Fleiri fréttir Engin sjúkraflugvél í Eyjum Starfsmenn heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja gripu enn í tómt í fyrradag, þegar þeir hugðust senda sjúkling með sjúkraflugvél til Reykjavíkur til innlangar á Landspítalann. 12.7.2006 08:10 Trukk í uppgræðsluna Efnt verður til viðburðarins, “Trukk í uppgræðsluna” við Litlu kaffistofuna á morgun kl. 9:30-10:30. 12.7.2006 08:01 Misvísandi verðbólguspár Geir H. Haarde forsætisráðherra er sannfærður um að verðbólgan fari að minnka strax upp úr næstu áramótum og segir auðveldara að sitja í Seðlabankanum og biðja um aðgerðir heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála. 12.7.2006 08:00 Samkeppniseftirlitið ógilti samruna lyfjafyrirtækja Samkeppniseftirlitið ógilti samruna Lyfjavers og Lyf & heilsu. Lyfja og Lyf & heilsa hefðu náð 80 prósenta markaðshlutdeild við samrunann. DAC, systurfyrirtæki Lyf & heilsu, hefði náð yfirburðastöðu í skömmtun lyfja fyrir stofnanir. Framkvæmdastjórar keðj 12.7.2006 07:45 Besta afkoma Alcoa til þessa Hagnaður Alcoa á öðrum fjórðungi ársins nam 57 milljörðum króna, sem er besta afkoma fyrirtækisins í sögu þess. 12.7.2006 07:45 Mikið um hraðakstur Þrettán ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðann akstur í Kópavogi í gærkvöldi og ók einn þeirra á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. 12.7.2006 07:33 Mátti vart tæpara standa Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason var sendur af stað frá Grindavík eftir að tilkynning barst Landhelgisgæslunni um olíulausan bát á reki suðvestur af Reykjanesi. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, skipstjóra á björgunarbátnum, mátti vart tæpara standa því veður versnaði mjög. „Ef við hefðum verið seinna á ferðinni hefðu þeir jafnvel þurft að halda sjó,“ segir Guðjón. 12.7.2006 07:30 Sláandi áhrif atvinnuleysis Lokaverkefni Elínar Valgerðar Margrétardóttur í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands fjallaði um vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnulausa og hvort þau væru í samræmi við kröfur á vinnumarkaði. 12.7.2006 07:30 Ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði Margir borgarbúar, þeirra á meðal lögreglumenn og slökkviliðsmenn, sáu ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði um klukkan hálf fjögur í nótt, sem talið var neyðarblys. 12.7.2006 07:30 Fimmtíu milljónir í bætur Það sem af er árinu hefur Landspítali - háskólasjúkrahús þurft að greiða um fimmtíu milljónir í skaðabætur vegna þriggja dómsmála þar sem spítalanum er stefnt. Tvö málanna varða læknamistök og eitt var vegna veikinda sem starfsmaður hlaut af vinnu á sjúkrahúsinu. 12.7.2006 07:15 Þúsundir hætta lífi sínu fyrir spennu Á hverju ári koma þúsundir manns saman í spænsku borginni Pamplona til þess að taka þátt í nautahlaupinu sem þar fer fram. Þá er mannýgum nautum sleppt í borginni og látin hlaupa eftir fyrirfram girtri leið á meðan mannfjöldi hleypur undan þeim. 12.7.2006 07:15 Búslóð var stolið í miðjum flutningum í Árbænum Sófaborð, stólar og tölva eru meðal þess sem stolið var úr búslóð Nóa Benediktssonar á meðan hann stóð í flutningum. Hann býður þeim sem skilar hlutunum fundarlaun. 12.7.2006 07:15 Aðgreining bók- og starfsnáms afnumin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnti nýja hugsun í uppbyggingu framhaldsskólanáms í gær, sem gefur skólum tækifæri til að halda í sérkenni sín, um leið og bóknámi og starfsnámi er gert jafn hátt undir höfði. 12.7.2006 07:00 Nýr framhaldsskóli í mótun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í janúar síðastliðnum nefnd til að kanna hvernig efla mætti starfsnám til að stuðla að aukinni aðsókn að slíku námi og bæta tengsl starfsnáms á framhaldsskólastigi við grunnskóla- og háskólastig. Tillögur þessarar starfsnámsnefndar, eins og hún var nefnd, liggja nú fyrir og eru metnaðarfullar, jafnvel byltingarkenndar. 12.7.2006 07:00 Hóta annarri vinnustöðvun
