Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ritstjóra Hestafrétta hótað líkamsmeiðingum og lífláti. Ritstjóra hestafrétta, Daníel Ben Þorgeirssyni hefur verið hótað líkamsmeiðingum birti hann myndir sem hann hefur undir höndum af manni að misþyrma hesti. 5.5.2007 14:49
Samkomulag um tannlæknaþjónustu barna undirritað Samkomulag um fyrirkomulag tannlæknaþjónustu þriggja og tólf ára barna var undirritað í morgun. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis og tryggingamálaráðherra fagnar samkomulaginu og segir tímasetninguna ekki tengjast Alþingiskosningunum eftir viku. 5.5.2007 14:01
Björn braggast Heilsa Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra er nokkuð góð að hans mati en hann gekkst undir brjótsholsaðgerð fyrir rúmum þremur vikum. Hann býst við því að heilsa hans verði betri en áður þar sem nú sé búið að komast fyrir það sem hrjáði hann. 5.5.2007 12:28
Nýjan varaflugvöll þarf verði Reykjavíkurflugvelli lokað Flugvallarnefnd telur að ef Reykjavíkurflugvelli verði lokað og innanlandsflugið flutt til Keflavíkur þurfi samhliða að byggja upp nýjan varaflugvöll á Bakka í Landeyjum, meðal annars vegna hættu á eldgosum á Reykjanesskaga. Allt að tíu prósenta líkur eru taldar á eldgosi þar á næstu fimmtíu árum. 5.5.2007 12:03
Samfylkingin eyddi mestu, ekki Framsókn Samfylkingin hefur eytt mestu í auglýsingar fyrir komandi kosningar en ekki Framsóknarflokkurinn líkt og fram kom í skýrslu Capacent Gallup sem við birtum í gær. Mistök urðu í samantekt sem gerð var á auglýsingakostnaðinum og var kostnaður Framsóknarflokksins var ofreiknaður um rúmlega 4,3 milljónir króna. Í yfirlýsingu frá Capacent Gallups segir að villan sé tilkomin vegna tvíbókunar á birtingum Framsóknarflokksins. 5.5.2007 11:19
Rændi pakka og þarf að greiða 30.000 krónur í sekt Rúmlega tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir þjófnað á pakka. Pakkinn hafði verið sendur með áætlunarbifreið á Selfoss en maðurinn var farþegi í bifreiðinni og rændi honum við komuna á Selfoss. 4.5.2007 20:52
Skattrannsóknarstjóri ríkisins stofnun ársins 2007 Skattrannsóknarstjóri ríkisins er stofnun ársins 2007 að mati rúmlega þrjú þúsund starfsmanna á opinberum vinnumarkaði. Þetta er annað árið í röð sem stofnunin verður fyrir valinu. 4.5.2007 20:16
Óbreytt fylgi flokkanna myndi bæta hlut kvenna á þingi Óbreytt fylgi flokkanna frá síðustu kosningum myndi bæta hlut kvenna á þingi um 6%. Sjálfstæðismenn standa sig lakast í uppröðun kvenna á listum. 4.5.2007 20:00
Búinn með meira en helming af auglýsingafé sínu Framsóknarflokkurinn er búinn að eyða meira en helming af því auglýsingafé sem flokkarnir náðu samkomulagi um. Aðeins Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin höfðu auglýst í sjónvarpi þegar auglýsingakostnaður flokkanna var tekinn saman í vikunni. 4.5.2007 19:25
Ekki innistæða fyrir öllum kosningaloforðunum Hagfræðingur Alþýðusambandsins segir ekki innistæðu fyrir öllu því sem stjórnmálamenn hafa lofað í aðdraganda komandi alþingiskosninga. 4.5.2007 19:20
Auðveldar samskipti björgunaraðila Í dag var tekinn í notkun fyrsti áfangi af þremur á nýju neyðar og öryggisfjarskiptakerfi, TETRA. Kerfið á að auka til muna öryggi landsmanna í hættu og neyðartilfellum en það auðveldar öll samskipti milli lögreglu, björgunarsveita, slökkviliða og annarra viðbragðsaðila á landinu. 4.5.2007 18:56
MND sjúklingur neyddur til að vera á spítala MND sjúklingur úr Kópavogi fær ekki þá aðhlynningu sem hann þarf til að búa heima. Hann hefur búið á taugalækningadeild Landspítalans frá því í ágúst í fyrra, gegn sínum vilja. Mannréttindabrot segir formaður MND félagsins. 4.5.2007 18:53
