Innlent

Hlutfall vanskila hjá einstaklingum ekki lægri í sex ár

Hlutfall vanskila af útlánum fjármálafyrirtækja reyndist 0,6 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er 0,1 prósentustigi minna en á fyrsta ársfjórðungi. Tölur Fjármálaeftirlitsins sýna vanskilahlutföll af lánum hafa verið á bilinu 0,5 til 0,7 prósent á síðustu síðustu tveimur árum og eru það lægstu hlutföll vanskila sem sést hafa á rúmlega sex ára tímabili sem yfirlit Fjármálaeftirlitsins nær yfir. Um er að ræða vanskil sem hafa staðið lengur en einn mánuð.

Fram kemur í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu að vanskilahlutfall fyrirtækja hafi verið hálft prósent í lok annars ársfjórðungs þessa árs en vanskilahlutfall einstaklinga var 0,8 prósent á sama tíma. Það er nánast óbreytt hlutfall frá lokum tveggja næstu ársfjórðunga á undan.

Aukning útlána kunni að auka vanskil síðar

Ragnar Hafliðason, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, bendir á í tilkynningunni að vanskilahlutföllin séu nú í sögulegu lágmarki. „Þó ber að athuga að útlánaaukningin á undanförnum misserum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Í því sambandi er rétt að benda á að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga," segir Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×