Fleiri fréttir

Bílvelta á Sandskeiði

Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum.

Coloradobúar arka snjóinn

Snjóstormur hefur gengið yfir Colorado í Bandaríkjunum í dag. Mikill snjór er víða á götum og aflýsa hefur þurft hundruðum fluga. Yfirvöld hafa þurft að loka þjóðvegum vegna veðursins.

Verðmunur á konfekti í verslunum allt að 131%

Mikill verðmunur er á jólamatnum milli verslana samkvæmt könnun sem ASÍ gerði í dag. Mestur er munurinn á verði á konfekti og drykkjarvörum en mikill munur reyndist einnig á laufabrauði, smákökum og jólakjötinu.

Fangar fluttir af Byrginu á Litla Hraunið

Fangelsismálastofnun ákvað í dag að taka tvo fanga, sem leyft hefur verið að afplána hluta refsingar í Byrginu, til baka á Litla Hraun. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir brýnt að hefja lögreglurannsókn á ásökunum á hendur forstöðumanni Byrgisins.

Ekki taldar líkur á að Ölfusá flæði yfir bakka sína

Björgunarfélag Árborgar stendur nú vaktina við bakka Ölfusár við Ölfusárbrú. Lögreglan á Selfossi segir ekki taldar líkur á að áin flæði yfir bakka sína en björgunarsveitarmenn standa þó áfram vaktina til að koma í veg fyrir að fólk fari sér að voða við ána.

Flugumferðarstjórar segja skort á samningsvilja

Félag íslenskra flugumferðarstjóra segja Flugstoðir skorta vilja til að semja. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem því er neitað að flugumferðarstjórar krefjist þess að laun sín hækki um tugi prósenta líkt og Flugstoðir hafa haldið fram.

Ekki hægt að mismuna starfsfólki

Flugstoðir segja að ekki sé hægt að gera flugumferðarstjórum hærra undir höfði en öðrum starfsmönnum og því sé ekki hægt að ganga að kröfum þeirra. Um sextíu flugumferðarstjórar sem störfuðu hjá Flugmálastjórn Íslands hafa ekki gert samning við Flugstöðir ohf., sem tekur við rekstirnum um áramótin, og krefjast þeir kjarabóta.

Dómarar detta í lukkupottinn

Þingmenn, ráðherrar og æðstu embættismenn fengu vænar launahækkanir, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í dag. Sex komma fimm prósenta launahækkun fellur þeim í skaut. Dómarar detta í lukkupottinn þar sem þeir fá, þessu til viðbótar, launahækkanir frá í fyrra sem ríkið afnumdi með lögum, til baka með dómsúrskurði.

Metrennsli í Norðurá

Í Borgarfirði hafa ár flætt yfir bakka sína og gamla brúin yfir Hvítá, milli Ferjukots og Hvítarvalla, er lokuð og íbúar í Ferjukoti því innlyksa.

Mesta hættan liðin hjá á Akureyri

Mestan hættan er liðin hjá á Akureyri vegna vatns- og aurflóða. Ekki er talin ástæða til að óttast frekari skriðuföll nema aftur fari saman miklar leysingar og rigning. Björgunarsveitarmenn munu þó áfram standa vaktina í nótt.

Bæir innlyksa vegna flóða í Hvítá

Hvítá í Árnessýslu er í miklum ham og var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem áin flæddi yfir hana. Eins eru átta íbúðarhús innlyksa í Auðsholti þar sem Hvítáin beljar allt um kring.

Mikil hætta á bráðri mengun úr flutningaskipinu

Flutningaskipið Wilson Muuga er nú flokkað sem umhverfisslys enda mikil hætta talin á bráðri mengun. Flogið var í skipið í dag til að kanna ástand skipsins og aðstæður til að dæla olíunni í land.

Komið verður á fót heimili fyrir heimilislausa

Félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg ætla að koma á fót heimili fyrir heimilislausa í Reykjavík. Rúm verður fyrir 10 heimilismenn samtímis. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag, samstarfssamning um heimilið.

Ellefu áramótabrennur í Reykjavík

Um þessi áramót verða 11 áramótabrennur í Reykjavík. Þær verða allar á sömu stöðum og í fyrra. Kveikt verður í borgarbrennum kl. 20.30. á gamlárskvöld. Í frétt frá Framkvæmdasviði segir að starfsmenn hverfastöðva Framkvæmdasviðs verði við móttöku og uppröðun í bálkesti frá fimmtudeginum 28. desember. Hætt verður að taka á móti efni þegar kestirnir eru orðnir hæfilega stórir eða í síðasta lagi kl.12:00 á gamlársdag.

Björgunarsveitir klári verkefni og verði svo í viðbragðsstöðu

Almannavarnarnefndir í Árnessýslu ákváðu á fundi sínum sem var að ljúka björgunarsveitir muni ljúka fyrirliggjandi verkefnum og fara síðan heim að því loknu en verða viðbúnar útköllum. Þær hafa í dag aðstoðað hestaeigendur við að bjarga hrossum úr úthaga.