Landsvirkjun seld á spottprís miðað við Hitaveitu Suðurnesja Reykjavíkurborg og Akureyrarbær virðast hafa selt Landsvirkjun langt undir líklegu markaðsverði fyrir fimm mánuðum miðað við það verð sem ríkið fékk fyrir hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja fyrr í vikunni. Orkufyrirtækin voru metin álíka verðmæt við sölu eignarhlutanna þótt helstu kennitölur segi að Landsvirkjun ætti að vera fjórfalt verðmætari. 4.5.2007 18:45
Saksóknari hefur kært frávísun Saksóknari í Baugsmálinu, hefur kært frávísun héraðsdóms á tíu ákæruliðum málsins til Hæstaréttar. Hann hefur einnig kært frávísun ákærunnar á hendur Jóni Geraldi Sullenberger. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það af hálfu saksóknara hvort hann áfrýjar fleiri liðum málsins. 4.5.2007 18:44
Tveir handteknir grunaðir um innbrot Tveir karlmenn voru handteknir í nótt grunaðir um innbrot í bíla. 4.5.2007 17:59
Nýtt fangelsi rís á höfuðborgarsvæðinu Áformað er að reisa nýtt fangelsi á höfuðborgarsvæðinu. Er það partur af áætlun um heildaruppbyggingu fangelsa á landinu. Fangelsið yrði í tengslum við nýja lögreglustöð sem á að rísa á næstu árum. 4.5.2007 16:36
Reykjavík meðal bestu borga fyrir skemmtiferðaskip Reykjavík er tilnefnd til verðlaunanna World Travel Awards sem besti áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip í Evrópu, “Europe’s Leading Cruise Destination”. Um það bil 80 skemmtiferðaskip eru nú þegar bókuð til Reykjavíkur í sumar og áætlaður farþegafjöldi er á bilinu 60-70 þúsund. 4.5.2007 16:35
Frekari rannsóknir þarf fyrir nýjan Reykjavíkurflugvöll Reykjavíkurflugvöllur er á mjög góðum stað frá sjónarmiði flugsamgangna og flugrekenda. Flugvallarsvæðið er hins vegar mjög dýrmætt sem byggingarland. Þjóðhagslegir útreikningar sýna að flugvöllur á Hólmsheiði, Lönguskerjum eða flutningur innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar muni skila miklum ábata. Þetta er niðursstaða skýrslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem var birt í dag. 4.5.2007 15:41
Vitna leitað af hátíðinni „Aldrei fór ég suður“ Lögreglan á Vestfjörðum leitar eftir vitnum að ofbeldisbroti sem framið var á tónlistarhátíðinni „Aldrei fór ég suður.“ Um klukkan tvö að nóttu þann 8. apríl síðastliðinn mun karlmaður hafa brotið gegn ungri stúlku á færanlegu salerni á tónleikasvæði hátíðarinnar. Karlmaðurinn er talinn vera 170 til 180 cm á hæð og var klæddur íslenskri lopapeysu með bekk. Stúlkan var gestur á hátíðinni. 4.5.2007 15:20
Þröstur byggir sér hjólhýsi Þegar Björg Erlingsdóttir á Höfn tók fram reiðhjólið í gærmorgun hafði þröstur gert sér hreiður í körfunni á hjólinu. Björg segist hafa séð mosatægjur í körfunni í fyrrakvöld og héld að þar hefðu börn átt í hlut. Raunin var sú að þröstur var byrjaður að leggja þar grunn að hreiðri. 4.5.2007 14:15
Amfetamín og skotvopn fundust við húsleitir Lögreglan lagði hald á töluvert magn af amfetamíni við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Í annarri íbúðinni fundust jafnframt skotvopn. Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin vegna málanna. 4.5.2007 14:15
Hátt í 20 hús rifin við Þverholt Hafist var handa við að rífa hátt í tuttugu hús við Þverholt í Reykjavík í morgun og er í ráði að reisa fjölmenna stúdentagarða á rústum þeirra. Ráðgert er að verkið taki tvo til þrjá mánuði og má segja að öll hús við Þverholtið, allt frá gamla DV húsinu og að Háteigsvegi, verði bortin niður. 4.5.2007 13:15
Ræða atvinnuástandið í Bolungarvík Guðmundur Halldórsson, Bolvíkingur og fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður, boðar til borgarafundar í Bolungarvík á sunnudag vegna atvinnuástandsins í bænum. Hann segir ráðamenn verða að koma með lausnir en hátt í 70 manns hafa misst vinnuna á síðustu misserum. 4.5.2007 12:46
