Innlent

Fjórar bílveltur í umdæmi Selfosslögreglu

Sjö umferðaróhöpp, þar af fjórar bílveltur áttu sér stað í umdæmi Selfosslögreglunnar í dag. Einn varð fyrir minniháttar meiðslum þegar bíll hans valt en aðrir sluppu ómeiddir. Að sögn lögreglu er mikil hálka á svæðinu og margir enn á sumardekkjunum.

Óhöppin áttu sér stað á Biskupstungnabraut, Suðurlandsvegi og einn ökumaður velti bíl sínum á Hellisheiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×