Fleiri fréttir Fjórir ferðamenn fundust við leit Fjórir Bretar fundust við ánna Blöndu í dag en þeir höfðu ekki samband við Landsbjörgu í gær eins og þeir ætluðu að gera. Eftirgrennslan var því hafin eftir leiðaráætlun sem mennirnir höfðu skilið eftir og gekk auðveldlega að finna þá. Mennirnir hugðust ganga á skíðum frá Ingólfsskála að Hveravöllum. Við Blöndu lentu þeir í miklu vatni og krapa og komust ekki af sjálfsdáðum yfir ánna. 4.4.2007 17:45 Doktor Geir 4.4.2007 16:40
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir ferðamenn fundust við leit Fjórir Bretar fundust við ánna Blöndu í dag en þeir höfðu ekki samband við Landsbjörgu í gær eins og þeir ætluðu að gera. Eftirgrennslan var því hafin eftir leiðaráætlun sem mennirnir höfðu skilið eftir og gekk auðveldlega að finna þá. Mennirnir hugðust ganga á skíðum frá Ingólfsskála að Hveravöllum. Við Blöndu lentu þeir í miklu vatni og krapa og komust ekki af sjálfsdáðum yfir ánna. 4.4.2007 17:45
Mótmælir því að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga Landlæknir mótmælir þeim fullyrðingum sem fram hafi komið í fréttum, ekki síst vegna kynningar á tónleikum sem Forma-samtökin, um að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga á Íslandi. 4.4.2007 16:32
Dorrit væntanleg heim á næstu dögum Dorrit Moussaieff forsetafrú er væntanleg hingað til lands á næstu dögum en eins og kunnugt lærbrotnaði hún á skíðum í Aspen í Colorado í síðustu viku. Þær upplýsingar fengust hjá forsetaritara að Dorrit væri á góðum batavegi og að hún hefði verið í góðu sambandi við lækna sína. 4.4.2007 16:25
Komugjöld til annarra en lækna á göngudeild tekin til greina Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur breytt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðyneytinu felur breytingin í sér að framvegis verða komugjöld á göngudeildunum vegna þjónustu annarra en lækna tekin til greina þegar sótt er um afsláttarkort frá Tryggingastofnun ríkisins. 4.4.2007 16:00
Fór fram á sex vikna gæsluvarðhald yfir hnífamanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í dag fram á það að maðurinn sem stakk annan mann með eldhúshnífi í húsi við Hátún í gærkvöld yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald í sex vikur. Að sögn lögreglu hefur maðurinn játað að hafa stungið fórnarlamb sitt en lítið er um skýringar á því háttarlagi. 4.4.2007 15:54
Ríkið selur hlut sinn í Baðfélagi Mývatnssveitar Iðnaðarráðherra hefur falið einkavæðingarnefnd að annast sölu á 16 prósenta hlut ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar hf. sem á og rekur jarðböðin við Mývatn. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu er nafnvirði hlutarins er 20 milljónir króna. 4.4.2007 15:06
Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði Norræna er nú að leggjast að Strandarbakka á Seyðisfirði eftir að skipið slitnaði frá bryggjunni í óveðri í nótt. Fram kemur í tilkynningu að fragt og faþegar verði nú teknir um borð en áætlað er að ferjan fari frá Seyðisfirði undir kvöld. 4.4.2007 14:55
Icelandair fellst á tilmæli talsmanns neytenda Icelandair hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að nefna ekki hluta heildarverðs „gjöld" nema um sé að ræða annaðhvort valkvæða aukaþjónustu fyrir flugfarþega eða gjöld sem skylt er að greiða í hlutfalli við fjölda farþega. 4.4.2007 14:47