Verulegt tjón á Djúpadalsvirkjun

Franz Árnason, framkvæmdastjóri Fallorku ehf. sem rekur Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit ,segir að verulegt tjón hafi orðið á virkjuninni í dag þegar efri stíflan í virkjuninni brast eftir mikið úrhelli í Eyjafirði á síðasta sólarhring.

Reyndist ölvaður undir stýri í banaslysi

Annar mannanna, sem yfirheyrðir hafa verið vegna umferðarslyss sem varð á Reykjanesbraut nærri nýju IKEA-versluninni í Garðabæ í nóvember, hefur viðurkennt að hafa ekið bifreiðinni. Komið hefur í ljós að hann og tveir aðrir sem voru í bílnum hafi verið undir áhrifum áfengis en einn mannanna lést þegar bílnum var ekið á steypustólpa.

Tengivagn valt á Suðureyrarvegi

Vegurinn til Suðureyrar er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð nú í eftirmiðdaginn. Þá valt tengivagn flutningabíls með þeim afleiðingum að hann lokar nú veginum. Óhappið varð til móts við eyðibýlið Laugar á veginum milli Suðureyrar og Botns í Súgandafirði en að sögn lögreglu á Ísafirði urðu engin slys á fólki.

Flæðir inn í kjallara Selfosskirkju

Björgunarfélag Árborgar vinnur nú að því að tæma kjallara Selfosskirkju þar sem allt er á floti, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Björgunarsveitarmenn hafa þurft að aðstoða lögreglumenn við að stugga forvitnu fólki frá árbakkanum, þar sem bæði börn og fullorðnir hafa hætt sér tæpara en góðu hófi gegnir.

Flugi til Ísafjarðar í dag aflýst

Flugi á vegum Flugfélags Íslands sem fara átti til Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs og verður ekki athugað með flug þangað fyrr en á morgun. Þá er óvíst með flug til Egilsstaða og Akureyrar og verður kannað með flug þangað næst klukkan hálffimm.

Annar dæmdra nauðgara laus úr gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem eru grunaðir um kynferðisbrot og setið hafa í varðhaldi undanfarið rennur út í dag. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds yfir þeim eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni.

Nýtt varðskip til um mitt ár 2009

Reikna má með því að nýtt varðskip verði komið í flota Landhelgisgæslu Íslands um mitt ár 2009 en samningur um smíði þess var undirritaður í dag. Það gerðu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands ásamt Carlos Fanta de la Vega, forstjóra skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile, sem átti lægsta tilboð í smíði skipsins.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til taks á Selfossi

Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu fara nú á fjórða tímanum austur fyrir fjall til þess að vera til taks á Selfossi ef fer að flæða þar inn í hús með hækkandi vatnsborði Ölfusár. Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út og slökkviliðin í umdæminu eru í viðbragðstöðu.

Sýknaður af ákæru um nauðgun

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í maí síðastliðnum. Fólkið mun hafa hist á skemmtun og farið saman af skemmtuninni og á maðurinn að hafa naugðað stúlkunni á víðavangi skammt þar frá.

Mesta vatnshæð síðan mælingar hófust

Vatnamælirinn þar sem Hvítá rennur um Fremstaver hefur aldrei sýnt meiri vatnshæð síðan hann var settur upp. Snorri Zóphóníasson, hjá Vatnamælingum Orkustofnunar, býst við að rennsli Ölfusár við Selfoss vaxi fram að miðnætti í kvöld og geti náð 2000 rúmmetrum á sekúndu, sem er fimmfalt meðalrennsli þessarar vatnsmestu ár landsins.

Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun brast í úrhellinu

Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit, skammt frá Melgerðismelum, brast í úrhellinu í morgun og æddi flóðbylgja niður ána og yfir Eyjafjarðarveg vestri þannig að hann rofnaði.

Hestabjörgunin gengur vonum framar

Hestabjörgun Björgunarfélagsins Eyvindar við Auðsholt í Hrunamannahreppi gengur vonum framar, að sögn Borgþórs Vignissonar, sem er á vettvangi. Í kringum hundrað hestar voru á flæðiskeri staddir í morgun þegar björgunarmenn komu á vettvang. Tveir litlir gúmmíbátar hafa smalað hestunum á sund og farið með þá á öruggan stað.

Grjóthrun úr Óshlíð í morgun

Nokkuð grjót hrundi á veginn um Óshlíð í morgun og var lögregla kölluð út til að aðstoða vegfaranda. Kona sem var á leið til Bolungarvíkur keyrði á grjóthnullung og sprengdi dekkið og skemmdi felguna. Vegagerðin ruddi veginn en ekki þurfti að loka honum. Ekki hefur hrunið frekar í dag, að sögn lögreglu á Ísafirði.

Lyngdalsheiðin orðin ófær vegna vatnavaxta

Lyngdalsheiði, sem liggur milli Þingvalla og Laugarvatns er orðin ófær vegna vatnavaxta og bætist þar með í hóp vega á Norður- og Suðurlandi sem lokast hafa vegna þess. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð og þá er Auðsholtsvegur, vegur 340, ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt.

