Bæjarstjórinn svarar ásökunum 30. október 2007 15:25 Sigrún Björk Jakobsdóttir
Bæjarstjórinn á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta af samskiptum bæjarins og eiganda verslunarinnar Síðu. Sigrún Björk Jakobsdóttir segir að í kjölfar ásakana Höskulds Stefánssonar um að bærinn hafi sýnt honum yfirgang varðandi brottflutning verslunarinnar vegna byggingarframkvæmda vilji bærinn koma sínum sjónarmiðum á framfæri. „Formleg samskipti um þetta mál hófust 21. ágúst 2006, þ.e. fyrir meira en ári síðan, með bréfi til Höskuldar og síðan hafa honum verið send fleiri bréf, gefinn andmælaréttur, fundað um málið með honum auk símtala við hann," segir í yfirlýsingu frá bænum sem undirrituð er af bæjarstjóra. „Samskiptin og upplýsingastreymið frá Akureyrarbæ hafa því verið miklu meiri en Höskuldur hefur látið af í fjölmiðlum. Á þeim tíma sýndi Höskuldur málinu ágætan skilning og það var ekki fyrr en um miðjan ágúst sl. að andmæli bárust frá honum. Það er því ljóst að Höskuldur hafði á hverjum tíma allar upplýsingar um stöðu málsins varðandi brottflutning verslunarinnar og hafði næg tækifæri til að koma sínum andmælum á framfæri fyrr. Allar fullyrðingar Höskulds um hótanir og yfirgang Akureyrarbæjar eru því algerlega úr lausu lofti gripnar." Í bréfinu segir að það hafi því verið neyðarráðstöfun hjá bænum að grípa til þess að fá leyfi héraðsdóms til þess að fjarlægja húsið sem hafði samkvæmt samningum tímabundið stöðuleyfi. „Héraðsdómari taldi hins vegar misræmi vera milli þessa tímabundna stöðuleyfis og ófrágenginnar lóðaúthlutunar frá 1984 og því ekki staða til að samþykkja beiðni Akureyrarbæjar. Akureyrarbær mun að öllum líkindum una þessum dómi og semja við viðkomandi aðila um þessi lóða- og húsamál," segir að lokum.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira