Innlent

Fjórði Pólverjinn handtekinn vegna nauðgunarinnar á Selfossi

Breki Logason skrifar
Fjórir Pólverjar hafa verið handteknir vegna nauðgunar á Selfossi.
Fjórir Pólverjar hafa verið handteknir vegna nauðgunar á Selfossi.

Fjórði maðurinn hefur verið handtekinn vegna nauðgunar sem kærð var til lögreglunnar á Selfossi um helgina. Þrír höfðu áður verið handteknir en sá fjórði var handtekinn í þágu rannsóknarinnar að sögn lögreglu.

Rannsóknin er gríðarlega viðamikil og voru 12 manns yfirheyrðir í dag og þrír til viðbótar nú í kvöld. Á morgun mun fara fram sakbending í málinu en reiknað er með að á fjórða tug manna komið að henni. Nauðgunin mun hafa átt sér stað í heimahúsi á Selfossi og tugir vitna munu hafa verið á staðnum.

Hinir grunuðu eru allir pólskir ríkisborgarar en dvelja hér á landi vegna atvinnu sinnar.

Gæsluvarðhald yfir mönnunum þremur sem handteknir voru á sunnudaginn rennur út klukkan 16:00 á fimmtudaginn. Þeir sitja í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×