Karlmaður fékk fimm ár fyrir ýmis brot Hæstiréttur staðfesti í gær fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir rúmlega fertugum karlmanni fyrir margvísleg brot. Helstu brotin eru nytjastuldur, þjófnaður, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og brot á fíkniefnalöggjöfinni. Hann var einnig sviftur ökuréttindum ævilangt. 4.5.2007 12:43
Málefni Grímseyjarferju í uppnámi Meirihluti samgöngunefndar felldi í morgun tillögu minnihlutans um að Ríkisendurskoðandi verði látinn fara yfir fjárreiður er varða væntanlega Grímseyjarferju. Málefni ferjunnar eru því áfram í uppnámi. Asögn Kristjáns Möller alþingismanns og nefndarmanns, mættu fulltrúar Vegagerðarinnar á fundinn ásamt fulltrúum skipasmíðastöðvarinnar sem unnið hafa að viðgerð á ferjunni. 4.5.2007 12:31
Jónína: Kastljós baðst ekki afsökunar Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra vinnur nú að kæru til Siðanefndar Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar Kastljóss um ríkisborgararétt unnustu sonar síns. Hún segir eina af ástæðum kærunnar vera þá að Kastljósfólk hafi ekki séð sóma sinn í því að biðjast afsökunar. 4.5.2007 12:13
Samfylkingin næst stærst í könnun Samfylkingin er aftur orðin næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, samkvæmt könnun Gallups fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Hún hefur náð talsverðu forskoti á Vinstri græna. 4.5.2007 11:57
Bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu tryggt Íslendingar hafa tryggt sér þrjú hundruð þúsund skammta af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu en samningur þess efnis var undirritaður í morgun. Sóttvarnarlæknir segir mikilvægt að Íslendingar hafi tryggt sér bóluefnið þar sem barist verði um hvern skammt ef til heimsfaraldurs kemur. 4.5.2007 11:57
Kári Stefánsson í hópi 100 mestu áhrifamanna Time Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er á lista yfir 100 áhrifamestu menn heimsins í lista bandaríska vikuritsins Time, sem birtur er í dag. Áhrifafólkinu er skipt í hópa yfir til dæmis listamenn, leiðtoga, hetjur og frumkvöðla og vísindamenn og hugsuði. Kári tilheyrir síðastnefnda hópnum. 4.5.2007 11:55
Lítill áhugi erlendis á Baugsmálinu Dómur héraðsdóms í Baugsmálinu í gær virðist hafa vakið litla athygli utan landsteinanna. Varla er minnst á dóminn í dönsku blöðunum í morgun, ekki einu sinni í Ekstra Bladet sem skrifaði mikinn greinaflokk um íslensku útrásina í fyrra. Bresku blöðin virðast sömuleiðis hafa lítinn áhuga á málinu, Financial Times rekur þó niðurstöðu dómsins og aðdraganda hans og í Guardian er stutt frétt um málið. 4.5.2007 11:50
Flugvallarskýrslan birt í dag Skýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem beðið hefur verið með eftirvæntingu verður birt opinberlega í dag. Búist er við að niðurstöðurnar verði lagðar til grundvallar ákvörðun um framtíð Vatnsmýrar og innanlandsflugs. Samráðsnefnd um úttekt á flugvellinum kynnir skýrsluna á blaðamannafundi eftir hádegi. 4.5.2007 11:44
Gistinóttum fjölgaði um 19 prósent Gistinóttum á hótelum í marsmánuði fjölgaði um tæplega 19 prósent frá marsmánuði í fyrra. Þær fóru úr tæplega 74 þúsundum í tæp 88 þúsund. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem þeim fækkaði um tvö prósent. 4.5.2007 11:30
Vilja að Núpsskóli verði meðferðarheimili fyrir börn og unglinga Bæjarstjórn Ísafjarðar samþykkti einróma í gær að bjóða Núpsskóla sem meðferðarheimili fyrir börn og ungmennni. Ákveðið var að ganga til viðræðna við stjórnvöld um þennan möguleika. 4.5.2007 11:02