Sjá næstu 50 fréttir
Engin sjúkraflugvél í Eyjum Starfsmenn heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja gripu enn í tómt í fyrradag, þegar þeir hugðust senda sjúkling með sjúkraflugvél til Reykjavíkur til innlangar á Landspítalann. 12.7.2006 08:10
Trukk í uppgræðsluna Efnt verður til viðburðarins, “Trukk í uppgræðsluna” við Litlu kaffistofuna á morgun kl. 9:30-10:30. 12.7.2006 08:01
Misvísandi verðbólguspár Geir H. Haarde forsætisráðherra er sannfærður um að verðbólgan fari að minnka strax upp úr næstu áramótum og segir auðveldara að sitja í Seðlabankanum og biðja um aðgerðir heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála. 12.7.2006 08:00
Samkeppniseftirlitið ógilti samruna lyfjafyrirtækja Samkeppniseftirlitið ógilti samruna Lyfjavers og Lyf & heilsu. Lyfja og Lyf & heilsa hefðu náð 80 prósenta markaðshlutdeild við samrunann. DAC, systurfyrirtæki Lyf & heilsu, hefði náð yfirburðastöðu í skömmtun lyfja fyrir stofnanir. Framkvæmdastjórar keðj 12.7.2006 07:45
Besta afkoma Alcoa til þessa Hagnaður Alcoa á öðrum fjórðungi ársins nam 57 milljörðum króna, sem er besta afkoma fyrirtækisins í sögu þess. 12.7.2006 07:45
Mikið um hraðakstur Þrettán ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðann akstur í Kópavogi í gærkvöldi og ók einn þeirra á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. 12.7.2006 07:33
Mátti vart tæpara standa Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason var sendur af stað frá Grindavík eftir að tilkynning barst Landhelgisgæslunni um olíulausan bát á reki suðvestur af Reykjanesi. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, skipstjóra á björgunarbátnum, mátti vart tæpara standa því veður versnaði mjög. „Ef við hefðum verið seinna á ferðinni hefðu þeir jafnvel þurft að halda sjó,“ segir Guðjón. 12.7.2006 07:30
Sláandi áhrif atvinnuleysis Lokaverkefni Elínar Valgerðar Margrétardóttur í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands fjallaði um vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnulausa og hvort þau væru í samræmi við kröfur á vinnumarkaði. 12.7.2006 07:30
Ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði Margir borgarbúar, þeirra á meðal lögreglumenn og slökkviliðsmenn, sáu ljósfyrirbrigði út af Skerjafirði um klukkan hálf fjögur í nótt, sem talið var neyðarblys. 12.7.2006 07:30
Fimmtíu milljónir í bætur Það sem af er árinu hefur Landspítali - háskólasjúkrahús þurft að greiða um fimmtíu milljónir í skaðabætur vegna þriggja dómsmála þar sem spítalanum er stefnt. Tvö málanna varða læknamistök og eitt var vegna veikinda sem starfsmaður hlaut af vinnu á sjúkrahúsinu. 12.7.2006 07:15
Þúsundir hætta lífi sínu fyrir spennu Á hverju ári koma þúsundir manns saman í spænsku borginni Pamplona til þess að taka þátt í nautahlaupinu sem þar fer fram. Þá er mannýgum nautum sleppt í borginni og látin hlaupa eftir fyrirfram girtri leið á meðan mannfjöldi hleypur undan þeim. 12.7.2006 07:15
