Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vel heppnað unglingalandsmót Unglingalandsmótið sem haldið er á Höfn hefur farið einstaklega vel fram. Í tilkynningu frá lögreglu segir að mótsgestir eru til mikillar fyrirmyndar, sömu sögu sé að segja um framkvæmd mótsins, og umgjörð þess. Talið er að mótsgestir séu tæplega 7000. Eftirlit lögreglu með umferð hefur gengið vel en um 21 ökumaður hefur verið kærður fyrir of hraðan akstur umhverfis Höfn, sem af er helginni. Engin slys hafa verið tilkynnt til lögreglu. 5.8.2007 09:58
Töluverður erill á Neskaupsstað Töluverður erill var hjá lögreglu á Neskaupsstað í nótt. Lögregla lagði hald á töluvert magn áfengis hjá unglingum á tjaldsvæðinu og í miðbænum. Þá var töluvert um slagsmál og stympingar í bænum í nótt, og gistu þrír fangageymslur vegna þessa. Ein líkamsárás var kærð. Einn var stöðvaður um sexleitið í morgun, grunaður um ölvun við akstur. Þá voru 13 voru teknir fyrir of hraðan akstur á Norðfjarðarvegi. Alls hafa því þrjátíu ökumenn verið stöðvaðir fyrir hraðakstur á svæðinu það sem af er helginni. Ekkert fíkniefnamál hefur komið upp á Neskaupsstað það sem af er helgi, en öflugt eftirlit er með slíku í bænum. 5.8.2007 09:52
Þrír teknir grunaðir um ölvunarakstur Þrír voru teknir grunaðir um ölvun í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu. Einn þeirra sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og reyndi að stinga af um fimmleitið í morgun. Hann endaði för sína nálægt Flúðum, þegar hann beygði út af Hrunamannavegi yfir á malarveg, og rann út í skurð. Einn farþegi var í bílnum en sakaði hvorugan. Þeir sofa nú úr sér á lögreglustöðinni og verða yfirheyrðir í dag. 5.8.2007 09:48
Karlmaður á sjötugsaldri fannst alvarlega slasaður í nótt Rúmlega sextugur karlmaður, sem fannst liggjandi í blóði sínu á miðri götu í Breiðholti í gærkvöldi, er á batavegi. Hann er þó enn á gjörgæsludeild og í öndunarvél. Ekki er vitað hvort ekið var á hann, ráðist hafi verið á hann eða hann hlotið áverkana á annan hátt. 5.8.2007 09:06
Varað við hávaðaroki á Kjalarnesi Lögregla varar við snörpum vindkviðum, allt að þrjátíu metrum á sekúndu, á Kalarnesi. Starfsmenn Spalar vara ökumenn húsbíla, og fólk með hjól- og fellihýsi í eftirdragi, sem er á leið í bæinn við vindinum, en í það minnsta einum húsbíl hefur verið lagt upp í vindinn á Kjalarnesi þar sem hann bíður af sér veðrið. 4.8.2007 20:51
Fjölmargir innipúkar í Reykjavík Þrátt fyrir að fjöldi fólks flykkist út á land yfir verslunarmannahelgina eru töluvert margir sem halda sig í bænum því nær uppselt er á Innipúkahátíðina sem haldin er í sjötta sinn í miðbæ Reykjavíkur í kvöld. Fjöldi hljómsveita og plötusnúða troða upp í þetta sinn á skemmtistaðnum Organ. 4.8.2007 19:46
Lagði hald á hundrað skammta af LSD Hundrað skammtar af LSD fundust á farþega í fólksflutningabíl í Varmahlíð í Skagafirði í gærkvöldi. Farþeginn var á leið til Akureyrar og í tilkynningu frá lögreglunni þar segir að gera megi ráð fyrir því að efnið hafi átt að selja þar. Maðurinn var einnig með lítilræða af hvítum efnum, líklega kókaíni og amfetamíni. 4.8.2007 19:43
Bann við nektardönsum stenst lög Sigurður Líndal fyrrverandi lagaprófessor segir bann við nektardönsum á veitingastöðum standast atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar og segir löggjafanum heimilt að skerða atvinnufrelsi varði það almannaheill. 4.8.2007 19:27
Missti báða fætur, vantar enn nýra Pólverji sem missti báða fætur og hlaut töluverðan skaða af vegna blóðeitrunar sem hann fékk við störf hér á landi fyrir tveimur árum þarf einnig á nýju nýra að halda eftir slysið. Hann þarf að fara í nýrnavél á Landspítalanum þrisvar í viku en segist þó ekki geta hugsað sér að snúa aftur til Póllands þar sem íslenska heilbrigðiskerfið hlúi mun betur að sjúklingum en í heimalandinu. 4.8.2007 19:26