Forsetinn heimsótti Harvard og MIT Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í gær gestur við Harvard-háskóla þar sem hann flutti fyrirlestur í boði hins virta prófessors Michaels Porter sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á samkeppnishæfni þjóða. Í dag heimsótti hann svo MIT, tækniháskólann í Boston í Massachusetts. 4.4.2007 14:22
Páskakvíga í Húsdýragarðinum Sannkallaður páskaglaðningur leit dagsins ljós í Húsdýragarðinum í nótt þegar kýrin Branda bar myndarlegri kvígu. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Húsdýragarðinum er faðirinn tuddinn Týr sem einnig býr í garðinum en hann er afkvæmi hins landsþekkta Guttorms sem lengi gladdi gesti Húsdýragarðsins. 4.4.2007 14:09
Hótaði afgreiðslukonu með hamri Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, fyrri brot gegn valdstjórninni, rán og þjófnað. 4.4.2007 13:53
Sex fíkniefnamál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt að því er kemur fram í frétt frá lögreglunni. Um miðnætti hafði lögregla afskipti af þremur mönnum á þrítugsaldri í þremur aðskildum málum en í fórum þeirra fundust fíkniefni sem talið er að sé marijúana. 4.4.2007 13:36
Könnun gefur til kynna miklar breytingar á pólitísku landslagi nyrðra Fréttastofan heldur áfram kosningahringferð sinni um landið og blæs í kvöld til fundar með oddvitum allra flokka sem lagt hafa fram framboðslista í Norðausturkjördæmi. 4.4.2007 13:00
Millilandaflug eyskt um 10 prósent á fyrsta ársfjórðungi Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll jókst um tíu prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Fram kemur á heimasíðu Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli að flugvélum í almennu flugi hafi fjölgað um 15 prósent en viðkoma herflugvéla hefur minnkað lítillega 4.4.2007 12:45
Straumurinn liggur vestur um páskana Straumurinn liggur vestur um páskahelgina, samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands þar sem hátíðin Aldrei fór ég suður virðist ætla að slá öll aðsóknarmet. 4.4.2007 12:30
Hafa játað á sig árás á unglinga í Breiðholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi fjögur ungmenni sem réðust á sextán ára dreng og fjórtán ára vinkonu hans í Breiðholti um hádegisbilið í gær,þar sem þau biðu eftir strætó. Þau játuðu á sig árásina. 4.4.2007 12:15
Tafir á umferð við Oddskarðsgöng vegna skemmda á hurðum Vegagerðin bendir á að vegna skemmda á hurðum við Oddskarðsgöng verða tafir þar á umferð vegna viðgerða. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi. 4.4.2007 12:09
Skoða verður óvenju mikla íbúafjölgun í Hafnarfirði í marsmánuði Íbúafjölgun í Hafnarfirði í marsmánuði var sjötíu prósentum meiri en í mánuðunum á undan og munar um 130 manns. Formaður Hags Hafnarfjarðar segir að bæjaryfirvöld verði að skoða betur hvað þarna gerðist. Samtökin ætla að ákveða síðar í dag hvort álverskosningin verður kærð. 4.4.2007 12:04
Horfur á að maður lifi af hnífstunguárás Horfur eru á að karlmaður á fimmtugsaldri, sem var stunginn lífshættulegri stungu í brjóstið með eldhúshnífi á heimili við Hátún í Reykjavík í gærkvöldi, lifi árásina af. 4.4.2007 12:00
Tíu hafa áhuga á hlut ríkisins í HS Tíu aðilar hafa lýst yfir áhuga á að bjóða í ríflega 15 prósenta hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja en frestur til að bjóða í hlutinn rann út á mánudaginn. 4.4.2007 11:47
Sendi páskaegg til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku Allir starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í útlöndum fengu send páskaegg frá Íslandspósti nú fyrir páskana. Fram kemur í tilkynningu frá Íslandspósti að 20 egg hafi verið send til Afríku, Asíu og Suður-Ameríku og komust þau örugglega í hendur viðtakenda. 4.4.2007 11:12