Búslóð var stolið í miðjum flutningum í Árbænum Sófaborð, stólar og tölva eru meðal þess sem stolið var úr búslóð Nóa Benediktssonar á meðan hann stóð í flutningum. Hann býður þeim sem skilar hlutunum fundarlaun. 12.7.2006 07:15
Aðgreining bók- og starfsnáms afnumin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnti nýja hugsun í uppbyggingu framhaldsskólanáms í gær, sem gefur skólum tækifæri til að halda í sérkenni sín, um leið og bóknámi og starfsnámi er gert jafn hátt undir höfði. 12.7.2006 07:00
Nýr framhaldsskóli í mótun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í janúar síðastliðnum nefnd til að kanna hvernig efla mætti starfsnám til að stuðla að aukinni aðsókn að slíku námi og bæta tengsl starfsnáms á framhaldsskólastigi við grunnskóla- og háskólastig. Tillögur þessarar starfsnámsnefndar, eins og hún var nefnd, liggja nú fyrir og eru metnaðarfullar, jafnvel byltingarkenndar. 12.7.2006 07:00
Tveir möguleikar Sundabrautar kynntir Annar áfangi Sundabrautar hefur verið kynntur í tillögu að matsáætlun, sem fyrirtækið Línuhönnun hf. stóð að. Áfanginn mun vera 8 km langur vegur sem þverar Eiðsvík, Leiruvog og Kollafjörð og eru möguleikarnir tveir, ytri og innri leið. 12.7.2006 07:00
Verstu umferðarhnútarnir óleysanlegir Mislæg gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar hefðu mátt sín lítils gegn þeim umferðarþunga sem skapaðist á sunnudag þegar landsmenn flykktust heim úr fríum til að sjá úrslitaleik Frakka og Ítala á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þetta segir Jóhann Bergmann, deildarstjóri hjá Vegagerðinni. 12.7.2006 07:00
Magnús Þór í ráðhúsið Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn skrifstofustjóri borgarstjóra til ársloka í afleysingum fyrir Kristínu Árnadóttur, sem fer í námsleyfi. 12.7.2006 06:45
Svindl algengara en ekki Í nýlegum úrskurði félagsdóms kemur fram að fyrirtækjum sé skylt að tryggja erlendu starfsfólki sínu viðunandi laun. Félagsdómur tók fyrir mál nokkurra Litháa sem höfðu fengið tuttugu þúsund krónur í mánaðarlaun. Samiðn höfðaði málið fyrir þeirra hönd. Þorbjörn Guðmundsson er framkvæmdastjóri Samiðnar. 12.7.2006 06:45
Guðni og Siv að íhuga málið Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir segjast bæði vera að íhuga hugsanlegt framboð til forystu í Framsóknarflokknum. Jónína Bjartmarz hefur gefið kost á sér til varaformanns Framsóknarflokksins en hún styður Jón Sigurðsson til formennsku. 11.7.2006 22:59
Hundruðir fylgdu Heiðari til grafar Gríðarlegur fjöldi fylgdi Heiðari Jóhannssyni vélhjólakappa til grafar á Akureyri í dag. Hundruð vélhjólamanna óku Heiðari til heiðurs í líkfylgd sem vart á sér hliðstæðu hér á landi. 11.7.2006 22:58
Sigurlín Bjarney Gísladóttir hlýtur fyrstu verðlaun í glæpasagnasamkeppni Sigurlín Bjarney Gísladóttir hlaut fyrstu verðlaun í glæpasagnasamkeppninni Gaddakylfan en verðlaunin voru afhent í Iðnó í dag. 11.7.2006 22:39
Dökkan reyk lagði frá Járnblendisverksmiðjunni á Grundartanga Reykhreinsibúnaður Járnblendiverksmiðjunnar í Grundartanga bilaði nú í kvöld með þeim afleiðingum að mikinn og dökkan reyk lagði frá verksmiðjunni. 11.7.2006 22:21
Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir íhuga hugsanlegt framboð til forystu. Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir segjast bæði vera að íhuga hugsanlegt framboð til forystu í Framsóknarflokknum. Jónína Bjartmarz hefur gefið kost á sér til varaformanns Framsóknarflokksins en hún styður Jón Sigurðsson til formennsku. 11.7.2006 21:47