Dönsk fermingarbörn fá fræðslu um áfengismál Dönsk fermingarbörn fá nú fræðslu um áfengismál í fermingarfræðslunni. Danskir vínframleiðendur og innflytjendur hafa tekið höndum saman við kirkjuna um málið og eru unglingar varaðir við að þótt þeir teljist í fullorðinna manna tölu eftir fermingu, sé heili þeirra ekki fullþroskaður fyrr en um tvítugt. Áfengisdrykkja á unglingsárum geti tafið og truflað þann þroska. 4.5.2007 10:45
Innritun í framhaldsskóla á netinu Opnað verður fyrir rafræna innritun í framhaldsskóla landsins á skólavef menntamálaráðuneytisins þann 14. maí næstkomandi. Þá verður hægt að innrita nemendur á vefnum menntagatt.is til 11. júní. Allar umsóknir í dagskóla verða með rafrænum hætti og berast beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. 4.5.2007 10:27
Íslandshreyfingin hvetur til að staðið verði við loforð um Vaðlaheiðargöng Íslandshreyfingin hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta þess efnis að ríkið hafi hætt stuðningi sínum við félagið Greið leið, sem vinnur að gerð ganga undir Vaðlaheiði. 3.5.2007 21:18
Undirbúningur Vaðlaheiðarganga hefur stöðvast vegna fjárskorts Mikill stuðningur er við gerð Vaðlaheiðarganga. Samkvæmt nýrri könnun Capacent telja 92% svarenda í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu mikilvægt að göngin verði grafin. Undirbúningur verkefnisins hefur hins vegar stöðvast. 3.5.2007 19:43
Jón Ásgeir fékk þriggja mánaða dóm Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa útbúið tilhæfislausan kreditreikning í bókhaldi Baugs sumarið 2001. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, fékk níu mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir bókhaldsbrot. 3.5.2007 19:28
Japanskur ferðamaður fékk sér sundsprett í Tjörninni Tilkynnt var um karlmann á miðjum aldri í Tjörninni í gærkvöld. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn, „sem er að öllum líkindum japanskur ferðamaður“, eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni, kominn á þurrt. 3.5.2007 17:43
Framsókn tapar fylgi til VG í Kraganum Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin halda sínu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Framsókn tapar miklu fylgi yfir til vinstri grænna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið. 3.5.2007 17:21
Sparisjóður Mýrarsýslu dæmdur til 26 milljóna greiðslu Hæstiréttur dæmdi í dag Sparisjóð Mýrarsýslu til að greiða Kaupfélagi Árnesinga rúmar 26 milljónir króna auk vaxta. Sparisjóðurinn hafði tekið upphæð sem þriðji aðili greiddi inn á innlánsreikning Kaupfélagsins upp í skuld þess vegna víxla sem Sparisjóðurinn keypti af Kaupfélaginu. 3.5.2007 17:04
Átta mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir Hæstiréttur staðfesti í dag átta mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni vegna tveggja líkamsárása í og við hótel á Akranesi í fyrrasumar. 3.5.2007 16:49
Missti sígarettuna og ók á girðingu Ungur ökumaður varð fyrir því óláni í nótt að keyra á girðingu eftir að hann missti logandi sígarettu í miðjum akstri. Flytja þurfti piltinn á slysadeild. Tilkynnt var um 28 umferðaróhöpp í höfuðborginni síðasta sólarhring. 3.5.2007 16:43
Síbrotamaður í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag síbrotamann í fimm ára fangelsi fyrir mikinn fjölda brota. Maðurinn var sakfelldur fyrir var nytjastuld, þjófnað, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. 3.5.2007 16:38
Lögregluembættin á Vesturlandi í nánara samstarf Löggæsla á Vesturlandi verður efld verulega og viðbragðstími styttur samkvæmt nýju samkomulagi milli lögregluembættanna í landsfjórðungnum. Framvegis mun lögreglulið á svæðinu sjá sameiginlega um allt eftirlit án tillits til umdæmamarka. 3.5.2007 16:24