Straumur ætlar að tvöfalda starfsemina á þremur árum 10. september 2007 18:33
Straumur-Burðarás ætlar að tvöfalda starfsemi sína á næstu þremur árum með kaupum á fyrirtækjum og með því að styrkja núverandi starfsemi sína. Stjórnendur bankans segja það ekki sitt hlutverk að svara því hverjir séu eigendur fimm prósenta hlutar sem keyptur var fyrir fáeinum vikum. Straumur-Burðarás stefnir að því að heildartekjur fjárfestingarbankans fari í 1.250 milljónir evra fyrir árið 2010. Jafnframt stefnir bankinn að því að auka hlut kvenna í störfum hjá bankanum og að þær verði 40 prósent starfsmanna við lok næsta árs. Bankastjórinn William Fall segir að Straumur sé í mjög góðri stöðu en frá því að hann tók við stjórnartaumum hjá bankanum hefur gengi bréfa lækkað um nærri níu prósent. Til samanburðar hafa stóru viðskiptabankarnir þrír hækkað frá því í byrjun júní, mismikið þó. Fall tók við stjórnartaumunum í Straumi í upphafi júní. Straumur-Burðarás var í fréttum fyrr í haust þegar bankinn seldi eigin bréf í bankanum til nýrra hluthafa þegar gengi var lágt að mati fjármála sérfræðinga. William Fall segir að Íslendingar ættu að fagna því að nýir erlendir aðilar væru að koma að félaginu sem fjárfestar. Hann segir það ekki hlutverk bankans að tilkynna um hverjir hinir ný eigendur eru. Í dag kynnti Fall þriggja ára áætlun sem gerir ráð fyrir að að Straumur verði leiðandi fjárfestingarbanki í Norður- og Mið-Evrópu árið 2010. Hann segir að markmiðið sé að styrkja innviðina, opna eigi ný útibú auk þess sem styrkja eigi starfsemina þar sem hún er fyrir. Þá eigi að kaupa fyrirtæki til örva vöxtinn. Fall segir stefnt að því að arðsemi eigin fjár verði að jafnaði yfir 20 prósentum og að þóknunartekjur verði til frambúðar 75 prósent af heildartekjum.
Mest lesið Strandveiðisjómaður lést Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Sjá meira