Kalt vatn komið á ný Kalt vatn var aftur komið á Seltjarnarnesi og í vestur-og miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í kvöld en kaldavatnslaust hafði verið á þessum stöðum frá klukkan sjö. Grafin hafði verið í sundur kaldavatnsstofnæð á horni Ingólfsstrætis og Sæbrautar sem orsakaði kaldavatnsleysið. 11.7.2006 21:08
Ekkert kalt vatn í miðborginni Kaldavatnslaust er nú á Seltjarnarnesi og í vestur- og miðbæ Reykjavíkur. Ekki er vitað að svo stöddu hvað veldur en samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunnir er verið að kanna málið. Við segjum nánar frá þessu þegar frekari upplýsingar berast. 11.7.2006 19:57
Methagnaður hjá Alcoa Hagnaður Alcoa Corp. nam 744 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur 57 milljörðum íslenskra króna á öðrum fjórðungi yfirstandandi árs. Þetta er besta afkoma í sögu fyrirtækisins. 11.7.2006 19:16
Notkun kreditkorta 22,2% meiri nú en í fyrra Þenslan kemur meðal annars fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við tólf mánuðina næstu á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% í janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimila síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður. 11.7.2006 19:13
Níu lóðir standa eftir Níu lóðir í landi Úlfarsárdals standa eftir en þær voru í hópi 104 lóða sem boðnar voru út í febrúar. Lóðirnar verða settar í hóp lóða í sama hverfi sem er óráðstafað. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti þeim verður útdeilt. 11.7.2006 18:45
Álagið að sliga hjúkrunarfræðinga Hópur reyndra hjúkrunarfræðinga við Landspítalann er að því kominn að hætta vegna viðvarandi álags, segir formaður félags hjúkrunarfræðinga. Formaður stjórnarnefndar spítalans segir molbúahátt ráða för þegar stjórnvöld ákveði fjárframlög til Landspítalans. 11.7.2006 18:45
Samruni Lyfja og heilsu og Lyfjavers ógildur Samkeppniseftirlitið ógilti í dag samruna lyfsölufyrirtækjanna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. Í úrskurðinum segir að skaðlegra áhrifa samrunans hefði að óbreyttu aðallega gætt á markaði fyrir smásölu lyfja og á markaði fyrir lyfjaskömmtun en sá markaður hefur vaxið á undanförnum árum. Í krafti stöðu sinnar hefði félagið takmarkað samkeppni og getað hagað verðlagningu, þjónustu og viðskiptaskilmálum að verulegu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptavina. 11.7.2006 18:34
Dæmdur í fangelsi fyrir að breyta lyfseðli Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag rúmlega fimmtugan karlmann fyrir skjalafals. Í mars á þessu ári framvísaði hann lyfseðli á lyfið Parkódín Forte, sem hann hafði fengið framvísað hjá tannlækni, en afmáði kross aftan við texta sem tilgreindi að lyfseðlinum mætti aðeins framvísa einu sinni. Í stað þess lét hann líta þannig út fyrir að lyfseðilinn mætti afgreiða fjórum sinnum á minnst sjö daga fresti. Maðurinn játaði brot sitt og var það virt til refsilækkunar. Hann var því dæmdur til fangelsi í þrjátíu daga en einnig var litið til þess að hann hefur ekki gerst sekur um refsiverðan verknað áður og því fellur refsingin niður haldi maðurinn skilorð í tvö ár frá því dómur var kveðin upp. 11.7.2006 18:32
Auðvelt að sitja í Seðlabankanum og gagnrýna Það er auðveldara að sitja í Seðlabankanum heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála, segir forsætisráðherra. Hann er sannfærður um að verðbólgan sé á niðurleið. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri sagði fyrir aðeins fimm dögum að aðgerðir Seðlabankans væru of varfærnar ef eitthvað væri. 11.7.2006 18:30