Skemmtistaðir mega vera opnir aðfaranótt páskadags Veitinga- og skemmtistöðum er heimilt að hafa opið til klukkan þrjú í nótt eða hálfsex eftir atvikum en hins vegar má aðeins vera opið til miðnættis annað kvöld. 4.4.2007 11:02
Sex þúsund fleiri karlar en konur í landinu Alls voru nærri 310 þúsund íbúar í landinu þann 1. apríl síðastliðinn samkvæmt áætlunum Hagstofu Íslands. Hefur þeim því fjölgað um rúmlega tvö þúsund frá áramótum en þá voru þeir nærri 308 þúsund. 158 þúsund karlar eru í landinu 152 þúsund konur. 4.4.2007 10:50
Fluttir á sjúkrahús eftir veltu á Vatnsleysustrandarvegi Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíll valt á Vatnsleysustrandarvegi skammt austan við Voga um klukkan 20 í gærkvöld. 4.4.2007 10:23
Nýskráðum bílum fækkar um 40 prósent í janúar og febrúar Samdráttur varð á nýskráningu bíla um nærri 40 prósent á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt Hagvísum Hagstofu Íslands. 4.4.2007 09:50
Óttaðist um líf sitt Rúmlega tvítugur maður sem bundinn er við hjólastól segist hafa óttast um líf sitt þegar ráðist var á hann um kvöldmatarleytið síðastliðið sunnudagskvöld í miðbæ Reykjavíkur. Hann segir að stórauka þurfi öryggisgæslu í miðbænum alla daga því enginn sé óhultur. 3.4.2007 19:12
Mikil fákeppni á íslenskum farsímamarkaði Forstjóri Póst-og fjarskiptastofnunar segir mikla fákeppni á íslenskum farsímamarkaði hafa orðið til þess að tíðniheimildir fyrir farsíma voru boðnar út. Verð á farsímanotkun sé hærra hér á landi en hjá hinum norðurlöndunum. Tvö svissnesk fyrirtæki áttu besta tilboðið. 3.4.2007 19:04
30 milljónir plastpoka urðaðir á ári San Fransiscoborg hefur nýlega bannað plastpoka í stórmörkuðum. Engin áform eru um slíkt á Íslandi, jafnvel þótt Íslendingar noti gríðarlegan fjölda af þeim á hverju ári. 3.4.2007 18:45
Ríflega 66 prósenta fjölgun hótelherbergja í Reykjavík Framboð á hótelrými í Reykjavík hefur aukist um 66 prósent á síðustu fimm árum og ferðamönnum til landsins heldur áfram að fjölga. Erfitt getur reynst að fá flugferðir til útlanda á mestu annatímunum, þótt framboð þeirra hafi verið aukið og flugfélögin bætt við sig fjölmörgum nýjum áfangastöðum. 3.4.2007 18:43
Kennarar meiri þátttakendur í einelti en nemendur Kennarar eiga meiri þátt í einelti gagnvart börnum en nemendur samkvæmt nýrri könnun. Bæjarfulltrúi á Akureyri segir niðurstöðurnar sláandi en þó komi þær ekki algjörlega á óvart. Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri lagði ýmsar spurningar fyrir grunnskólabörn á Akureyri þar sem einelti var meðal annars kannað. 3.4.2007 18:20
Visir.is og mbl.is á topp 100 á Norðurlöndum Fréttamiðlarnir visir.is og mbl.is eru einu íslensku vefirnir sem komast inn á listann Topp-100 Nordic Internet Index. Listinn er birtur vikulega yfir mest sóttu vefi á Norðurlöndum. Íslensku vefirnir eru hlið við hlið í 91. og 92. sæti listans. Þetta kemur fram á vef Modernus, teljari.is. 3.4.2007 18:12
Síbrotamaður í gæsluvarðhaldi til 23. apríl Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir síbrotamanni til 23. apríl eða þar til dómur gengur í málum hans. Manninum er gefið að sök að hafa á tveggja mánaða tímabili, frá 30. nóvember 2006 til 30. janúar 2007, framið fjölmörg auðgunar- og fjármunabrot auk fíkniefna- og umferðarlagabrota. 3.4.2007 16:58
