Innlent

Kviknaði í neyðarlýsingarskilti

Eldinn í verslun Pennans í Hafnarfirði í morgun má rekja til neyðarlýsingarskiltis í versluninni. Vaktstjóri hjá slökkviliðinu segir það kaldhæðnislegt að eldurinn hafi kviknað með þessum hætti, en skiltinu er ætlað að vísa fólki leiðina út úr versluninni, komi upp neyðartilvik, til dæmis eldsvoði.

Skiltið er tengt rafmagni auk þess sem í því er rafhlaða. Að sögn slökkviliðs bræddi eldurinn skiltið sem er úr plasti og lak það niður á gólf verslunarinnar.

Slökkvilið kom fljótt á vettvang og tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×