Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir álagsgreiðslur hafa verið blekkingar Álagsgreiðslur til leikskólakennara sem borgarráð samþykkti nýlega voru blekking og til þess gerðar að friðþægja samfélagið, segir formaður Félags leikskólakennara. Formaður Leikskólaráðs segir verið að útfæra greiðslurnar svo þær nái líka til leikskólanna. 11.9.2007 12:07
Vitlaus og vanhugsuð ákvörðun Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir það vanhugsaða og vitlausa ákvörðun hjá arftaka sínum að kalla heim íslenskan upplýsingafulltrúa í Írak. Utanríkisráðherra sé að slá sig til riddara heimafyrir í stað þess að vinna með bandalagsþjóðum í NATO. 11.9.2007 12:00
Riddarakross fyrir störf í þágu íslenskunnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag tvo prófessora við Háskólann í Leeds riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf þeirra í þágu íslenskrar tungu og íslenskra fræða. 11.9.2007 11:43
Hlutfall vanskila hjá einstaklingum ekki lægri í sex ár Hlutfall vanskila af útlánum fjármálafyrirtækja reyndist 0,6 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er 0,1 prósentustigi minna en á fyrsta ársfjórðungi. Tölur Fjármálaeftirlitsins sýna vanskilahlutföll af lánum hafa verið á bilinu 0,5 til 0,7 prósent á síðustu síðustu tveimur árum og eru það lægstu hlutföll vanskila sem sést hafa á rúmlega sex ára tímabili sem yfirlit Fjármálaeftirlitsins nær yfir. 11.9.2007 11:33
Ekki búist við að aðgerðir flugfreyja raski flugi Icelandair á ekki von á að boðaðar aðgerðir flugfreyja valdi röskun á flugi félagsins. Á fjölmennum félagsfundi Flugfreyjufélagsins í gær var samþykkt ályktun þar sem uppsagnir voru harmaðar og að farið skyldi að því fordæmi flugmanna að vinna ekki umfram vinnuskyldu. 11.9.2007 11:29
Áhrifa kaupstefnunnar í Frankfurt gætir langt út fyrir bókmenntirnar Verði Íslendingar fyrir valinu sem gestaþjóð á bókakaupstefnunni í Frankfurt árið 2011 mun áhrifanna hér á landi gæta langt út fyrir bókmenntirnar, segir framkvæmdastjóri JPV útgáfu. Hann telur Íslendinga eiga góða möguleika á að hreppa hnossið en þeir etja kappi við Finna um sætið. 11.9.2007 11:09
Afrekaskrá ráðherra misrýr eftir hveitibrauðsdaga Þegar litið er á hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa afrekað á hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar í sumar er eftirtekjan misrýr eftir embættum. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ber af en embætti hennar hefur mokað frá sér hverju málinu á fætur öðru í þágu skjólstæðinga sinna. 11.9.2007 10:44
Engin ákvörðun í máli lögreglumanns sem misnotaði aðstöðu sína Enn hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu Ríkislögreglustjóra í máli lögreglumannsins sem ákærður var fyrir að misnota stöðu sína með því að láta aka sér í forgangsakstri út á Keflavíkurflugvöll. Manninum var gert að greiða 200 þúsund krónur í sekt en verið er að meta hvort hann haldi starfi sínu í lögreglunni. 11.9.2007 10:35
Kviknaði í neyðarlýsingarskilti Eldinn í verslun Pennans í Hafnarfirði í morgun má rekja til neyðarlýsingarskiltis í versluninni. Vaktstjóri hjá slökkviliðinu segir það kaldhæðnislegt að eldurinn hafi kviknað með þessum hætti en skiltinu er ætlað að lýsa fólki leiðina út úr versluninni, komi upp neyðartilvik, til dæmis eldsvoði. 11.9.2007 10:07
Dregur úr vöruskiptahalla milli mánaða Vöruskiptajöfnuður var neikvæður um 12 milljarða í ágúst síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Fram kemur í frétt fjármálaráðuneytisins um málið að vöruskiptahallinn hafi minnkað á milli mánaða en hann var nærri 15 milljarðar í júlí. 11.9.2007 09:42
Íslendingar meðal þeirra bestu í heimi í nýsköpun Íslendingar eru meðal fremstu þjóða heims samkvæmt bandarískum lista yfir hnattræna sköpunargáfu. Bandaríski prófessorinn Richard Florida hrósar Íslendingum í hástert fyrir sköpunarþrótt í nýlegri metsölubók. 10.9.2007 18:45