Tveir ákærðir vegna Eskifjarðarslyss í fyrrasumar Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tveimur mönnum fyrir Héraðsdómi Austurlands vegna klórgasslyssins sem varð á Eskifirði í lok júní í fyrra. 3.4.2007 16:47
Verðlækkanir í lágvöruverslunum í samræmi við skattalækkanir Verðlækkanir í lágvöruverðsverslunarkeðjum í tengslum við lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars voru í samræmi við útreikninga Hagstofunnar á tilætluðum áhrifum aðgerðanna. Þetta leiða fyrstu niðurstöður úr viðamiklum verðmælingum verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á tímabilinu í ljós. 3.4.2007 16:14
Samið um að vakta lífríki Þingvallavatns Samið hefur verið um vöktun á lífríki Þingvallavatns til þess að kortleggja hugsanlegar breytingar á lífríki vatnsins vegna meintra álagsþátta eins og nýtingar vatns, frárennslis, vatnsmiðlunar og vegagerðar. 3.4.2007 15:46
Fimm sækjast eftir stöðu listdansstjóra Fimm umsóknir bárust um embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins en umsóknarfrestur rann út á föstudaginn var. 3.4.2007 15:22
Ók um ölvuð með barn sitt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af konu á fertugsaldri sem tekin var fyrir ölvunarakstur í gærmorgun. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á leikskólaaldri. 3.4.2007 15:12
Bang Gang gefur út sína fyrstu plötu í Bandaríkjunum Hljómsveitin Bang Gang gaf í dag út sína fyrstu plötu í Bandaríkjunum þegar Something Wrong leit dagsins ljós í bandarískum plötubúðum. Í tilkynningu frá útgáfufyrirtækinu From Nowhere Records, sem gefur plötuna út, segir að hljómsveitin og fyrirtækið hafi undanfarna mánuði kynnt sig í Bandaríkjunum og vakið töluverða athygli. 3.4.2007 15:04
Eyddu djúpsprengju á Rifi Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir vestur á Rif á Snæfellsnesi í nótt eftir að skipstjóri togbáts hafði fengið torkennilegan hlut í veiðarfærin. 3.4.2007 13:56
Næstum 20 stiga hiti í Neskaupstað Sannkallað sumarveður er nú víða á Austurlandi en samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands hefur hitinn farið hæst í 19,6 stig í Neskaupstað nú um klukkan eitt. Sömu sögu er að segja af Kollaleiru en þar hefur hitinn farið stigvaxandi í morgun og mældist einnig mest 19,6 stig um eittleytið . Enn fremur er um 15 stiga hiti á Seyðisfirði og um 16 stig á Eskifirði og Egilsstöðum. 3.4.2007 13:41
Dæmdur fyrir þjófnað á heimavist á Akureyri Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í tveimur herbergjum á heimavist Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri í fyrrahaust. 3.4.2007 13:00
Sjö mánaða fangelsi fyrir innbrot Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi fyrir þjófnað með því að hafa brotist inn á tveimur stöðum í október í fyrra og febrúar í ár. 3.4.2007 12:41
Alcan á enn möguleika á að þróa starfsemi sína í Hafnarfirði Bæjarstjórinn í Hafnarfirði reiknar með að Alcan hafi áfram áhuga á því að nýta lóðina sem fyrirtækið keypti og ætlaði undir stækkað álver. Hann segir að álverið eigi enn möguleika á að þróa starfsemi sína í bænum. 3.4.2007 12:30
Þrír kærðir fyrir of hraðan akstur Þrír menn voru ákærðir fyrir of hraðan akstur í gær og nótt, að því er fram kemur á vef Lögreglunar. Tveir mældust á 114 og 146 km/klst. á Reykjanesbraut en leyfilegur hámarkshraði þar er 90 km/klst. Þriðji maðurinn var stoppaður á Njarðarbraut í Reykjanesbæ, á 77 km/klst. Hámarkshraðinn þar er 50 km/klst. 3.4.2007 12:25