Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kaupþing neitar tilraun til að kaupa Jón Gerald Jón Gerald Sullenberger segist feginn að hafa sloppið við ákæru í Baugsmálinu. Hann segir forstjóra Kaupþings hafa reynt að kaupa sig til að falla frá málinu árið 2002 með boði um tvær milljónir bandaríkjadala. Þessu neitar Kaupþing. „Hvorki forstjóri Kaupþings banka né aðrir starfsmenn hans hafa nokkurn tímann boðið Jóni Gerald Sullenberger greiðslur fyrir að draga mál sitt gagnvart Baug til baka." 3.5.2007 14:49
Fagna hugmyndum um enduruppbyggingu eftir bruna Húsafriðunarnefnd ríkisins fagnar frumkvæði borgarstjóra Reykjavíkur um enduruppbyggingu húsanna á horni Austurstrætis og Lækjargötu sem skemmdust í eldsvoða þann 18. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. 3.5.2007 14:40
Fræðimannsíbúðinni í Kaupmannahöfn úthlutað Sjö fræðimenn munu fá afnot af íbúð Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn næsta vetur en úthlutun fór fram í dag. Úthlutunin gildir frá septembermánuði á þessu ári til ágústloka á því næsta. 3.5.2007 14:02
Kostaði ríkissjóð rúmlega 105 milljónir Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna meðferðar endurákæru í Baugsmálinu fyrir dómi eru rúmlega 105 milljónir króna. Þetta kom fram í dómsskjölum en í þeim ákvörðuðu dómarar laun verjenda. Við ákvörðun málsvarnarlauna var tekið mið af vinnuskýrslum verjenda og viðmiðunarreglum dómstólaráðs. Virðisaukaskattur er innifalinn í málsvarnarlaununum. 3.5.2007 13:59
Ráðuneyti útskýrir skjóta afgreiðslu ríkisborgararéttar Dóms- og kirkjumálaráðuneytið segir ekkert athugavert við skjóta afgreiðslu á umsókn stúlku frá Gvatemala um íslenskan ríkisborgararétt en stúlkan tengist Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra. 3.5.2007 13:56
Rúmlega 400 hjól boðin upp hjá lögreglunni Rúmlega 400 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Að sögn lögreglu eru hjólin sem boðin verða upp bæði ný og gömul. 3.5.2007 13:44
Kastljós stendur við umfjöllun sína Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir Kastljósið standa við umfjöllun sína um veitingu ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra. Spurningu ráðherrans um hvort þátturinn láti misnota sig í pólitískum tilgangi er er jafnframt hafnað. Jónína sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hafnaði því sem hún kallar ásökunum Kastljóss og spurði hvort Kastljósið léti misnota sig með því að koma höggi á hana og Framsóknarflokkinn í aðdraganda kosninga. Þórhallur hafnar því að Kastljós er hafi verið misnotað af neinum. Hann segir meðal annars í yfirlýsingunni, að aldrei hafi verið sagt að Jónína hefði beitt sér í málinu, heldur vakin athygli á óvenjulegri afgreiðslu málsins. Þegar við bætist að stúlkan búi á heimili umhverfisráðherra sé full ástæða fyrir fjölmiðla að spyrja spurninga. 3.5.2007 13:33
Högnuðust um rúma 60 milljarða Íslenskir fjárfestar högnðust um rúma sextíu milljarða króna þegar þeir seldu 85 prósenta hlut sinn í búlgörsku símafélagi í gærkvöldi. 3.5.2007 13:09
Frakkar búsettir á Íslandi mjög vinstrisinnaðir Frakkar búsettir á Íslandi eru mun vinstrisinnaðri en landar þeirra í heimalandinu sé miðað við hvernig þeir kusu í utankjörstaðakosningu í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna. Rúmlega helmingur þeirra kaus Segolene Royal, frambjóðanda vinstrimanna, en aðeins einn af hverjum tíu hægrimanninn Nicolas Sarkozy. 3.5.2007 12:53
Mikil vonbrigði með sakfellingu Jóns Ásgeirs Gestur Jónsson lögmaður segir sakfellingu yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Baugsmálinu mikil vonbrigði. Hann sagði við fréttamenn eftir dómsuppkvaðningu í hádeginu að afstaða dómara til málatilbúnaðarins endurspeglaðist í því að ríkið væri látið bera mestan hluta málskostnaðar. Hann segir að dómurinn verði skoðaður, en ekki sé búið að ákveða hvort málinu verði áfrýjað. 3.5.2007 12:37
Hæðarslá féll á bíla Umferðarslys varð á Miklubraut í dag þegar að bíll með krana rakst á hæðarslá yfir götunni. Hún féll við það á tvo bíla og skemmdust þeir töluvert. Engin slys urðu á fólki. Loka þurfti öllum akreinum í vestur á meðan verið var að fjarlægja slánna af götunni. 3.5.2007 12:11
