Innlent

Engin ákvörðun í máli lögreglumanns sem misnotaði aðstöðu sína

MYND/Guðmundur

Enn hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu Ríkislögreglustjóra í máli lögreglumannsins sem ákærður var fyrir að misnota stöðu sína með því að láta aka sér í forgangsakstri út á Keflavíkurflugvöll. Manninum var gert að greiða 200 þúsund krónur í sekt en Ríkislögreglustjóri metur nú hvort hann haldi starfi sínu í lögreglunni.

Að sögn Páls Winkel, aðstoðarríkislögreglustjóra hefur engin ákvörðun verið tekin en Ríkislögreglustjóri er að fara yfir málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×