Innlent

Riddarakross fyrir störf í þágu íslenskunnar

Ólafur Ragnar er nú á ferð um Leeds og opnar í dag nýja skrifstofu dótturfyrirtækis Eimskips sem er sú umhverfisvænasta á Bretlandi.
Ólafur Ragnar er nú á ferð um Leeds og opnar í dag nýja skrifstofu dótturfyrirtækis Eimskips sem er sú umhverfisvænasta á Bretlandi. MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag tvo prófessora við Háskólann í Leeds riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf þeirra í þágu íslenskrar tungu og íslenskra fræða.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að þeir Andrew Wawn og Rory McTurk hafi um langa hríð kennt íslensku og stundað rannsóknir á íslenskum bókmenntum og sent frá sér fjölmargar ritsmíðar um þau efni. Við háskólann hafi lengi verið öflug kennsla í íslensku og íslenskum bókmenntum. Athöfnin fór fram í bókasafni Háskólans í Leeds en þar er meðal annars varðveitt hið merka bókasafn sem kennt er við Boga Melsteð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×