Jón Ásgeir og Tryggvi fá skilorðsbundna dóma Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að Baugsmálinu. Þá var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri félagsins, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. 3.5.2007 12:02
Niðurrif Pravda stöðvað að kröfu lögmanns Niðurrif á rústunum af skemmtistaðnum Pravda í Austurstræti sem hófst á laugardag, var stöðvað seinnipartinn í gær að kröfu lögmanns. Rekstraraðilar í húsinu telja að nú þegar hafi verið unnið ómetanlegt tjón á því sem þeir telja að hafi verið heill hluti af húsinu. Þeir eru óhressir með að borgin hyggist taka af þeim reksturinn án þess að tala við þá. 3.5.2007 12:00
Rafræn kjörskrá opnuð á vefnum Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Þar geta kjósendur aflað sér upplýsinga um hvar þeiri eigi að kjósa og í hvaða kjördeild. 3.5.2007 11:28
Bein útsending - Dómur í Baugsmálinu Bein útsending verður í hádegisfréttatíma Stöðvar 2 og á Vísir.is frá Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tólf en þá verður dómur kveðinn upp í Baugsmálinu. Um er að ræða 18 ákæruliði í endurákæru sem Sigurður Tómas Magnússon gaf út eftir að 32 ákæruliðum í Baugsmálinu hinu fyrra var vísað frá dómi. 3.5.2007 11:01
Nýskráðum bílum fækkar um 35 prósent Samdráttur upp á tæplega 35 prósent varð í nýskráningum bíla á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Alls voru tæplega 5.800 nýir bílar skráðir á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samkvæmt Hagstofu Íslands 3.5.2007 10:45
Ekki byrjað að mæla skyggni á Hólmsheiði Röskum átján mánuðum eftir að flugvöllur á Hólmsheiði þótti álitlegur kostur - hafa enn engin tæki verið keypt til að mæla skyggni og skýjahæð á heiðinni. Samgönguráðuneytið hefur enn ekki farið fram á það við Flugstoðir ohf. að hefja mælingar sem nauðsynlegar eru til að taka afstöðu til flugvallar á heiðinni. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að hægt hefði verið að ná nægilegum upplýsingum á einu til tveimur árum. 2.5.2007 18:57
Ágreiningur um kostnað vegna viðgerða Ágreiningur er milli Vegagerðarinnar og Vélsmiðju Orms og Víglundar um viðgerðarkostnað á Grímseyjarferjunni, sem lengi hefur verið í slipp. Hægt hefur verið á viðgerðum vegna ágreiningsins. Viðgerðarkostnaður hefur farið langt fram úr áætlunum vegna lélégs ástands ferjunnar. 2.5.2007 18:47
Metfjöldi á fundi í Grímsey Fjölmennasti fundur sem sögur fara af í Grímsey var haldinn þar í gær. Þótt íbúarnir séu aðeins eitthundrað talsins mættu samt 140 manns á fundinn, sem sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi stóðu fyrir. Þar voru forystumenn flokksins gagnrýndir fyrir að vilja ekki ræða Evrópusambandsaðild. Reykjavíkurflugvöllur virtist brenna einna heitast á fundarmönnum. 2.5.2007 18:45
Flestir tilgreina persónulegar ástæður þegar sótt er um ríkisborgararétt Þeir sem fengið hafa ríkisborgararétt hér á landi að undangenginni afgreiðslu allsherjarnefndar Alþingis hafa flestir búið hér á landi í tvö ár eða lengur, eru eldri en 18 ára og uppfylla ekki búsetuskilyrði. Í langflestum tilvikum tilgreina þeir persónulegar ástæður eða ástæður fjölskyldulegs eðlis fyrir því að sótt er um undanþágu. 2.5.2007 18:05
Óvissan slæm fyrir skjólstæðinga SÁÁ Æskilegra hefði verið að nýundirritaður þjónustusamningur SÁÁ við ríkið næði til lengri tíma en næstu áramóta að sögn framkvæmdastjóra hjá SÁÁ. Hann segir óvissuna mjög slæma fyrir skjólstæðinga samtakanna. Samtökin undirrituðu í dag samkomulag við annars vegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og hins vegar fjármálaráðuneytið um framlengingu þjónustusamnings við ríkið fram að næstu áramótum. Upphaflegur þjónustusamningur var frá ársbyrjun 2002 til árloka 2005. 2.5.2007 17:10
Fimm sóttu um embætti ríkissaksóknara Fimm umsækjendur sóttu um starf ríkissaksóknara, en umsóknarfrestur rann út síðastliðinn föstudag. Umsækjendur eru hæstaréttarlögmennirnir Brynjar Níelsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, saksóknararnir Egill Stephensen og Sigríður Friðjónsdóttir og Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari. 2.5.2007 16:47
