Innlent

Fjórtán hundruð ökumenn fá frítt í stæði

Eigendur um fjórtán hundruð bíla fá ókeypis bílastæði í Reykjavík. Þessir bílar uppfylla skilyrði borgarinnar um visthæfni og þeim má leggja frítt í níutíu mínútur.

Verkefnið er eitt af 10 grænum skrefum Reykjavíkurborgar sem kynnt voru í vor. Vistvæna skrefið um ókeypis bílastæði var í dag stigið formlega af borgarstjóra og formanni umhverfis- og samgönguráðs.

Nýyrðið visthæfni er notað í þeirri merkingu að það sé mildara orð en vistvæni. Eigendur visthæfra bíla geta nálgast bifreiðaskífurnar hjá viðkomandi bílaumboði, en líklegt er að allt að tveggja ára bílar uppfylli skilyrðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×