Straumur ætlar að tvöfalda starfsemina á þremur árum Straumur-Burðarás ætlar að tvöfalda starfsemi sína á næstu þremur árum með kaupum á fyrirtækjum og með því að styrkja núverandi starfsemi sína. Stjórnendur bankans segja það ekki sitt hlutverk að svara því hverjir séu eigendur fimm prósenta hlutar sem keyptur var fyrir fáeinum vikum. 10.9.2007 18:33
Aðeins fjögur almenningssalerni í miðborginni Aðeins fjögur almenningssalerni eru í miðborg Reykjavíkur og eru tvö þeirra lokuð að hluta eða öllu leyti á næturnar. Lögreglan handtók á þriðja tug manna um helgina fyrir að kasta af sér vatni á almannafæri. 10.9.2007 18:32
Sveitarfélögin vilja jafnlaunastefnu - ekki KÍ Formaður leikskólakennara vísar meintri jafnlaunastefnu KÍ til föðurhúsanna og segir að það séu sveitarfélögin sem komi í veg fyrir að hægt sé að bæta kjör leikskólakennara á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndir meirihlutans um fyrirtækjaleikskóla myndu ýta undir stéttskiptingu, segir fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði. 10.9.2007 18:30
Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur um helgina Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn í nótt. Níu voru teknir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-48 ára og tvær konur. Önnur er á þrítugsaldri en hin á fimmtugsaldri, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 10.9.2007 18:24
Fasteignakaupendur vilja Íbúðalánasjóð í óbreyttri mynd Mikill meirihluti fasteignakaupenda vill að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í júní og júlí. Tæplega 83% eru þessarar skoðunar samkvæmt könnuninni. Ámóta margir og í sambærilegri könnun í lok síðasta árs. 10.9.2007 18:10
Níu manns bjargað þegar skúta varð vélarvana Níu manns var bjargað eftir að skipstjóri lítillar skútu óskaði eftir hjálp Landhelgisgæslunnar þar sem skútan var vélarvana og með rifin segl. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði eftir aðstoð nærstaddra skipa um leið og hjálparbeiðnin barst. Varðskipið Týr var skammt undan og hélt strax á svæðið til aðstoðar skútunni. 10.9.2007 17:52
Reynir að skýla sér á bak við nefnd vegna stórra orða Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, segir Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra, reyna að skýla sér á bak við nefnd um vatnalög, sem hann segir Valgerði ekki hafa skipað, til þess að komast út úr vandræðum vegna stórra orða um vatnalögin. 10.9.2007 17:14
Eins mánaðar dómur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Jafnframt var hann sviptur ökuleyfi ævilangt. 10.9.2007 16:21
Gagnagrunnar hafi lagastoð og lúti eftirliti Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafnar því að ekki sé heimild fyrir þeim gagnagrunnum sem greiningardeild embættisins hefur yfir að ráða. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu vegna forsíðufréttar í Fréttablaðinu í gær kemur fram að fyrir hendi sé sérstök reglugerð um meðferð persónupplýsinga hjá lögreglu. 10.9.2007 16:08
Engin gjöld á etanólið Ákveðið hefur verið að etanól, nýjasta viðbótin í flóru vistvæns eldsneytis hér á landi, verði undanþegið gjöldum. Vörugjald á bensín er 42,3 krónur á lítra, en 41 króna á díselolíu. 10.9.2007 15:59
Viðurkenni að aðstaðan var ekki nógu góð KSÍ hefur svarað bréfi Samtaka íþróttafréttamanna frá því morgun þar sem farið var fram á tafarlausar úrbætur á aðstöðu þeirra á Laugardalsvelli. Útspil KSÍ er að boða forsvarsmenn samtakanna á fund um hádegisbilið á morgun. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, viðurkennir í samtali við Vísi að aðstaðan hafi ekki verið góð. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna er þó ekki sáttur og býst við mæta í kraftgalla á næsta landsleik. 10.9.2007 15:35