Hræðileg vonbrigði Arndís Björnsdóttir, talsmaður Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja, segir oddvita listans í Norðausturkjördæmi ekki hafa haft samráð við sig áður en hætt var við framboð í kjördæminu. Arndís segir þetta vera hræðileg vonbrigði. 2.5.2007 16:22
Hlutur ríkisins mun renna til Suðurnesja Suðurnesin munu með einhverjum hætti njóta sölu ríkisins á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra í samtali við Vísi í dag. Grétar Mar Jónsson frambjóðandi frjálslyndra í Suðurkjördæmi hefur lagt til að fjármagnið verði látið renna til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. 2.5.2007 16:18
Jón Ásgeir í lúxuspallborði Financial Times Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs verður í pallborði á ráðstefnu um munaðarvörur, þjónustu- og lúxus í júní. Það er dagblaðið Financial Times sem á veg og vanda að ráðstefnunni. Hún verður haldin í Feneyjum 3-5 júní næstkomandi. Yfirskrift hennar er Hefðbundinn munaður á nýjum mörkuðum; Nýr munaðir í gamla heiminum, eða „Old Luxury in New Markets; New Luxury in the Old World.“ 2.5.2007 15:59
Kosningaloforð svikin með háu lóðarverði Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir sjálfstæðismenn hafa laðað kjósendur til sín á óheiðarlegan hátt með loforðum um ódýrar lóðir. Borgarstjóri bíti síðan höfuðið af skömminni í grein um lóðarverð í Morgunblaðinu í gær. 2.5.2007 15:41
Sólmyrkvi í Reykjavík -ekki þó alveg strax Almyrkvi á sólu verður í Reykjavík þann 12. ágúst árið 2026, - eða eftir 19 ár. Um þetta má lesa á heimasíðu Halldórs Björnssonar veðurfræðings sem nú er í rannsóknarleyfi í Montreal í Kanada. Halldór segir að þetta verði góður sólmyrkvi. Hann hefst klukkan korter í fimm eftir hádegi og lýkur um tveim tímum síðar. 2.5.2007 15:31
Styrkja sjúklinga með næringarefnum og sérfræði Ríkið mun styrkja sjúklinga til kaupa á næringarefnum og sérfræði samkvæmt nýrri reglugerð sem undirrituð var í dag. Í henni segir að sjúklingar sem eigi við tilgreinda sjúkdóma að stríða og þurfi lífsnauðsynlega á slíkum efnum að halda fái styrk vegna kaupa á næringarefnum og sérfræði. 2.5.2007 14:55
Íslenskir neytendur áhugalausir um mannréttindi og umhverfissjónarmið Íslendingar telja það síður mikilvægt að upplýsingar um siðferðislega afstöðu matvælaframleiðanda séu sérstaklega tilgreindar á matvælapakkningum miðað við neytendur á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun um merkingu matvæla sem Norræna ráðherranefndin fjármagnaði. 2.5.2007 14:50
Baráttusamtökin hætt við að bjóða fram Baráttusamtök aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða fram í komandi alþingiskosningum. María Óskarsdóttir, efsti maður á lista framboðsins í Norðausturkjördæmi, staðfesti þetta fyrir nokkrum mínútum. 2.5.2007 14:05
Haturglæpir gegn samkynhneigðum fara vaxandi Hatursglæpir gegn samkynhneigðum einstaklingum fara vaxandi og þá sérstaklega gagnvart samkynhneigðum karlmönnum. Þetta kemur fram í máli formanns Samtakanna 78, í samtali við Vísi. Hann segist vita um mun fleiri tilfelli hatursglæpa á síðasta ári en árin þar á undan. 2.5.2007 13:48
Refasetur á Súðavík Refasetur bætist innan tíðar við fjölbreyta flóru setra, sem kennd við drauga, vesturfara, galdra og fleira. Súðvíkingar eru að endurbyggja rúmlega aldar gamalt refahús við Eyrarlandsbæinn, í grennd við byggðina og njóta til þess fjárveitinga frá Alþingi. 2.5.2007 12:41
Mikið af þorski við Þorlákshöfn Netabáturinn Hvanney frá Hornafirði er búinn að fá yfir 300 tonn af stórum þorski á aðeins sex dögum rétt utan við höfnina i Þorlákshöfn. Það þykir afburða góður afli. Til samanburðar jafngildir þessi afli fullfermi tveggja til þriggja meðal stórra ísfisktogara. 2.5.2007 12:27
Áhyggjur af hlutdrægni spyrla RUV Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar til Alþingis hefur áhyggjur af því sem hún kallar einsleitan hóp spyrla á Ríkissjónvarpinu. Hún segir þá flesta eiga sér fortíð í samtökum hægrimanna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum. 2.5.2007 12:20