Milljónatjón hjá laxabændum ef virkjað verður í neðri hluta Þjórsár Bændur við Kálfá í Gnúpverjahreppi segjast verða fyrir milljóna tjóni ef neðri hluti Þjórsár verður virkjaður. Þeir segja að laxveiði verði eyðilögð og að nýtt veiðihús hafi verið reist til einskis. 4.8.2007 18:45
Ekki inni í myndinni að selja RUV segir Þorgerður Katrín Menntamálaráðherra segir að sér komi spurning Björns Bjarnasonar á óvart um hvort ekki sé best að selja Ríkisútvarpið. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, svarar því játandi að selja eigi RUV en Þorgerður Katrín fullyrðir að það sé alls ekki inni í myndinni. 4.8.2007 18:30
Mannlíf með besta móti á útihátíðum Neistaflug fer nú fram í Neskaupstað. Tveir dansleikir voru í bænum í nótt, og fóru þeir að mestu vel fram samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Nokkur erill hefur verið hjá lögreglu í tengslum við ölvun hátíðargesta en lagt var hald á talsvert af áfengi sem unglingar á svæðinu höfðu í fórum sínum. 4.8.2007 18:30
Unglingalandsmótið gengur framar vonum Um 8000 þúsund manns eru nú á Unglingalandsmóti Íslands á Höfn í Hornarfirði. Hátíðin hefur gengið framar öllum vonum, og að sögn lögreglu er hegðun gesta með eindæmum góð. Þegar á leið nóttina í gær voru til að mynda einungis um 60 manns eftir að skemmta sér, flestir heimamenn. Einhver ölvun og slagsmál voru og var einn fluttur á slysadeild. 4.8.2007 17:43
Hátíðin Neistaflug farið vel fram hingað til Hátíðin Neistaflug á Neskaupsstað hefur að mestu farið vel fram. Nokkur erill hefur þó verið hjá lögreglu í tengslum við ölvun hátíðargesta. Þá lagði lögregla hald á talsvert magn af áfengi hjá unglingum á svæðinu. Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur og 17 ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæminu, sá sem hraðast fór ók á rúmlega 120 kílómetra hraða. 4.8.2007 11:16
Slasaðist mikið við fall í Glerárgljúfur Maður féll í Glerárgljúfur skammt ofan Akureyrar á móts við öskuhaugana í Glerárdal á tíunda tímanum í morgun. Björgunarsveitin Súlur var kvödd til aðstoðar lögreglu og sjúkraflutningsmönnum við að ná manninum upp úr gljúfrinu. Nota þurfti sigbúnað og var maðurinn hífður upp úr gljúfrinu í körfu og gekk það greiðlega. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé nánar vitað um tildrög slyssins en talið er að maðurinn sé talsvert slasaður. Hann var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. 4.8.2007 11:09
Þrjár líkamsárásir í miðbænum í nótt Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í miðbænum í nótt vegna ölvunar. Klukkan hálf þrjú í nótt lentu menn undir tvítugu í átökum á Laugaveginum þar sem annar dró upp hníf og tveir sem hugðust skakka leikinn fengu skurð á hendi. Sá með hnífinn gisti fangageymslur í nótt en hinir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar. 4.8.2007 10:06
Bílvelta á Suðurlandsvegi Maður slasaðist lítillega þegar hann velti bíl sínum á Suðurlandsvegi austan Þórisstaða við Ingólfsfjall laust fyrir klukkan áttta í morgun. Talið er að maðurinn hafi kastast út úr bíl sínum. Hann er grunaður um ölvun við akstur, og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík. Bíll hans er talinn ónýtur. Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir í Árnessýslu, grunaðir um ölvun við akstur. 4.8.2007 10:05
Umferð minni en á venjulegum föstudegi Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur umferð gengið vel í þeirra umdæmi í dag og straumur út úr bænum jafnvel verið minni nú í upphafi Verslunarmannahelgar en á venjulegum föstudegi. Svo virðist sem fólk með hjólhýsi og tjaldvagna hafi frekar lagt af stað úr höfuðborginni í gær þar sem spáin fyrir daginn í dag var ekki góð. 3.8.2007 23:26
Íþrótta- og æskulýðsþátttaka fólks af erlendum uppruna efld Ungmennafélag íslands hefur ákveðið að stórefla íþrótta- og æskulýðsþátttöku fólks af erlendum uppruna sem búsett er á íslandi. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins sem haldinn var á Höfn í Hornafirði í gær á 100 ára afmælisdegi hreyfingarinnar. 3.8.2007 22:25