Vegstikur hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöpp

5000 þúsund óhöpp, um 2500 slys og 54 banaslys hafa orðið á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss. Vegstikur beggja megin vegarins hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöppin sem orðið hafa á veginum.

Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu hugi að eigum sínum

Þrjár af fjórum almannavarnarnefndum í Árnessýslu funduðu á lögreglustöðinni á Selfossi kl. 11:30. Á fundinum sátu einnig fulltrúar Vatnamælinga og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu eru hvattir til að gæta að eignum sínum.

Hugsanlega stærsta flóð í hálfa öld

Átta íbúðarhús eru innlyksa í Auðsholti og Hvítáin beljar allt um kring. Steinar Halldórsson, bóndi í Auðsholti í Hrunamannahreppi, segir fólkið vant vatnavöxtum en þetta gæti verið stærsta flóð síðan foreldrar hans fluttu að Auðsholti, fyrir 50 árum síðan. Og það rignir enn og vatnsborðið hækkar.

Björguðu manni úr Djúpadalsá - lögreglubílar innlyksa

Slökkviliðið á Akureyri bjargaði í morgun manni eftir að bíll hans lenti úti í Djúpadalsá í Eyjarfjarðarsveit nú fyrir hádegið. Svo virðist sem áin hafi grafið veginn í sundur með fyrrgreindum afleiðingum. Slökkvilið segir manninn hafa verið kaldan og hrakinn eftir volkið en lítið meiddan.

Vegir víða lokaðir vegna vatnavaxtanna

Vegfarendur eru varaðir við vatnavöxtum víða um land þar sem vatn gæti flætt upp á vegi. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð. Auðsholtsvegur, vegur 340, er ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. Það er ófært vegna vatnaskemmda við Ferjukot í Borgarfirði. Í Eyjafirði loka skriður vegi á þremur stöðum; á Hörgárdalsvegi við bæinn Skriðu, á Hólavegi við Grænuhlíð og á Eyjafjarðarbraut vestri er skriða í námunda við Skáldstaði. Eyjafjarðarbraut vestri er einnig í sundur vegna flóðs við Samkomugerði og má búast við að viðgerð þar taki einhverja daga.

Hvítárnar í ham

Hvítárnar bæði á Suðurlandi og í Borgarfirði eru í miklum ham og er búið að loka brúm og vegum við báðar árnar. Í Borgarfirðinum er búið að loka gömlu brúnni yfir Hvítána sem er millli Ferjukots og Hvítárvalla. Á Suðurlandi var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem brúin var komin á kaf og vatn komið upp á veginn beggja vegna brúarinnar.

Forðuðu sér undan skriðunni við Grænuhlíð

Hjón og barn þeirra sluppu ómeidd út úr íbúðarhúsi sínu að Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit í morgun, þegar aurskriða féll á íbúðarhúsið og gripahúsin. Fólk átti svo fótum sínum fjör að launa þegar önnur skriða féll um ellefuleytið í morgun. Talið er tíu til fimmtán kálfar hafi drepist í fyrri skriðunni.

Ekkert gert á strandstað fyrr en veður lægir

Mengunarvarnarbúnaður er kominn á strandstaðinn í Hvalsnesi en ekkert verður að gert fyrr en veðuraðstæður leyfa og hægt verður að slaka mönnum og tækjakosti niður í skipið. Umhverfisstofnun stjórnar aðgerðum á strandstað nú þegar búið er að bjarga áhöfninni af skipinu.

Laun æðstu embættismanna hækka í október og um áramót

Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem heyra undir ráðið, þar meðal þingmenn, ráðherrar, forseti og dómarar, skuli hækka um 3,6 prósent afturvirkt frá 1. október 2006. Þá skuli þau hækka um 2,9 prósent um áramót. Úrskurður þar að lútandi var kveðinn upp í gær.

Tveggja mánaða dómur fyrir kannabisrækt

Karlmanns á fimmtugsaldri bíður tveggja mánaða fangelsi en hann var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakfelldur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslu sinni 2,5 grömm af hassi og kannabisræktun.

Forðuðu sér undan skriðunni

Önnnur skriða féll við bæinn Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit nú á tólfta tímanum. Fréttamaður Stöðvar 2 var að ræða við bóndann á bænum þegar miklar drunur kváðu við og allir forðuðu sér.

Hjálmar Árnason vill lögreglurannsókn í málefnum Byrgisins

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að lögreglurannsókn fari fram á málefnum meðferðarheimilisins Byrgsins í Grímsnesi og forstöðumanns þess Guðmundar Jónssonar í ljósi upplýsinga um kynferðislega misneytingu í sjónvarpsþættinum Kompási á sunnudaginn var. Hjálmar sagði í þættinum Ísland í bítið á Stöð2 í morgun, að hann væri ekki alveg sammála Ólafi Helga Kjatanssyni, sýslumanni á Selfossi, um að ekki væri ástæða til að láta fara fram rannsókn í málinu.

Sjá næstu 50 fréttir