Dregið úr reykingum um helming síðustu 12 ár Hlutfall nemenda í 10. bekk sem reykja daglega hér á landi hefur lækkað um nær helming á 12 árum. Þá hefur dregið verulega úr drykkju þeirra á sama tímabili. Þetta eru niðurstöður úr nýrri ESPAD rannsókn sem kynntar voru í dag. 2.5.2007 12:02
Viðskiptamöguleikar við Sameinuðu þjóðirnar Viðskiptamöguleikar íslenskra fyrirtækja við Sameinuðu þjóðirnar er efni fræðslufundar á vegum Útflutningsráðs og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn í fyrramálið á Hótel sögu. Niels Ramm sérfræðingur í upplýsingaöflun á vegum Sameinuðu þjóðanna er einn fyrirlesara. 2.5.2007 11:58
Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan tólf á morgun. Þá kemur í ljós hvort sakborningarnir þrír, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger, verða sakfelldir fyrir einhvern þeirra nítján ákæruliða sem nú eru teknir fyrir. 2.5.2007 11:55
Bjarni sakar Sigurjón um ósannindi Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, sakar Sigurjón Þórðarson, þingmann Frjálslynda flokksins, um að fara með ósannindi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Bjarni sendi frá sér í morgun. Hann segir ummæli Sigurjóns um að hann hafi neitað að afhenda gögn vegna umsóknar um ríkisborgararétt hreinan uppspuna. Sigurjón vísar þessu á bug. Von er gögnum vegna þeirra erinda sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á kjörtímabilinu síðar í dag. 2.5.2007 11:26
Gunnlaugur skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn Gunnlaugur K. Jónsson hefur verið skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá áramótum hefur hann verið annar tveggja starfsmanna innri endurskoðunar embættisins. Gunnlaugur hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1977. Hann útskrifaðist úr Lögregluskólanum árið 1979 og starfaði í almennri deild og umferðardeild. 2.5.2007 11:06
Þrír 13 ára gripnir við innbrot Þrír 13 ára piltar voru staðnir að verki við að gera tilraun til innbrots í áhaldageymslu Hitaveitu Suðurnesja í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan tíu og fór þegar á staðinn. Drengirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hringbraut. Foreldrar piltanna sóttu þá þangað eftir yfirheyrslu. 2.5.2007 10:58
Óvenjumikið af sílamávi við tjörnina Óvenjumikið er af sílamávi við tjörnina um þessar mundir. Þetta segir meindýraeyðir í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir hundruðir sílamáva á tjörninni. Það sé meira en verið hefur. Flestir borgarbúar vilja að borgin stemmi stigu við ágangi sílamáva á útivistarsvæðum. 2.5.2007 10:24
Breyttur útivistartími barna og unglinga Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær og framvegis mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti lengur en til klukkan tíu á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan tólf á miðnætti 2.5.2007 10:20
Styttri kjarasamningar vegna óvissu og ójafnvægis í efnhagslífinu Þensla og ójafnvægi í efnhagslífinu mun væntanlega valda því að samið verði til færri ára í komandi kjarasamningum en hingað til hefur þekkst. Þetta kom fram í máli Sigurðar Bessasonar, formanns Eflingar stéttarfélags, í hádegisviðtali á Stöð 2 í dag. Hann segir skuldir heimilanna hafa margfaldast á undanförnum árum vegna rangra ákvarðanna stjórnvalda. Rúmlegur þriðjungur félagsmanna í Eflingu stéttarfélags í dag er af erlendu bergi brotinn og hefur þeim fjölgað gríðarlega frá aldamótum. 1.5.2007 19:54
Algengt að um 200 starfsmenn leiti til heilsugæslu Kárahnjúka Trúnaðarmaður verkalýðsfélaga á Kárahnjúkum segir ekki óalgengt að um tvö hundruð starfsmenn leiti til heilsugæslu í hverjum mánuði vegna allskyns kvilla. Hann segir fjölda þeirra sem veikjast ekki hafa aukist sérstaklega á milli mánuða. 1.5.2007 19:11
Vonast til að auglýsing eftir staðgöngumóður verði til hagsbóta Konan sem auglýsti eftir staðgöngumóður, segist gera það í kjölfar læknamistaka. Hún vonast til að umræðan um hennar mál leiði til lagabreytinga, öðrum til hagsbóta. 1.5.2007 19:09