldrei sé hægt að útiloka mistök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×