Lögreglan á Blönduósi finnur þó nokkuð magn fíkniefna Fjögur fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi í nótt en sérstakt eftirlit hefur verið með fíkniefnaneytendum og sölumönnum fíkniefna dagana fyrir verslunarmannahelgina. 3.8.2007 20:33
Um hundrað jarðskjálftar við Upptyppinga í dag. Hátt í hundrað jarðskjálftar hafa mælst við Upptyppinga í dag, í skjálftahrinu sem enn stendur yfir. Rúmlega 300 skjálftar hafa mælst þar í þessari viku og er hópur vísindamanna nú á leið á svæðið. Þá er lögreglan á Húsavík og Seyðisfirði í viðbragðsstöðu ef til eldsumbrota kæmi. 3.8.2007 20:01
Íslendingar eiga byssur til að vopna alla í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi Byssur í eigu Íslendinga nægja til að vopna alla íbúa Garðabæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar. Ásókn Íslendinga í skotvopn hefur stóraukist að sögn lögreglu. 3.8.2007 19:11
Kampavínsklúbbnum Strawberries lokað Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað rekstrarleyfi kampvínsklúbbsins Strawberries í Lækjargötu og hefur staðnum verið lokað. 3.8.2007 19:09
Skakkaföll hjá íslenskum fjárfestum með lokun Sun Rocket í Bandaríkjunum Íslenskir fjárfestar, þar á meðal nokkrir íslenskir lífeyrissjóðir, hafa orðið fyrir skakkaföllum eftir að bandaríska fyririrtækið Sun Rocket hætti starfsemi. Brú II, er einn fjárfesta í bandaríska fyrirtækinu Sun Rocket. 3.8.2007 19:01
Norska fjármálaeftirlitið grunar að Kaupþing hafi brotið lög Norska fjármálaeftirlitið grunar að lög hafi verið brotin með kaupum Exista á hlutum í norska tryggingafélaginu Storebrand. Eignartengsl Exista við Kaupþing verða skoðuð í þessu sambandi. 3.8.2007 19:00
Útlendingar leita réttar síns til Eflingar vegna vangoldinna launa Yfir hundrað útlendingar hafa leitað til Eflingar vegna vangoldinna launa hjá verktakafyrirtækjum í byggingariðnaði síðustu þrjá mánuði. Um tveir þriðju þeirra sem leita til stéttarfélagsins vegna launakrafna eru útlendingar þrátt fyrir að þeir séu einungis lítill hluti félagsmanna. 3.8.2007 18:51
Þúsundir streyma á hátíðar Þúsundir Íslendinga streyma nú á hátíðar sem haldnar eru víða um land um helgina. Straumurinn þetta árið virðist liggja til Vestmannaeyja og Akureyrar. Umferðin hefur verið að þyngjast út úr höfuðborginni eftir því sem liðið hefur á daginn. Um fimm þúsund manns eru komnir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. 3.8.2007 18:30
Umferðarstofa biður bílstjóra að gæta vel að mótorhjólamönnum Umferðarstofa vill benda bílstjórum á að gæta sérstaklega vel að mótorhjólamönnum í umferðinni um helgina. Mótorhjól sjást ekki eins vel og bíll. Þau eru smærri og sýnast oft fjær en raun ber vitni. Umferðarstofa brýnir fyrir ökumönnum að gá að minnsta kosti tvisvar áður en ekið er af stað á gatnamótum. 3.8.2007 17:10
Vínbúðin í Vestmannaeyjum opin á laugardegi Vínbúðin í Vestmannaeyjum er opin á morgun, laugardag í fyrsta skipti um verslunarmannahelgi. Þetta er nýmæli, því hingað til hefur hún lokað á hádegi á föstudegi að tilmælum frá Vestmannaeyjarbæ. 3.8.2007 16:56
Rafmagn komið á í Skuggahverfi Rafmagn er komið á í Skuggahverfi en bilun varð í háspennustreng hjá Orkuveitu Reykjavíkur klukkan 16.15 í dag. Bilunin orsakaði rafmagnsleysi í hluta Skuggahverfis en rafmagn komst aftur á um klukkan 17. 3.8.2007 16:28
Unglingalandsmót UMFÍ sett í morgun Keppni á 10. unglingalandsmóti UMFÍ hófst á Höfn í Hornafirði í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá mótshöldurum hefur veðrið verið ágætt í dag, þurrt og hægur vindur. 3.8.2007 16:09
Tvö þúsund manns fljúga frá Reykjavík í dag Flug hefur gengið vel það sem af er degi. Fimm ferðir hafa verið farnar til Vestmannaeyja, fimm á Akureyri, þrjár á Egilsstaði og tvær á Ísafjörð, segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. 3.8.2007 15:41