Segja formann leikskólaráðs slá ryki í augu fólks Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á sveitarstjórnarmenn að grípa nú þegar til úrræða sem duga til þess að leysa mannekluna á leik- og grunnskólum og greiða þau laun sem nauðynleg eru til að tryggja stöðugleika í skólastarfi. Sakar sambandið formann leikskólaráðs borgarinnar um að slá ryki augu fólks. 10.9.2007 15:17
Fann fíkniefni og vopn í húsi í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tvær konur á fertugsaldri og karlmann á fimmtugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli, vopnalagabrot og þjófnað. 10.9.2007 14:58
Undirbúa áfram aðgerðir gegn svikafyrirtækjum Stjórn AFLs starfsgreinasambands hyggst áfram undirbúa aðgerðir gegn fyrirtækjum sem ekki hafa upplýst um kjör og skráð erlent verkafólk eins og reglur gera ráð fyrir. Sambandið býður fram krafta sína í átak félagsmálaráðherra gegn slíkum fyrirtækjum. 10.9.2007 14:36
Búast ekki við frekari töfum á flugi Fundur fulltrúa Icelandair og flugmanna þess í hádeginu var jákvæður og skilaði málinu vel áleiðis, að sögn Sigmundar Halldórssonar, upplýsingafulltrúa. Annar fundur verður haldinn á miðvikudag og átti Sigmundur ekki von á því að frekari tafir yrðu á flugi. Deilan stendur um að flugmenn Icelandair vilja fá forgangsrétt á störfum hjá dótturfélaginu Letcharter, sem rekið er í Lettlandi. 10.9.2007 14:34
Skipti út ófölsuðum seðlum fyrir falsaða í kassa í Bónus Tveir karlmenn og kona hafa verið ákærð fyrir peningafölsun með því að hafa sett bæði falsaða eitt þúsund króna og fimm hundruð króna seðla í umferð og tekið ófalsaða í staðinn úr kassa í Bónus. 10.9.2007 14:18
Einkarekstur og fyrirtækjaleikskólar ekki lausnin Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, telur ekki að það leysi neinn vanda að auka einkarekstur eða stofna fyrirtækjaleikskóla eins og formaður leikskólaráðs borgarinnar hefur lagt til sem lausn á manneklu leikskólanna. Björg segir enga jafnlaunastefnu í gildi hjá Kennarasambandinu heldur miklu fremur hjá sveitarfélögunum. 10.9.2007 14:00
Mótmæla stóriðju á miðvikudag Hreyfingin Saving Iceland hyggst mótmæla fyrirhuguðum virkjunum Landsvirkjunar í Þjórsá á miðvikudag en þann dag verða haldin mótmæli af ýmsum toga gegn útbreiðslu stóriðju víða um heim. 10.9.2007 12:46
Ekki vitað hvort hringormar spilli hrygningu Hringormar, sem kenndir er við hvali, herja nú á laxastofnana hér við land sem aldrei fyrr. Ekki er enn vitað hvort þeir kunni að spilla hrygningu laxa. 10.9.2007 12:30
Ákærður fyrir árás á leigubílstjóra Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður í héraðsdómi fyrir að ráðast á leigubílstjóra á Bústaðavegi 2. september síðastliðinn. Maðurinn er ákærður fyrir að veitast að leigubílstjóranum, þrítugri konu, og taka hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hlaut klórfar hægra megin á hálsi og roðabletti vinstramegin. 10.9.2007 12:23
Hirsi Ali með fyrirlestur í hádeginu Sómalski rithöfundurinn Ayaan Hirsi Ali, sem fyrir tveimur árum var valin ein af 100 áhrifamestu mönnum heims af tímaritinu Time, verður með fyrirlestur á Bókmenntahátíð Reykjavíkur nú klukkan hálfeitt. 10.9.2007 12:20
Reykingabannið á rétt á sér Reykingabannið á Írlandi virðist hafa dregið úr hjarta- og æðasjúkdómum hjá Írum. Í könnun sem náði frá árunum fyrir reykingabannið til áranna eftir bannið kemur í ljós að tíðni hjarta og æðasjúkdóma drógst saman um 11 prósent, strax fyrsta árið efitr bannið. 10.9.2007 12:08
Meirihluti vill taka upp evruna Nærri helmingur Íslendinga eða 48 prósent eru hlynnt aðild Íslands að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins í síðasta mánuði. Þá vilja 53 prósent taka upp evruna. 10.9.2007 12:07