Góðæri hjá útgerðarfélögum Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. Ekki er útlit fyrir að verð á aflanum lækki á næstunni. 11.7.2006 18:02
Windows 98 út um gluggann Tölvurisinn Microsoft hætti í dag stuðningi við sín stýrikerfi frá árinu "98. Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar í heimi tækninnar á þessum árum er enn mikill fjöldi fólks sem nýtir sér þennan búnað. 11.7.2006 17:16
Aukning í debet- og kreditkortaveltu milli ára Þenslan kemur m.a. fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við næstu tólf mánuði á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% á tímabilinu janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimilanna síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður. 11.7.2006 17:00
Grímur átti lægra boð í borholur á Norð-Austurlandi Tilboð í borholur á Norð-Austurlandi og uppsetningu blástursbúnaðar voru opnuð í Landsvirkjun í gær. Verkið var boðið út í júní síðastliðnum, en um er að ræða tilraunaboranir fyrir nýtt raforkuver til álframleiðslu á Húsavík. Tvö tilboð bárust, frá Vélsmiðjunni Grími ehf. og frá Stáli og suðu ehf. Tilboð Vélsmiðjunnar Gríms var lægra, rúmlega 8,8 milljónir. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var upp á 8,5 milljónir. 11.7.2006 16:15
Skáldaganga um gamla kirkjugarðinn Borgarbókasafn Reykjavíkur býður til kvöldgöngu um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu á fimmtudaginn. Skáldin og bókaverðirnir Einar Ólafsson og Jónína Óskarsdóttir munu leiða gönguna, sem er hluti af göngudagskrá menningarstofnana borgarinnar, Kvöldgöngur úr Kvosinni, sem nú er boðið upp á annað árið í röð. 11.7.2006 16:00
Samkeppni um merki fyrir eyfirsk matvæli Félag um verkefni til að auka hróður eyfirsks matvælaiðnaðar hefur efnt til samkeppni um merki fyrir verkefnið. Merkið mun auðkenna eyfirskan matvælaiðnað og veitingahús og vera gæðastimpill á vöru og þjónustu. 11.7.2006 15:45
Fjölgun ferðamanna mikil Fram kemur í nýlegri skýrslu um erlenda ferðamenn á Íslandi að fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið mun hraðari en til dæmis fjölgun landsmanna og vöxtur bílaumferðar síðasta áratuginn. 11.7.2006 14:50
Lifrarbólgutilfellum í hundum fjölgar Á síðustu árum hefur tilfellum lifrarbólgu í hundum farið fjölgandi. Hundar landsins hafa ekki verið bólusettir gegn lifrarbólgu síðustu þrjú ár, vegna þess að þá var hætt að framleiða bóluefni sem notað var gegn lifrabólgu í hundum á Íslandi. 11.7.2006 14:15
Forseti Íslands í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú sátu í gær kvöldverð í Hvíta húsinu í boði George Bush forseta Bandaríkjanna og Laura Bush forsetafrúar. 11.7.2006 14:02
Ríkisstjórn styður stefnumörkun Landspítala Háskólasjúkrahúss Ríkisstjórnin styður þá stefnumörkun Landspítala - háskólasjúkrahúss, að yfirmenn spítalans skuli sinna starfi sínu þar eingöngu og ekki öðrum störfum utan hans. 11.7.2006 13:29
Hlé gert á kolmunnaveiðum HB Granda Hlé hefur verið gert á kolmunnaveiðum HB Granda og hefur skipum félagsins verið lagt til 15. ágúst næstkomandi. 11.7.2006 13:22
Umhverfis- og fegrunarátak í Reykjavíkurborg Laugardaginn 22. júlí hefst umhverfis- og fegrunarátak Reykjavíkurborgar. Átakið ber slagorðið “Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík” og er fyrirhugað að það eigi sér stað í öllum hverfum borgarinnar og hefjist í Breiðholti. 11.7.2006 12:58