Á 130 kílómetra hraða á Sæbraut Tvítugur piltur var sviptur ökuleyfi í nótt eftir að bíll hans mældist á tæplega 130 kílómetra hraða á Sæbraut. Samkvæmt dagbók lögreglunnar hefur pilturinn áður komið við sögu hjá lögreglu vegna umferðarlagabrota. 3.8.2007 14:43
Umferð gengur vel Umferð hefur gengið vel það sem af er degi en þyngist eftir því sem líður á. Lögreglan í Borgarnesi segir að allt hafi gengið sinn vanagang og engin óhöpp komið upp á. Hið sama er að frétta af Selfossi. Þar gengur allt eðlilega. Lögreglan í Vestmannaeyjum segist hafa í nógu að snúast við umferðareftirlit og við að aðstoða Þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal, en allt gangi samkvæmt áætlun. 3.8.2007 14:35
Skjálfti að stærð 3,1 við Trölladyngju Skjálfti upp á 3,1 mældist suður af Trölladyngju, Ódáðahrauni, klukkan níu mínútum yfir eitt í dag. Mikil skjálftavirkni er á nálægum slóðum en þessi skjálfti er ekki talinn tengjast þeim skjálftum sem hafa verið við Upptyppinga að undanförnu. 3.8.2007 13:34
Lögreglan á Akureyri leitar eftir Nissan jepplingi Grár Nissan Extrail jepplingur með númerinu PO - 694 hvarf frá bílasölu Ingvars Helgasonar á Akureyri fyrir 2-3 vikum. Lögreglan á Akureyri biður þá sem gætu vitað hvar bíllinn er niðurkominn um að láta vita í síma 4647700. 3.8.2007 13:13
Slasaðist eftir árekstur á Nýbýlavegi Kona slasaðist þegar tveir bílar skullu saman á Nýbýlavegi á tólfta tímanum í morgun. Kalla þurfti tækjabíl slökkviliðsins til að ná konunni úr bílnum og var hún flutt á bráðamóttöku Landspítala-Háskólasjúkrahúss. 3.8.2007 13:03
Fjórtán hundruð ökumenn fá frítt í stæði Eigendur um fjórtán hundruð bíla fá ókeypis bílastæði í Reykjavík. Þessir bílar uppfylla skilyrði borgarinnar um visthæfni og þeim má leggja frítt í níutíu mínútur. 3.8.2007 12:37
Áframhaldandi skjálftavirkni við Upptyppinga Ekkert lát er á skjálftavirkni við Upptyppinga og er hópur vísindamanna nú á leið á svæðið til að rannsaka það betur. Lögreglustjórar á Húsavík og Seyðisfirði eru í viðbragðsstöðu ef til eldsumbrota kæmi. 3.8.2007 12:32
Þurfti að fljúga blindflug hluta af ferðinni Indverji sem gerir tilraun til að setja heimsmet í hnattflugi á vélknúni fisi er nú staddur hér á landi. Hann flaug hingað til lands frá Grænlandi í gær við erfiðar aðstæður en mikil ísing myndaðist á vélinni og hann þurfti að fljúga blindflug hluta úr ferðinni. 3.8.2007 12:21
Ökumenn varaðir við heitu vatni í Mývatnssveit Vegna bilunar í dælubúnaði rennur heitt vatn yfir þjóðveginn við afleggjarann að baðlóninu í Mývatnssveit. Vegagerðin biður ökumenn um að fara varlega á vegakaflanum. 3.8.2007 12:21
Rekstrarleyfi Strawberries afturkallað Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað leyfi veitingastaðarins Strawberries í Lækjargötu 6 til reksturs þar sem starfsemin sem þar fór fram reyndist ekki samrýmast starfsleyfinu. Veitingastaðnum hefur því verið lokað. 3.8.2007 12:20
Ósáttur við að ungt fólk sé ekki velkomið á Akureyri Kaupmaður á Akureyri er ósáttur við að að fólki á aldrinum átján til tuttugu og þriggja ára verði bannað að tjalda á Akureyri um helgina. Hann segir ákvörðun yfirvalda í bænum hreint óskiljanlega. 3.8.2007 12:16
Norska fjármálaeftirltið athugar að skoða eignarhlut Kaupþings i Storebrand Norska fjármálaeftirlitið athugar að skoða hvort Kaupþing ráði yfir meiru í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand, en félagið hefur heimild fyrir. Hafi kaup fjármálafyrirtækisins Exista á bréfum norska félagsins verið gerð í samvinnu við Kaupþing er það brot á lögum. Stjórnarformaður Kaupþings segir svo ekki vera. 3.8.2007 12:06
Önnur árásarkvennanna yfirheyrð í Eyjum Búið er að yfirheyra aðra konuna sem réðst á 28 ára gamla konu fyrir utan skemmtistaðinn Sólon síðastliðna helgi. Konan var kölluð til skýrslutöku í Eyjum í gær en sleppt að því loknu því ekki þótti ástæða til að handtaka hana vegna málsins. Konan sem ráðist var á hefur legið á spítala í fimm daga og gengist undir aðgerð á eyra. 3.8.2007 12:06