Kópavogur getur ekki fríað sig ábyrgð Mannekla leikskólanna er stærra vandamál en svo að bærinn geti fríað sig ábyrgð á starfsmannahaldi einkarekinna leikskóla, segir Áslaug Daníelsdóttir, leikskólastjóri á Hvarfi. Leikskólafulltrúi Kópavogsbæjar segir bæinn eingöngu bera faglega ábyrgð á slíkum leikskólum. 10.9.2007 12:05
14,7% launamunur hjá SFR Konur eru að jafnaði með þrjá fjórðu af launum karla samkvæmt nýrri launakönnun SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Núverandi ríkisstjórn hyggst minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu um helming innan fjögurra ára. 10.9.2007 11:57
Mikael Torfason hættur hjá Birtíngi Mikael Torfason hættur sem aðalritstjóri Birtíngs og ritstjóri Séð og heyrt. Tilkynnt var um þetta í morgun í tölvupósti til starfsmanna. Mikael hóf störf hjá Birtingi í fyrrasumar, fyrst sem ritstjóri Séð og heyrt og síðar sem aðalritstjóri Birtíngs. 10.9.2007 11:57
Íslenskir flugmenn eiga engan forgangsrétt í Lettlandi - forstjóri Icelandair Stjórn Icelandair telur að flugmenn félagsins eigi engan forgangsrétt á vinnu hjá lettneska dótturfyrirtækinu Letcharter. Icelandair hafi keypt flugfélag í fullum rekstri og starfsmenn þess hljóti að hafa sín atvinnuréttindi í sínu heimalandi. Talsverð truflun hefur orðið á flugi til og frá Íslandi vegna aðgerða íslenskra flugmanna. Þeir neita að fara með málið fyrir félagsdóm, eins og Icelandair hefur boðið þeim. 10.9.2007 11:14
Ríflega helmingur starfsmanna lánasýslunnar til Seðlabankans Þegar Lánasýsla ríkisins verður lögð niður og starfsemi hennar flutt til Seðlabanka Íslands mun ríflega helmingur starfsfólksins flytja með til að sinna verkefninu fyrir bankann. Alls eru 12 manns nú starfandi hjá Lánasýslunni. Sigurður Thoroddsen forstöðumaður Lánasýslunnar segir að Seðlabankinn muni yfirtaka launasamninga þeirra sem flytjast til bankans 10.9.2007 10:39
Vilja tafarlausar úrbætur á aðstöðu íþróttafréttamanna á Laugardalsvelli Gríðarleg óánægja er meðal íþróttafréttamanna vegna þeirrar aðstöðu sem Knattspyrnusamband Íslands býður upp á á nýuppgerðum Laugardalsvelli. Hafa Samtök íþróttafréttamanna sent bréf til sambandsins og fara fram tafarlausar úrbætur og afsökunarbeiðni frá KSÍ. 10.9.2007 10:33
Náttúruverndarsamtök í Þingeyjarsýslum ekki mótfallin borunum "Við erum algera gáttuð á þessum undarlegu tillögum og endalausu kærum frá SUNN. Þessi samtök hafa ekkert rætt við heimamenn," segir Sigurjón Benediktsson talsmaður HÚSGULL, samtaka náttúruverndarsinna á Húsavík. "Við teljum ekkert óeðlilegt við það að kannað sé hve mikil orka er undir þessu svæði." 10.9.2007 10:08
Metmjólkurframleiðsla á síðasta verðlagsári Heildarmjólkuframleiðsla hér á landi var um 125 milljónir lítra á síðasta verðlagsári og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. 10.9.2007 09:52
Lýsa yfir áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda Opinbert ósætti milli ráðherra stjórnarflokkanna hefur fært þjóðinni heim sanninn um það þjóðarskútuna rekur stjórnlaust. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna. Þeir lýsa yfir þungum áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda. 9.9.2007 21:50
Skemmdarvargar á Hellu Skemmdarvargar gengu lausum hala á Hellu í nótt og voru rúður í þremur bílum brotnar sem og rúða í símaklefa. Að sögn lögreglu var engu stolið úr bifreiðunum og því ljóst að gerendur höfðu ekki annað í huga en að valda sem mestum skemmdum. 9.9.2007 20:42
Bíll festist í miðri Krossá Björgunarsveitin Dagrenning frá Hvolsvelli var kölluð út klukkan tvö í dag til að aðstoða ferðamenn sem sátu fastir um borð í bíl í miðri Krossá. Fólkinu tókst hins vegar af sjálfsdáðum að komast á þurrt land áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn. 9.9.2007 20:38